Vorið - 01.06.1956, Side 40

Vorið - 01.06.1956, Side 40
78 VORlt) Dægradvöl Sá bundni. Segðu félaga þínum, að þú getir bund- ið hann þannig með tveimur snæris- spottum, að hann geti ekki losað sig, þótt skæri séu lögð fyrir framan hann. Segðu honum, að hann megi losa sig með þvi að klippa sundur snærið. Ef vinur þinn fellst á þessa tilraun, þá verður þú að sýna honum, hvernig þú gerir það. Fyrst biður þú hann að beygja knén. Því næst bindur þú saman vinstri fótinn og vinstri úlnliðinn, og síðan hægri úln- liðinn við hægri fótinn. Legg síðan skær- in fyrir framan hann og seg honum að klippa snærið sundur. En hann kemst þá að því, að hann getur ekki hreyft sig, og þegar hann reynir að taka snærið upp, dettur hann áreiðanlega áfram og er al- gjörlega ósjálfbjarga. Reikningsþraut,- Maður nokkur fékk 100 kr. að láni hjá kunningja sínum og þeim kom sam- an um, að greiðslu skyldi hagað þannig: Hann skyldi greiða 50 kr. í næstu viku, eða helminginn af skuldinni, í vikunni þar á eftir skyldi hann greiða 25 kr., eða helminginn af skuldinni, og þannig skyldi hann alltaf hverja viku greiða helminginn af skuldinni. Hvenær hafði hann lokið við að greiða alla skuldina? Hvaða naln á hljóðfæti er eins, hvort sem það er lesið aftur á bak eða áfram? DÝR HÁLSFESTI. Ráðning: Hann varð að greiða hálsfestina með 1099511627775 eldspýtum. Ef gert er ráð fyrir að 1000 eldspýtur kosti eina krónu, hefur verksmiðjueigandinn orðið að greiða 109951162778 kr. fyrir fest- ina. GÁTA. Maður nokkur á tening, sem er 4 sm. á hvern veg. Nú málar hann teninginn grænan, en sagar hann því næst niður í 64 minni teninga. Hvernig voru þessir 64 teningar litr? NAFNAGÁTUR. xxxxnxs óxxxxr xaxxxxux Axxxxð xxxuxxxr Hér eru falin 5 karlmannsnöfn og mynda upphafsstafirnir 6. nafnið. xrxxxúxxx xxxa xaxxx Axxx Hér eru falin 4 kvenmannsnöfn og mynda upphafsstafirnir 5. nafnið. o- M. G.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.