Vorið - 01.06.1956, Page 15

Vorið - 01.06.1956, Page 15
V O R I Ð 53 mannfígúra, sem mætir mér allt- af í stiganum, 'hvort sem ég er að koma eða fara? FRÚ BOUNCER (hrædd): O - já, — já ,auðvitað. Ja, það er maður- inn, sem býr í litla herberginu hér fyrir ofan okkur. BOX: Ég gæti ímyndað mér að at- vinna hans stæði í einhverju sam- bandi við hatta, því að hann er með nýjan hatt á hverjum degi. Það mætti segja mér, að hann annað hvort seldi hatta eða byggi þá til. Það kæmi mér ekki á óvart, þótt hattarnir, sem hann gengur með, væru einmitt jaeir, sem hann gæti ekki selt. FRÚ BOUNCER: Já, hann vinnur í hattaverzlun. Er annars nokk- uð, sem ég get gert fyrir vður, herra Box? BOX: O, nei, nei, frú Bouncer, en ég þakka yður samt kærlega fyr- ir. (Frú Bouncer fer út.) BOX: Jæja, mér veitir víst ekki af að halla mér, eftir að hafa unnið í alla nótt. Æ, það verður gott að sofna núna stundarkorn. — En ég þarf nú líka að fá mér eitt- hvað að borða. — Hvort á ég nú að gera fyrst, gleypa í mig morg- unmatinn áður en ég leggst í rúmið, eða gleypa í mig rúmið áður en ég leggst í morgunmat- inn? Æ, hvaða þvættingur. Ég meina auðvitað leggjast í rúmið áður en ég gleypi í mig morgun- matinn. — Jæja — það er þá bezt að byrja á því að borða. — (Snýst í herberginu.) — Nú — hvar eru nú eldspýturnar? Ég skildi stokk- inn eftir hérna á borðinu. — F.ld- spýtur geta nú varla gengið sjálf- ar. — Þær eru alls ekki hér núna. (Litast um.) — Þarna er eldspýtu- stokkur á arinhillunni. Það eru mínar. (Opnar stokkinn.) — Það hefur einhver notað jaær. — Það hlýtur að vera frú Bouncer. — Og það er bara ein eftir. — Jæja. (Hann kveikir gætilega á eldspýtunni og kveikir undir pottinum .Síðan tekur hann fram lítinn pott. Hann lyktar úr pott- inum.) — Hver þremillinn. Frú Bouncer hefur notað pottinn minn. Síðast sauð ég í honum egg, en nú lyktar hann af úldn- um fiski. Jæja, þetta þarf að at- huga. En hvar lét ég nú kjötbit- ann, sem ég keypti mér í morg- un? (Leitar í öllum vösum.) — Jæja, þarna kemur hann. (Hann tekur lítinn bögull upp úr ein- um vasa sínum, vefur af honum umbúðirnar og koma þá í Ijós nokkrir litlir kjötbitar. Hann lætur þá í pottinn.) Jæja, það er víst bezt að fá sér ofurlítinn blund á meðan kjötið er að soðna. — (Síðan leggst hann í rúmið, breiðir teppi ofan á sig og sofnar brátt. Skömmu síðar kemur Cox inn. Hann sér ekki Box.) COX: Ja ,nú er ég aldeilis forviða.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.