Vorið - 01.06.1956, Page 5

Vorið - 01.06.1956, Page 5
V O RIÐ 43 teknar með myndavél, sem Árni hefði fengið lánaða. Svo gæti hann selt myndavélina og gefð einhverj- urn fátæklingi andvirði hennar. Og svo ætlaði hann að vera heiðarlegur alla ævi. iÞarna kom Árni. Hann beygði fyrir hornið. „Bíddu, Árni,“ kallaði hann. Tómas hljóp til félaga síns. „Nokkuð í fréttum?“ spurði Tómas. Það var hin venjulega spurning er þeir hittust. „Nei, en segir þú nokkrar nýj- ungar?" Tómas þorði ekki að líta í augun á Árna, hann óttaðist að leyndar- málið mundi sjást á svip hans. Hann svaraði ekki þegar í stað. „Ég get að minnsta kosti sagt, að verið getur, að ég fái myndavél." „Að verið geti? Hefurðu fengið hana?“ „Ekki að spyrja, ég segi aðeins ef til vill.“ „Jæja, en hvers vegna ef til vill?“ „Jæja, Árni. Ég get sagt þetta með vissu. Ég fæ myndavél." „Alveg öruggt?“ »Já.“ Og nú hringdi bjallan. Tómas var ánægður yfir að Árni gat ekki spurt um fleira. Þeir fóru í raðir og gengu inn. Þegar þeir voru seztir í skólastof- unni, sáu þeir að sæti Jóns var autt. Kennarinn settist við kennara- borðið, leit yfir stofuna og sagði lágt, eins og við sjálfan sig: „Jón vantar." Tómas og Árni sátu saman. Þeir litu hvor á annan og hugsuðu báðir það sama: Hvernig verður það með útileguna, ef Jón er orðinn veikur? Jón átti prímus. Þeir gátu ef til vill fengið prímus að láni, en ferðin yi'ði ekki eins skemmtileg, ef hann yrði ekki með. Jón mátti ekki verða veikur. Og ekki var enn víst, hvort hann væri veikur. „Hann hefur getað sofið yfir sig,“ hvíslaði Tómas að Árna. „Eða hann hefur fengið magakveisu, það tók aðeins tvo daga, þegar mér varð illt í maganum um daginn," svaraði Árni lágt. „Hljótt,“ sagði kennarinn. „Opn- ið lesbókina á blaðsíðu 33.“ En um leið opnuðust dyrnar og Jón kom inn. Hann staðnæmdist við dyrnar og var reiðubúinn að svara spurningum. Hann var sveitt- ur og þreytulegur. Hvers vegna kemur þú of seint?“ spurði kennarinn. „Ég, ég, en svo er mál með vexti, að mamma kom til mín í skólann í gær. Hún týndi armbandsúrinu sínu á leiðinni lieim, og svo var ég að leita eftir því, en fann það ekki.“ „Það var leiðinlegt. Farðu í sæt- ið þitt,“ sagði kennarinn. Tómas dró þungt andann og starði á Jón. Jón settist í sætið sitt við gluggann og leit til þeirra Tómasar og Árna. Hann kinkaði

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.