Vorið - 01.06.1956, Blaðsíða 27

Vorið - 01.06.1956, Blaðsíða 27
V O RIÐ 65 „Ég ætla að hugsa um þetta í dag.“ „Já, ég hringi til þín í kvöld. Ég trúi ekki öðru en að þú komir með mér.“ Dagurinn leið. Og Steini litli hugsaði stöðugt um þetta tvennt — stúkufund og kvikmyndasýnfngu. Þegar hann hafði ákveðið að fara á stúkufundinn, viar eins og hvíslað væri að honum: En þú fa*rð aldrei að sjá Tarzanmyndina. En þegar hann hafði ákveðið að sjá myndina, þá var eins og liann heyrði ósköp lágt hvíslað: Jæja, karlinn. Þú ætlar þá að svíkja barnastúkuna þína. Þetta tvennt barðist í 'huga hans allan laugardaginn. En hann sagði engum frá því. „Það er barnastúkufundur á morgun. Er það ekki?“ spurði móð- ir hans. „Já,“ sagði Steini ósköp lágt. „Gæzlumaðurinn sagði mér um daginn, að þú værir einn a'f beztu félögum stúkunnar og mættir á hverjum fundi. Mér þótti vænt um að heyra þetta." iÞetta kom við hjartað í Steina. Svo að gæzlumaðurinn sagði þetta. Það var ófært að sleppa fundinum. Hann skyldi ekki svíkja stúkuna. Nú vissi hann, hvað 'hann ætlaði að gera. Nú vissi hann hverju hann ætti að svara Nonna. Og honum leið eitthvað svo vel, þegar hann hafði tekið þessa ákvörðun. Það var víst þetta, sem mamma hans kallaði að hafa góða samvizku. Skömmu síðar hringdi síminn. Nonni var í símanum. „Jæja, Steini. Ætlarðu þá ekki að koma með mér að sjá myndina á morgun?" „Nei, ég ætla á stúkufundinn." „Hvað segirðu, drengur. Ætl- arðu að svíkja mig?“ „Ég hef aldrei lofað þér neinu, svo að ég hef ekkert að svíkja. En nú er ég búinn að hugsa mig um og þetta er ákveðið." „Aldrei hefði ég trúað, að þú værir svona slæmur félagi." „Það ert þú sjálfur, sem ert slæmur félagi. Þú ætlar að svíkjast um að koma á stúkufundinn, en vilt ekki koma þangað með mér. Og þó var ég meðmælandi þinn, þegar þú gekkst í stúkuna.“ „Ég slæmur félagi. Ég geri það. sem er meira gaman.“ „Þá kærirðu þig ekki um félags- skap við mig, ef þú vilt ekki koma með mér á stúkufundinn." „Jæja, kannski ég komi þá með þér á stúkufundinn. Ég kem heim til þín á morgun og við verðum samferða." „Ágætt, Nonni. Ég skal ræra al- veg ferðbúinn." Og morguninn eftir sáust tveir drengir fara niður götuna í djúp- um samræðum. Þeir voru báðir í beztu fötunum sínum og ánægðir yfir að hafa gert skyldu sína.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.