Vorið - 01.06.1956, Page 11

Vorið - 01.06.1956, Page 11
VORltí 49 Hundurinn, sem beiá Eftir R. G. KIRK. Jim bróðir minn var einhver sá bezti drengur, sem ég lief nokkru sinni þekkt. Hann gat verið strang- ur, þegar því var að skipta, en liann var líka sá ástríkasti og umhyggju- samasti maður, sem ég hef kynnzt. bessi umhyggja hans kom sérstak- lega fram gagnvart konum, börn- um og hundum. Og nú ætla ég að segja ykkur sögu af Jim og hundin- um okkar. Fyrir nokkrum árum fluttist Jim heim til okkar, og hundurinn okk- ar, hann Tryggur, tók þegar miklu ástfóstri við hann. IJað var ást við fyrstu sýn. En Jim var mikill hundaþekkjari. í hvert sinn, er Jim þurfti að fara einhverja verzlunar- lerð, vildi Tryggur fara með hon- um, en Jim var þá vanur að segja: hálfgerð rigning, eins og flesta aðra daga þetta sumar. Þar tvístraðist svo hópurinn um land allt, og þar með lauk þessari skemmtilegu og fróðlegu ferð. Ég er viss um það, að þeir sem hafa ferðast, geta tekið undir það með mér, að það skemmtilegasta við öll ferðalög er einmitt að koma heim aftur. „Vertti nú bara kyrr hérna, Trygg- ur. Ég skal áreiðanlega koma heim til þín aftur, og næsta skipti tek ég þig með mér.“ Jim var stundum að heiman lieila viku. En Tryggur beið róleg- ur. Hann vissi hvað „næsta skipti“ þýddi, því að Jim sveik aldrei lof- orð sín. Þegar Jim kom heim aftur, sagði liann: „Jæja, Tryggur. Hefur þú nú beðið vel eftir mér? Ef svo er, skaltu fá að koma með mér.“ Og svo lögðu þeir tveir af stað eitthvað út í náttúruna. Þetta voru hinir mestu hamingjudagar í lífi Tryggs. Þegar Jim var heima, sótti Tryggur á hverju kvöldi inniskóna hans, lagði þá á gólfið við fætur hans, síðan lagðist hann sjálfur á gólfið með trýnið á fótum Jims. Þannig lá hann, þar til Jim fór að hátta. En nú bar svo við, að Jim varð alvarlega veikur. „Hjartað er í ólagi,“ sagði Jim við mig. „Ég á víst ekki langt eftir ólifað. En ég harma það ekki. Ég hef lifað hamingjusama daga.“ Síðasta daginn, sem Jim lifði, sagði hann við mig: „Hundurinn mun sakna mín.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.