Bjarmi - 01.10.1971, Síða 11
EINS OG LAUSLEGA er minnzt á í frásögn-
inni af kveðjusamkomunni fyrir Benedikt Arn-
kelsson, var þar skýrt frá því, að ung hjón hefðu
boðið sig fram til kristniboðsstarfs í Konsó fyrir
Samband ísl. kristniboðsfélaga. Voru þau kynnt
fyrir samkomugestum. Eru þau hér með einnig
kynnt fyrir þeim lesendum „Bjarma“, sem utan-
bæjar búa, og öðrum, sem gátu ekki verið á
samkomunni.
JÓNAS ÞÓR ÞÓRISSON er fæddur á Akureyri.
Hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Islands
s.l. vor og var auk þess á framhaldsnámskeiði
fyrir kennara í sérgreinum. Hann dvaldist eitt ár
í Bandaríkjunum og gekk þar á svonefndan
„High School“. Þá hefur hann og verið á eins
árs prédikaranámskeiði í Osló og auk þess verið
á þriggja mánaða námskeiði á Bibliuskólanum
á Fjellhaug. Getur hann því undirbúningsmennt-
unar vegna farið til starfs í Konsó, en eins og
kristniboðsvinum mun kunnugt, þurfti í fyrra-
vetur að fá lánaða kennslukonu hjá norska
Nýir sjálfbodaliÖar
bœtast kristniboÖinu
kristniboðinu, þar sem skólastjóra vantaði þar.
Er sami háttur einnig hafður á í vetur.
INGIBJÖRG INGVARSDÓTTIR, kona Jónas-
ar, lýkur kennaraprófi næsta vor. Hún er dóttir
eins af mætustu félögum, sem K.F.U.M. í Reykja-
vík hefur átt, Ingvars heitins Ámasonar, sem
einnig var einn af stofnendum „Kristniboðsfélags
karla“. Þau Ingibjörg og Jónas eiga eina dóttur,
Huldu Björg.
Þessi liðsauki frá þessum sjálfboðaliðum kem-
um sér einstaklega vel, þegar haft er í huga, að
næsta sumar koma þau Katrín Guðlaugsdóttir
og Gísli Arnkelsson, kristniboðar í Konsó, heim
í hvíldarleyfi.
Jónas Þórisson hefur verið ráðinn starfsmaður
á „Aðalskrifstofunni” — sameiginlegri fyrir
Kristniboðssambandið, starf KFUM og KFUK
o. fl„ svo sem kunnugt er, en auk þess mun hann
taka þátt í ferðastarfi og samkomuhöldum, eftir
því sem aðstæður leyfa.
Þessi nýi liðsauki er mikið þakkarefni, og
hvetjum vér vini kristniboðsins til þess að minn-
ast þeirra hjóna trúlega í bænum sinum.
BJABMI 11