Bjarmi - 01.10.1971, Side 8
A KRISTILEGU ÞINGI
I ÞRÁNDHEIMI
Heimatrúboðið norska hélt
þing sitt þar þessa daga, en slík
þing eru haldin á þriggja ára
fresti.
Á þessu þingi áttu sæti um
500 kjörnir fulltrúar, og fjöldi
áhugamanna sótti það að auki.
Thor With, formaður sam-
takanna, minntist í upphafs-
ávarpi ytra borðs þessarar miklu
hreyfingar með þúsundir félags-
deilda, hundruð samkomuhúsa,
nálega tuttugu æskulýðs- og
annarra kristilegra skóla, sum-
arbúðahótelreksturs og margra
annarra starfsgreina.
Formaðurinn spurði siðan:
,,Er þá ekki allt fengið?“
Og hann svaraði: Nei, og aft-
ur nei.
1 okkur brennur alltof lítið af
þeim eldi, sem Jesús er kominn
til að varpa á jörðina. Kraftur
Guðs Anda er svo lítið áberandi
í starfi okkar. Neyð náungans
liggur okkur ekki nærri nógu
þungt á hjarta."
I Guðs ríki er tilgangslaust
fyrir okkur mennina að ætla
fyrst að skipuleggja og segja
svo: „Verði líf í þessu öllu sam-
an.“ Það er að fara öfugt að.
Við verðum að fara veg auð-
mýktarinnar og biðja Guð: Gef
þú líf, sendu okkur þinn Heil-
aga góða Anda og skapa úr okk-
ur þjóna, sem þú getur notað.
Við ættum að vera veigamik-
ill þáttur þeirra möguleika, sem
Guð hefur til að veita kirkju
okkar og þjóð blessun sína.
Hve miklu af mætti anda síns
getur Guð miðlað í gegnum okk-
ar líf? Svarið er aðeins einu
háð, en það er persónuleg af-
staða okkar til Andans, sem er
talsmaður Jesú Krists.
Það er ekki auðvelt að ganga
framhjá honum. Hann einn
miðlar okkur eilífu lífi. Án hans
er vöxtur Guðs ríkis óhugsandi
okkar á meðal.
I Noregi er nýlokið 100 ára
hátíðarhöldum til heiðurs Hans
Nielsen Hauge. Formaður
heimatrúboðsins sagði, að þeir
töluðu oft um sinn Hauge-arf,
og það væri því ekki óviðeig-
andi að minnast setningar
þeirrar, sem staðið hefði sem
einkunnarorð yfir lifi þessa
mikilmennis. „Ég hef svarið
Guðs Anda hlýðni, og hann hef-
ur hjálpað mér til að reynast
þessu heiti mínu trúr.“ Getum
við gert þessi orð að okkar í
dag? Höfum við svarið Guðs
Anda hlýðni? Vitum við, hvað
í því felst að vera Guðs Anda
hlýðin?
Hauge skildi það sem hlýðni
við Guðs orð.
Það las hann, hugleiddi og
notaði með bæn um leiðsögn
Guðs Anda. Líf hans bar engan
blæ af neinum yfir-andlegheit-
um, heldur einkenndist af raun-
særri hversdagshlýðni við Krist
og boðskap hans, svo staðfastri,
að hún brást ekki, þó að skamm-
sýnir samferðamenn sviptu
hann heilsu, fé og frelsi og vörp-
uðu honum í fangelsi langtím-
um saman. Og þess er vert að
minnast, að þá blessunarbylgju,
sem hann bar með sér um Nor-
eg, gat engin andstaða stöðvað,
þó að hún væri engum skipu-
lögðum samtökum studd.
Hauge var Guðs Anda hlýð-
inn og aðrir fylgdu í fótspor
hans i sömu trúmennsku við
Guðs orð.
Það minnir okkur á, að eng-
inn nema Guðs Andi getur opn-
að augu mannsins svo, að hann
sjái aðra menn með augum
Krists eða vekur meðaumkun
hans og áhuga fyrir tímanlegu
og eilífu frelsi náungans. Hlýðni
við Guðs orð knýr þess vegna
strax næsta skrefið: Far þú og
hjálpa náunga þínum til Krists.
Skortir okkur hlýðni?
Hættir okkur við að reyna að
flytja hana af eigin herðum yfir
á félagssamtökin? Þau geta
naumast verið Guðs Anda
hlýðnari en meðlimirnir eru
hver fyrir sig. Ábyrgðin hvílir
á hverju einstöku okkar. Hlýðn-
ina hafði Hans N. Hauge lært
af Guðs orði. Hún var þess
vegna fyrst og fremst biblíu-
leg. Páll segir, að fyrir Jesúm
Krist höfum vér öðlazt náð til
að „vekja hlýðni við trúna“
(Róm. 1.5). Engin afleiðing trú-
arinnar á Krist er eðlilegri en
sú hlýðnisafstaða, sem segir:
„Hér er ég, vilt þú nota mig“.
1 dag er mikill skortur á leið-
togum í kristilegu starfi. Hvers
vegna? Óhætt er að fullyrða, að
Guðs Heilagi Andi kallar menn
sem fyrr og gerir þá hæfa til
starfsins. Það liggur því nærri
að álykta, að einhverjir óhlýðn-
ist kallinu eða leiti alls ekki
leiðsagnar Guðs Anda til þess
að geta innt þjónustuna af
hendi. Nýlega las ég í þýzku
blaði, að kirkjan þar í landi ætti
við mikil vandamál að etja, sem
hún virtist ekki ráða við. Það
kom greinilega fram, að vand-
inn væri ekki efnahagslegur,
heldur stafaði hann af manna
skorti og óskýrleika í boðun-
inni.
Skortur þekkingar á Heilög-
8 BJAllMI