Vorið - 01.03.1949, Side 31
V O R I Ð
27
eðlilegra en að skólarnir hlynni að
þessum dýrmæta arfi?
Ég vil tjá Kára þökk fyrir bók-
ina og það brautryðjendastarf, sem
hann er hér að vinna. Bókaútgáfa
Pálma H. Jónssonar gaf bókina út
og er hún vönduð að frágangi.
Björt eru bernskuárin eftir Stefán
Jónsson kennara eru átta smásögur.
Sögur þessar hafa öll einkenni
bezta skáldskapar. Allar eru lýsing-
arnar eðlilegar og látlausar. Einna
hugstæðust er mér þó sagan af Litla
Brún og Bjössa, enda heyrði ég höf-
undinn sjálfan flytja liana í útvarp.
Þar er lýst af nærfærni og skilningi
sambandi drengsins og folans.
í fyrra flutti Stefán söguna af
honum Hjalta litla í útvarp og
hlaut miklar vinsældir fyrir þá sögu
svo sem verðugt var. Annars er það
undarlegt, hve lítið af íslenzkum
barnasögum er flutt í barnatímum
útvarpsins.
Með þessum tveimur síðustu
bókunr sínum er Stefán kominn í
röð fremstu barnabókahöfunda,
ekki aðeins hér á landi, heldur þó
að víðar sé farið. Bókin er prýdd
ágætum myndum eftir Halldór Pét-
ursson og gefin út af ísafoldarprent-
smiðju.
Kári litli í sveit eftir Stefán Júli-
usson, yfirkennara, er þriðja Kára-
bókin. Kárabækur Stefáns hafa ver-
ið nrjög vinsælar og mikið notaðar
við lestrarkennslu barna. Þessi bók
er þeirra stærst og veigamest, fjöl-
breytt og skemmtileg. í henni er
lýst ýmsum atvikum, sem koma fyr-