Vorið - 01.06.1956, Page 38

Vorið - 01.06.1956, Page 38
76 VORltí Hver er MAÐURINN? GETRAUN. Hér kemur enn ofurlítil getraun handa lesendum. í eftirfarandi köflum er eittlivert orð eða atriði, sem minnir að einhverju levti á þann, sem getraunin er um. Það er 'þjóðkunnur maður (eða kona), senr lifað hefur á þessari öld. en er nú látinn. 1. Fátæk hjón voru að skoða sig um í musterinu mikla í Jerúsalem, og með þeim ungur sonur þeirra. Það var yndisfagur drengur. Hárið lá í mjúkum lokkum og augun hlikuðu eins og stjörnur. . . . En drengurinn litli, sem aðeins var tólf ára, gaf þessu lítinn gaum. Móðir hans sagði honum, að þetta, er þau voru að sýna honum, væri hið merkasta, sem til væri í víðri veröld. Og hún sagði 'honum, að víst mundi þess langt að bíða, að hann fengi að sjá aftur s'líka hluti. í Nazaret, þar sem ]rau áttu heima, væri ekki annað að sjá en gráar göt- urnar. (í musterinu eftir Selmu Lagerlöfr.) 2. Hestarnir lötruðu fet fyrir fet eftir heiðinni. Bráðum hlaut að sjást niður í dalinn. Hann hlakkaði til að koma heim eftir margra ára fjarveru, en hún kveið fyrir. Hún var að hugsa urn, hvernig henni rnundi semja við tengdamóður sína. Hér var allt svo nýtt og fram- andi fyrir henni. 3. Tryggur hvolpurinn, Tryggur greyið, teygðu tir löppunum; stúlkurnar eru að enda að mjólka úti í kvíunum. Þarna er pokinn og prikið mitt. en pottlokið? Upp við þii Og hnífurinn minn? Jú, hann hef ég á mér; þá held ég að allt sé til. (Smalastrákurinn eftir Gest.) 4. En þá er sveinninn var tvævet- ur, þá var hann almæltur og rann einn saman, sem fjögurra vetra gömul börn. Það var til tíðinda einn morgun, er Höskuldur var genginn út að sjá um bæ sinn. Veður var gott, skein sól og var lítt á loft komin. Hann heyrði manna- mál. Hann gekk þangað til, sem lækur fellur fyrir túnbrekkunni. Sá hann jrar tvo menn og kenndi. Var þar Óafur son hans og móðir hans. Fær liann þá skilið, að hún var eigi mállaus, því að hún talaði þá margt við sveininn. Síðan gekk Höskuldur að þeim og spyr hana að nafni, og kvað henni ekki

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.