Vorið - 01.06.1973, Blaðsíða 16

Vorið - 01.06.1973, Blaðsíða 16
F&u@siés)gi»&ái‘,rw«Ki!!i Umsjón: Þorgeir Logi Arnason H K* SVIFFLUGA Svifflugumódel af þessari gerð er mjög auðvelt að smíða, vegna þess að þau eru úr massífum balsa (ekki rif í vængjum eða uppbyggður skrokkur) og þær fljúga mjög auðveldlega, nokkurnveginn rétt. Þessvegna eru þau tilvalin fyrir byrjendur. Erlendis er keppt í að kasta svifflugum af þessari gerð og þá er allt erfiðara, flugurnar verða þá að vera mjög nákvæmlega smíð- aðar og það er margra daga verk að stilla (trimma) þær þannig að þær fljúgi eins vel og hægt er. Keppnismenn æfa oft kast- kraftinn með því að henda bolta 1—2 tíma á dag. Góð fluga á að geta verið 1 mín. á lofti í kyrru lofti og miklu lengur ef upp- streymi er. Verkfœri Iiakvélablað (með egg aðeins öðru meg- in), títuprjónar, penni, tommustokkur og sandpappír. S míð in Byrjið á því að draga alla hluta svif- flugunnar upp á smjörpappír. Yæng og hæðarstýri þannig að fyrst er dreginn upji helmingurinn, síðan er pappírnum velt við þannig að samskeytin lendi saman og hinn helmingurinn dreginn upp eftir sömu lín- um. Næst verðið þið að líma 3/16 x * Handkastað. balsa renning við 3/16 x 3" balsaplötu til að ná breiddinni á vængnum. Síðan festið þið teiknmguna á balsann með títuprjón- um og hafið kalkipappír á milli, og færið þannig teikningmia yfir á balsann (passið að liafa rétta þykkt á hverjum lilut, eins og stendur á teikningunni). Balsaviðurinn fæst í -Tómstundahúsinu, Laugavegi 164 og er hægt að fá hann sendan með póstkröfu um land allt. Nú þarf að skera út skrokk, væng, hæð- arstýri og hliðarstýri úr balsaplötunum, til þess er bezt að nota raltvélablað eins og notuð eru til að hreinsa með rúður (með einni egg) eða balsahníf. Bezt er að skera örlítið utan við línurnar og jafna síðan niður með sandpappír. Næst er vængurinn pússaður niður í rétta lögun (prófíl) eins og sýnt er á teikningunni. Síðan er hann skorinn í sundur í miðju og við báða vængenda, þar sem þeir lyftast, pússið síðan með sand- pappír þar sem skorið var, þannig að vængurinn falli vel saman þegar búið er að setja balsakubb 1*4" á hæð imdir anu- an endann, límið síðan saman með pví að setja fyrst þunnt lag af lími í sárin og látið þorna vel. Setjið síðan annað lag og leggið endana saman með balsakubbinn undir öðrum endanum og látið þorna vel. Endurtakið þetta með vængendana. Næst. er skrokkurinn pússaður niður eins og teikningin sýnir, gerð smá-rauf þar sem 16 V O P. I Ð

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.