Vorið - 01.06.1956, Qupperneq 9

Vorið - 01.06.1956, Qupperneq 9
VORIÐ 47 og er hún talin þriðja stærsta borg Svíþjóðar. Hún er gamalt fiskiver, sem hef- ur vaxið ört og er nú mikil iðnað- ar- og verzlunarborg. Við gengum lítið eitt um borgina og skoðuðum fegurð hennar á meðan við biðum eftir ferjunni. Þingið. Eins og fyrr greinir, fór þessi ís- lenzki hópur þessa ferð til þess að sitja sem fulltrúar á þingi alþjóða- félagsskapar, sem nefnist á ensku: áVorld Friendship Federation, sem mætti jiýða á íslenzku með orðun- um: Alheims vinasamband. 'Þessi félagsskapnr starfar með það fyrir augum, að auka samvinnu og skiln- ing milli þjóða. Á þetta þing komn um 360 ungl- ingar frá flestum löndum Evrópu og Norður-Ameríku. Þarna voru flutt erindi um ýmis mál varðandi samvinnu og samkomulag þjóð- anna. Síðan var öllum þingmönn- um skipt niður í hópa, þar voru svo samdar spurningar til ræðumann- anna, bornar fram og síðan svarað. Meðal ræðumanna voru þeir Tulius Bomholt, menntamálaráð- herra Dana, og H. C. Hansen, for- sætisráðherra. Þingið stóð yfir í tvo daga, en að því loknu var okkur öllum boðið á skemmtun í K. B. höllina. Þar fórn fram úmis skemmtileg atriði, svo sem tónlist, flutt af æskulýðshljómsveit, kór- Skoti aö leilid d sekkjapipu. söngur, látbragðsleikir, einleikur á liörpu og ýmsir fleiri leikir. Það var mjög skemmtilegt kvöld. Færeyjar í heimleiðinni. Seinustu dagana var hópnrinn lítið saman, en ég fór með fjöl- skyldunni á baðstrendur og í öku- ferðir. Brátt kom að því, að við skyld- um leggja aftur á haf út ,og þann 30. ágúst skildum við við þessa góðu vini, sem við höfðum kvnnzt. Veðrið til Færeyja var yndislegt, og við dönsuðum, lékum og sung- um á leiðinni eins og áður. í Færeyjum eyddum við okkar síðasta eyri til að kaupa bíl að ein-

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.