Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.02.1909, Qupperneq 10

Bjarmi - 01.02.1909, Qupperneq 10
18 B J A H M I því að missa Palestínu, þvf bæði fengu þeir þaðan vin og olíu, og svo lágu verzlunarleiðir þeirra um það land bæði til Litlu-Asíu og aust- urlandanna. En nú var þeim selt- ur stóllinn fyrir dyrnar. Þetta gerð- ist einkum á velmegunaröld ísraels- manna, þeirri er hótst eftir daga dómarans, Ehud (80 ár); en sú öld var einmitt Imignunartímabil hins egipzka rikis. Bréfin sýna i fám orðum, hvernig ísraelsmenn unnu smám saman þær borgir, sem óunnar voru, þá er Jó- súa dó. Leikurinn berst frain eftir öldunum, svo að ýmsir verða und- ir, þangað til Davið konungur kem- ur til sögunnar; en svo langt nær þó eigi sagan í þessum bréfum. Hetíta-ríkið í Litlu-Asíu. Hebrea-ríkið á Sýrlandi, sem Tell- el-Amarna-bréfin tala um, varð ekki langælt að því sinni. Hebrear voru fámennir þar og þeim kom lítill liðsaíli heiman að frá Kanaanslandi; var landið því fengið innlendum höfðingjum til forráða, svo að ríkið vantaði verulega fastan grundvöll. Óðara en það var á fól komið réð- ust á það herskáar þjóðir norðan úr Litlu-Asíu og austan að, er nefnd- ist Hetítar og Mitannitar. Azirú, konungur Hehrearikisins, neyðist loks til að fara á fund Faraós og gera honum reikningsskap athafna sinna. Tell-el-Amarna-hréfm enda á þvi, að sonur Azirús biður Faraó að senda Azirú heim aftur. Er af þessu auðsætt, að Hebrea-konungur- inn hefir leitað ásjár Faraós, þegar að honum krepti, og hafði hann þó á blómaárum rikisins fengið gull og silfur hjá Faraó. En nú gat Faraó gert honum þá kosti, sem hann vildi. Þess er eigi gelið í bréfunum, hvort Faraó svaraði beiðninni um heimsendingu Azirús. En fyrir skemstu hefir fundist annað skjalasafn i Litlu-Asiu, ritað á leirtöflur. Það fanst í rústunum af liöfuðborg Hetítanna, sem Bogh- azkoj hefir heitið, 5 dagleiðir fyrir sunnan borgina Angora. Það er rík- jsskjalasafn Hetíla-konunga. Þar sést, að Helítar hafa ráðið mestallri Litlu-Asíu nm 1400 f. Kr. Um sömu irundir var landið þar fyrir sunn- an og austan, einkum Mesópólamía, orðið að einu ríki, sem hét Mitannia, Fyrir austan það ríki lá Assyría, og loks lá Babýlonia þar fyrir sunnan og austan. Af Tell-el-Amarna-bréfunum sést, að það voru einkum Hetílar, sem vol'ðu yfir Hebrearíkinu á Sýrlandi. Azírú kvartar mjög undan þeim. Undarlegt er það, hvernig hin ný- fundnu Helíta-biéf taka þar við, sem Tell-el-Amarna-bréfin bætta. Hetitar hafa verið af hinum svo nefnda indo-evrópeiska þjóðbálki, sem fiestar þjóðir í Norðurálfunni eiga uppruna sinn til að rekja. Það má sjá á málinuá bréfunum og þektu menn það eigi áður. Mál Mitann- ita heflr lika verið náskylt því. Þeir hafa og haft likan átrúnað og Ind- verjar i fornöld. Þessi fundur nnin því skýra mjög fiumsögu trúar- bragðanna i íran (Persíu) og á Ind- landi, og það nnm i ljós koma, eins og áður hefir verið til getið, að þau séu hvorutveggju af sama stofni. Bréfm eru merkileg að þvi, að til- drög ýmislegra sögulegra viðhurða í þeim eru þar rakin 50—100 ár til baka og má af því sjá greinilegar en annars viðskifti þessarra forn- aldarþjóða. Bréfin segja frá 8 Hetitakonung- um. Sulibiluliuma, konungur Hetíta

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.