Vorið - 01.06.1973, Blaðsíða 7
SLADE
Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að
liljómsveitina SLADE þekki hvert manns-
barn á Islandi. Þeirra frægðarferill liófst
iyrir tæpu ári síðan með laginu MAMA
^E’RE ALL CRASY NOW, sem þýðir
Aðal söngvarinn Naddy.
PISTILL
(mamma, við erum ðll orðin snarvitlaus).
Þó að eitt ár sé síðan hljómsveitin varð
heimsfræg,er þetta 7 ára gömul hljómsveit.
Strákarnir hyrjuðu með því að spila há-
þróaða framúrstefnu-mússik á fínum
klúbbum í smóking-fötum, en ekkert dugði.
Þá reyndu þeir að raka sig sköllótta. Það
reyndist frekar óvinsælt. Loksins gerðust
þeir rokkarar. Þannig eru þeir í dag. Ég
ætla bara að taka lítið dæmi um hvað þeir
félagar eru vinsælir. Nýjasta litla plat-
an, sem heitir CUM ON FEEL THE
NOIZE, seldist í 300.000 eintökum fyrstu
söluvikuna, eða um 50.000 á dag. í 3 vikur
var þetta lag í efsta sæti í Englandi.
Skorað var á borgarstjórann í Wolver-
hamton, hr. Arthur Storer, að borghi
heiðraði þessa frægu pophljómsveit á ein-
livern veglegan hátt, en piltarnir eru ein-
mitt frá umræddri borg. Askorandi segir:
„Eins og þú hefur sjálfur orðið var við,
hafa piltarnir aukið gjaldeyri borgarinnar
um mun, auk þess að vera gangandi aug-
lýsing fyrir Wolverhampton. Alla vega
vita allir að ef Úlfarnir (knattspyrnulið-
ið) vinna pikarinn, yrði þeim launað svo
um munaði.“
Yið skulum vona að SLADE eigi eftir
að gera það gott í framtíðinni og óskum
þeim til hamingju með þann titil, sem þeir
hafa krækt sér í. _ „
Þættinum bárust tvö bréf frá ungum stúlkum.
Önnur vill fá eiuliverja vitneskju um Bíó tríóiÖ,
en þar sem ég fékk bréfiö of seint fyrir þennan
þátt, ákvaö ég áö skrifa grein um Bíó tríóið í
næsta blaði. Hin baö um myndir af innlendum og
frli. á bls. 33
VOR|fi
7