Vorið - 01.06.1973, Blaðsíða 23

Vorið - 01.06.1973, Blaðsíða 23
GÖNGUFERÐIR ^’ú þegar sumarið er komið og skólinn úti fýsir marga að leggja af stað í göngu- ferðir út um liolt og hœðir. Rér er birtur kafli úr bókinni Útilíf, liand- óók í ferðamennsku, sem gefin var út fyrir nokkrum árum. Greinin er eftir Jón Odd- Qeir Jónsson. Með mal um öxl og staf í hönd stefnir Songumaðurinn frá skarkala bæjarins. ®nginn er eins óháður og hann. — Að ^aki eru annir hins hversdagslega lífs, en framundan frelsi og fjölbreytni náttúr- ^mnar. Gröngumaðurinn nýtur betur landslags- ms en sá, er notar hraðskreið farartæki. Hann kynnist staðháttum og á auðvelt með rata aftur, er liann kemur síðar á þær slóðir, sem hann fer um.. Gönguför um nágrenni þess staðar, sem oiaður býr, er ekki síður ánægjuleg en SÖnguferð um fjöll og firnindi. Ánægja 'itivistarinnar er ekki fólgin í því að arka Seia lengst á skemstum tíma, heldur í ^ 1111, að veita því athygli, sem fyrir augun r’ svo sem jurtum, steinum og dýrum, um og litum fjallanna, bæjum og þeim, Sem t)ar eiga bólfestu. ®á, sem sér til gainans fer gangandi um 0lunnar slóðir með landabréf og áttavita leiðarvísi eingöngu, hefur öðlazt ley.nslu, sem síðar má að gagni koma á erfiðari ferðalögum. Sé gengið í lieilan dag eða nokkra daga kjlm l'leytt, er liæfileg dagleið talin um 30 Vo R I Ð í upphafi ferðarinnar skal gengið ró- lega, en þegar á líður er hóflegt að ganga um 5 km. á klukkustund. Miklir göngu- garpar geta aðvitað farið hraðar yfir, en fyrir þá, sem ekki eru þjálfaðir göngu- menn, er nefnd dagleið og gönguhraði mjög hæfilegur samkvæmt reynslunni, einkum þegar bera þarf farangur allan á bakinu. Göngumaðurinn á að bera sig frjáls- mannlega, ganga ekki hokinn, rétta úr hnjáliðunum og anda reglulega gegnum nefið en eldd munninn. Ekki er ráðlegt að ganga í margar klukkustmidir samfleytt án hvíldar, það veldur ofþreytu. Gott er að halda þeirri venju, að hvíla sig í 5—10 mínútur á klukkustundar fresti. Skal þá sezt niður og bakpokanum létt af sér, en ekki þó átt við að borða eða drekka eftir livern áfanga, heldur ætla sér fáar máltíðir á dag og livíla sig þá rækilega. Sæki þorsti á göngu- manninn, skal lítið drukkið í senn, því of mikið vatnsþamb veldur máttleysi. Þegar komið er á áfangastað að kveldi, skal strax byrjað á því að tjalda og matreiða. Sé um 23

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.