Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1924, Síða 14

Bjarmi - 01.10.1924, Síða 14
170 BJAHMI og úr þeim hóp 'komu sjálfboðaliðar við kristniboðsstarf bæði norður við Yorkhöfða og austur við Angmassalik. Sáímakveðskapur óx stórum og end- urskapaði tungu þeirra, en jafnframt vaknaði öflug þjóðernisalda meðal trúaðra manna, sem sumstaðar hafði óholl áhrif á trúarvakninguna að frá- sögn Dana. — Margir ljetu »berast með«, eins og gengur, þegar stormur fer um land, og voru þó óbreyttir í hjarta, en 17 liðin ár hafa þó fullsannað að hinir voru fleiri, sem voru i raun og veru orðnir nýir menn. Hreyfingin er köll- uð á grænlensku pekatigingniat, er aðalstjórn eða miðstöð hennar enn i Góðvon og gefur hún út blaðið Ekérsautinguít (»Litla vakningablað- ið«). Að lokum skal hjer skýrt frá nokkr- um tölum frá skóla og kirkjuhaldi Grænlendinga á »Vesturströndinni«. í árslok 1922 voru ibúarnir 13602, hafði fjölgað um 128 það ár. Bygðir eða hverfi voru 175, af þeim voru 47 með yfir 100 íbúa, 53 frá 50 til 100 og 75 með færri en 50. Árið 1910 var tólkstalan alls 12486, bygðir 183 og ekki nema 39 með yfir 100 manns. Þar sem annarstaðar flytja menn sig úr fámenninu. í byrjun 19. aldar voru Grænlendingar um 6000. — Fjölmenn- ustu bygðir — verslunarstaður og sveit umhverfis — er »Sykurtoppur«, (509), »næst er »Júlíönuvon« (433), »Góðvon« (388) og »Jakobshöfn« (314). Samkvæmt lögum frá 1905 er Vest- urströndin 2 prófastsdæmi og 10 prestaköll, eru því sum þeirra afar- víðlend, en einnig ætlast til að þar sjeu fastir aðstoðarprestar, eru þeir 3 nú. Auk þess eru barnakennurum eða fræðurunum ælluð ýms prests- verk í afskeklum veiðistöðvum. Fræð- arar þessir eru nú 187, og hefir þriðj- ungur þeirra fengið 3ja ára mentun við kennaraskólann í Góðvon, annar þriðjungur er »sjálfmentaður«, og kennir aðallega lestur og skrift í heimahúsum í fámennum veiðistöðv- um. Hinir hafa notið kenslu einn eða tvo vetur hjá einhverjum presti. Sjer- stök skólahús eru 52 alls, en í 36 stöð- um er kent í kirkju eða á kirkjulofti. Skólabörnin voru 2936, skrift og reikning lærðu þau nær öll, 1943 lærðu biblíusögur, 1468 kverið og um 1150 lærðu mannkynssögu, landafræði og náttúrufræði. 280 lærðu dönsku í Syðri-bygðum, — hún er valfrjáls. Sjeu þessar tölur bornar saman við skýrsl- ur 1910, er framförin meiri en lítil. Lengi vel voru allir prestarnir dansk- ir og urðu árum saman að láta fræð- ara túlka ræður sinar. Fyrsti Græn- lendingur, sem tók prestvlgslu var vígður 1874 og var 34 prestur í nyista prestakallinu, við Upernivík. Nú eru allir prestarnir af grænlensk- um ættum nema tveir. í fjölmennasta prestakallinu, kent við Egede, eru 1533 manns og 3 kirkjur, en í því fámennasta, Góð- höfn, 358. — í Góðvonarprestakalli (1246 manns), eru 7 kirkjur og 2 prestar. — Alls eru kirkjurnar 50. Árið 1922 dóu 390, en 524 fædd- ust, voru ein 30 þeirra barna óskil- getin, og þarf samkvæmt því ekki að skrafa mikið um óskírlífið þar f landi. — Altarisgestir voru afarmargir, frá 59 til 146 af hverju hundraði, og að meðaltali fóru 87°/o allra Vestur-Græn- lendinga til altaris. Auðvitað eru þetta »ekki nema tölur«, — en spá vor er, að þeir sem lítið mark þykjast taka á íslenskum tölum um messufjölda og altarisgesti, yrðu laundrjúgir yfir trú- rækninni, ef vorar skýrslur ættu svip- aðar tölur.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.