Vorið - 01.06.1956, Qupperneq 19

Vorið - 01.06.1956, Qupperneq 19
VORIÐ 57 grunur minn, að framtíð mín muni ekki verða mjög hamingju- söm. COX: Nú, hvers vegna skylduð þér ekki geta orðið hamingjusamur í framtíðinni með góðri konu, sem elskar yður? BOX: Eg er nú ekki alveg viss um, að hin tilvonandi eiginkona mín elski mig raunverulega, því að sannast að segja held ég að Pene- lópe Ann elski auðæfi og muni þar af leiðandi velja sér auðugan eiginmann. COX: Penelópe Ann? COX: Frá Marargötu? BOX: Alveg rétt. COX: Og teijið þér hana sem til- vonandi eiginkonu yðar? BOX: Já, vissulega. Það geri ég. COX: Og álítur hún yður sem til- vonandi eiginmann sinn, má ég spyrja? BOX: Já, það gerir hún. Hún hef- ur ákveðið að giftast mér. COX: En nú get ég einnig sagt yð- ur nokkuð: (Gengur nær.) Pene- lópe Ann hefur þegar ákveðið að giftast mér. Já, hafið það — þér, þarna, prentari. BOX: Og hún hefur nú þegar ákveðið að giftast mér, þér, þér þarna hattaprangari. Og nú er ekkert því til fyrirstöðu að við berjumst, þar til yfir lýkur. — (Þeir kalla báðir: Frú Bouncer- — Frú Bouncer!) FRÚ BOUNCER (kemur hlaup- andi inn): Hvað er á seyði, herr- ar mínir? BOX: Komið með tvær byssur! FRÚ BOUNCER: Já, herra minn. COX: Bíðið andartak. Þér ætlið þó ekki að segja mér, þér þarna vesæla kona, að þér hafið hlaðn- ar byssur í húsi yðar? BOX:: Gjörið strax það, sem ég hef skipað. (Frú Bouncer hleypur út.) COX (snýr sér að andstæðingi sín- um): Hver er skoðun yðar á deilu miili tveggja andstæðinga. Haldið þér að þeir eigi að berj- ast? BOX: Mín skoðun er sú, að menn eigi alls ekki að berjast, heldur útkljá deilumál sín á friðsamleg- an hátt. COX: Það er einnig skoðun mín. En hvað eigum við þá að gera? BOX: Mér dettur ráð í hug. Við skulum varpa hlutkesti. Hérna eru tveir krónupeningar. Ef tal- an einn kemur upp á minni krónu, þá vinn ég. Já, þetta er ágætt. — (Þeir taka hvor sína krónu.) COX: Eruð þér tilbúnir? Þá byrj- við. En þér athugið það, að ef talan einn kemur upp á hvorugri krónunni, þá vinnur hvorugur. BOX (kastar krónunni): Talan einn! COX (kastar sinni krónu); Talan einn!

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.