Vorið - 01.06.1956, Page 30

Vorið - 01.06.1956, Page 30
68 V O RIÐ „Funduð þið liann? Var hann að villast?“ spurði læknirinn og £ór í frakkann sinn. „Já, eitthvað þess háttar,“ sagði Bobbí. „Hann sagði mömmu alla sína sorgarsögu á frönsku, og hún sagði mér að biðja yður að koma tafarliaust, ef þér væruð heima. Hann hefur hræðilega mikinn hósta, og ég sá hann gráta, ég hef aldrei fyrr séð karlmann gráta. Þér getið ekki ímyndað yður, livað það var sorglegt.“ Þegar læknirinn og Bobbí komu til „hinna þriggja reykháfa", sat Rússinn í hægindastól pabba, og hélt fótunum fyrir iframan eldinn, á meðan hann dreypti á teinu, sem mamma færði honum. „Maðurinn lítur út fyrir að vera veikur, bæði á sál og líkama,“ sagði læknirinn. „Hóstinn er vondur, en ég vona þó að geta læknað hann. Hann verður að hátta undir eins og liggja í upphituðu herbergi.“ „Það er bezt að hann fái her- bergið mitt,“ sagði mamma. „Það er eina svefnherbergið, sem eld- stæði er í.“ Hún kveikti upp eld í skyndi, og þegar herbergið var til- búið, hjálpaði læknirinn til að koma hinum veika manni í rúmið. í herbergi mömmu stóð svört kista, sem börnin höfðu aldrei séð opnaða. Nú opnaði mamma hana, tók upp úr henni nokkuð af karl- mannsklæðnaði, og hengdi við ofn- inn. Bobbí kom inn í herbergið í þessu bili með viðarkubba í eldinn. Hún sá stafina á náttskyrtunni, og sá að kistan var full af karlmanns- fötum. Og stafirnir í skyrtunni voru stafir pabba. Svo að pabbi ihafði þá ekki farið með fötin sín með sér. Og Iþessi nátskyrta var einhver nýjasta skyrtan hans. Hvers vegna fór pabbi ekki með nein föt? Bobbí læddist út úr herberginu, en um leið og hún fór, heyrði hún að lyklinum var snúið í kistuskránni. Hjarta hennar barðist ákaft. Hvers vegna hafði pabbi ekki farið með fötin sín? Þegar mamma kom út úr herberginu, lagði Bobbí hendurnar um háls hennar og sagði: „Mamma, pabbi er þó ekki dá- inn?“ „Nei, vina mín. Hvernig fer þér að detta svo hræðilegt í hug? Pabbi var alveg frískur, þegar ég frétti síðast af honum, og einhvern tíma kemur hann heim til okkar aftur.“ Bobbi spurði ekki meira. Hún stóð fast við þann ásetning sinn að spyrja ekki um það, sem mamma vildi ekki, að hún fengi að vita. Nokkru síðar kom mamma inn í svefnherbergi litlu stúlknanna. Hún ætlaði að sofa í rúmi Fríffu, en Fríða átti að sofa á dýnu á gólf- inu, og þótti henni það mjög ævin- týralegt. Um leið og mamma kom inn, spruttu upp tvær hvítar verur og sögðu báðar í einu:

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.