Vorið - 01.06.1956, Page 32

Vorið - 01.06.1956, Page 32
70 VORIÐ „Hvernig komst hann svo burt?“ „iÞegar stríðið skall á fengu nokkrir rússnesku fangarnir leyfi til að faria sem sjálfboðaliðar í her- inn. Hann var einn af þeim, en flýði um leið og tækilæri gafst. og...." „Það finnst mér nú bera vott um hugleysi," sagði Pétur, „ekki sízt, 'þegar stríð stendur yfir.‘ „Virðist þér hann standa í nokk- urri þakklætisskuld við föðurland sitt, eftir að hafa farið þannig með hann? Hann átti meiri skyldur við konu sína og börn, en nú voru þau horfin, og hann vissi ekkert, hvar hann átti að leita þeirra.“ „Átti hann þá einnig konu og börn til að hryggjast yfir á meðan hann var í fangelsinu?' spurði Bobbí. „Já, það átti hann. Það gat vel verið, að einnig væri búið að setja þau í fangelsi, hann vissi ekkert um það. Það skeður svo margt voðalegt í Rússlandi. En á rneðan hann vann í námunum, tókst nokkrum vinum hans að korna til hans boð- um um það, að konu hans og börn- um 'hefði tekizt að flýja til Eng- lands, svo að þegar hann var 'laus sjálfur, fór hann auðvitað til Eng- lands að leita jreirra." „Veit hann um heimilisfang þeirra?“ spurði Pétur. „Nei, hann veit aðeins, að þau eru í Englandi og hélt, að hann þyrfti að skipta um lest hér á stöð- inni, en þá varð hann þess var, að hann var bæði búinn að týna far- seðlinum og peningaveskinu." „Heldur þú, að hann finni þau? Ég á við konuna og börnin, en ekki farseðilinn og veskið.“ „Ég vona það, og ég ætla að biðja guð að hjálpa honum til að finna konu sína og börn aftur." Nú tók Fríða einnig eftir því, að rödd mömmu titraði. „Æ, mamma/ sagði hún, „en livað þú ert hrygg hans vegna.“ Mamma þagði eitt andartak, en sagði svo aðeins: „Já,‘ og virtist svo verða þungt hugsi. Börnin steinþögðu öll. Skömmu síðar sagði hún: „Góðu börnin mín, þegar þið lesið bæn- irnar ykkar á kvöldin, þá held ég, að þið ættuð um leið að biðja guð að vera með öllum, sem eru í fang- elsi og fjötrum." „Að biðja guð að vera með öll- um, sem eru í fangelsi og fjötrum," endurtók Bobbí hægt. „Var það ekki svona, mamma?“ „Jú,“ sagði mamma, „vera með öllum, sem eru í fangelsi og fjötr- um.“ Mannslífum bjargað. Rússneska manninum leið betur daginn eftir, og næsta dag var hann enn hressari, og á þriðja degi var hann svo frískur, að hann gat geng- ið úi í skrúðgarðinn. Tágarstóll var settur þangað handa honum, og sat

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.