Vorið - 01.06.1956, Qupperneq 10

Vorið - 01.06.1956, Qupperneq 10
48 V O R 1 Ð um frægasta stað eyjanna, Kirkju- bæ. Hann er á sömu eyju og Þórs- höfn. Þar bjó Jóhannes Patursson, kóngsbóndi ,skáld og merkismaður, sem var nokkurs konar Jón Sig- urðsson Færeyinga. I-Iann var kvæntur íslenzkri konu. Nú býr þar sonur hans, Páll Patursson, kóngsbóndi. í kaþólskum sið voru Færeyjar sérstakt biskupsdæmi og sátu bisk- upar í Kirkjubæ. Þar mátti heita að væri höfuðstaður eyjanna. Þar ólst upp Sverrir Sigurðsson, síðar N oregskonungur. í Kirkjubæ stendur kirkjutótt, mikil og vegleg, úr höggnum steini, helguð Þorláki Skálholts- biskupi. Kirkja þessi var gerð um 1300 og átti að jafnast á við dóm- kirkjur annarra landa. En luin var aldrei fullgerð og komst ekki undir þak, því að fé skorti. En tóttin stendur, sem minnisvarði um hina djarfhuga menn, sem lögðu í slíkt stórræði. Það var nokkuð erfitt að komast í stórum bíl að bænum, þar sem vegir eru mjög þröngir og á mörg- um stöðum snarbratt niður í sjo, og svo mun vera um allar eyjarnar. Færeyingar eiga nokkuð rnarga bíla og þá ekki af lakara taginu, en að sjálfsögðu komast þeir ekki langt á þeim. Gamalt, færeyskt máltæki segir :„Bundinn er bátlaus maður,“ og er mikill sannleikur, sem felst i því. Síðasti spölurinn. Jæja, við kvöddum svo Færeyjar eftir skamma viðdvöl og héldum enn á haf út. Við hrepptum slæmt veður heim og flestir voru sjóveikir, en það tók nú allt saman enda, og þann 5. september sigldum við í höfn i Reykjavík. Þá var nístingskuldi og Hin mikla kirkjutótt að Kirkjubœ.

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.