Bjarmi - 01.12.1919, Síða 1
BJARMI
KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XIII. árg.
Reykjavík, 1. des. 1919.
23.-24. tbl.
Sú pjóð, sem gengur i mgrkri, sjer mikið Ijós. Jes. 9, 2.
Á jólunum.
Frelsari heimsins fæddur er
fagnið heimar lofsöngs hljómi.
Alt, hvað lifs um foldu fer,
föðursins kærleiksundur rómi.
Ljómar á himni ijós og fagur
lifandi manna frelsisdagur.
G. Th.
I.
Hátið barnanna, vertu velkomin!
Velkomin með Ijós í myrkrið, gleði
i hrygð, vonir í kvíða, gjaíir í fátækt!
Drottinn gefi oss öllum gleðileg jól.
Barnið gott! Loksins eru þau kom-
in biessnð jófin, sem þu erl búinn að
hlakka lil við og við síðan um ára-
mót í fyrra. Jeg vona að þú sjert nú
i góðu skapi, og gjafirnar, Ijósin og
öll viðhöfnin sje þjer verulegt gleði-
efni. Pú munt vera búinn að þakka
pabba og mömmu og öllum vinum
þínum fyrir jólagjafirnar og jólaósk-
trnar, en mundu eftir að þakka Jesú
fyrst og fremst fyrir það alt. Við heíð-
um ekki þekt mikla jólagleði, ef Jes-
«s hefði skorast undan að koma i
þennan lieim. Pess vegna mátlu ekki
syngja jólasálmana í hugsunarleysi;
hugsaðu um efni þeirra, spurðu vini
Þína um það sem þú skilur ekki
* Þeim, og reyndu að þakka Guði af
nllu hjarta þegar þú syngur »hallelúja«
1 sálminum: »í Betlehem er barn oss
iáett«.
f’ú mátt vera viss urn að Jesús er
hjá þjer, þótt þú sjáir hann ekki;
hann les hugsanir þínar, og ef þú
þakkar honunr fyrir jólin og vilt gefa
honum litla hjartað þilt i jólagjöf,
þá klappar hann á kollinn þinn og
gefur þjer betri gjafir en þú kant að
biðja um ennþá. Það getur vel verið
að hann minni þig á eilthvert fátækt
barn, sem þú gætir glalt, eða á ein-
hvern, sem þú gætir verið betri við
en þú hefir verið að undanförnu. Og
ef þú gerir lafarlaust það sem Jesús
minnir þig á, þá vex jólagleðin þín
og endist þjer miklu lengur en jóla-
dagana. Jesús verður hjá þjer, þólt
jólin fari, og því oflar sem þú hugs-
ar um hann og talar við hann, því
betur endist jólagleðin þín. Vinir Jesú
eiga jólagleði alla æfi. í þeim höp
er þjer best að vera.
II.
Æs/ca, bíð hjer eina stund,
á þig kallar Droltinn sjálfur.
Jóiin eiga erindi til þín, ungi sveinn
og unga mær, engu síður en til barn-
anna.
Konungur lífsins kemur hjer til sala
kveður til fylgdar börnin jarðardala;
gleði og frið hann gefur pjer að launum,
greiðir hann veg pinn fram úr öllum
raunum.
Það eru engin innantóm orð en
margreyndur sannleiki. Hann veitir
margfalt ríkari og varanlegri ánægju
vinuin sínum, en svokallaðar »jóla-
skemtanir« veita, og þú ert óþarílega
fátækur, ef þú þekkir ekki aðra jóla-