Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1971, Síða 12

Bjarmi - 01.10.1971, Síða 12
Frá starfsmönnum í Eþíópíu ^ ^ ^ Bnnedikt Jasonarson fór frá Addis Abéba til Os- lóar þann 16. október s.l. Eins og Tcunnugt er hefur Margrét kona hans dválizt í Noregi síðan snemma í maí. Ráðgert er, að Benedikt starfi sem prédikari á vegum Norska lútherska kristni- boðssambandsins. Litlar sem engar líkur eru táldar á þvi, að þau geti aftur Jvorfið til starfa í Eþíópíu. Góðar frétt- ir og uppörvandi hafa borizt frá þeim frá Noregi. D <j h t\ Ingunn Gísladóttir, hjíikrunarkona, var um tíma undir lœknishendi. Dróst að hún fœri út til starfa, eftir síðasta hvíldarleyfi, eins og ýmsir kristniboðsvinir munu minnast. Var um blóðsjúk- dóm að ræða. Hún var fyrir skömmu til rannsóknar hjá lœknunum við sjúkrahúsið í Irgálem og segir niðurstöður þeirra hafa verið góðar og sér líði vél. BRÉF FRA INGUNNI Kóleru- faraldur r l Konsó Konsó, 1. september 1971. „ ... Hér hefur komið upp kólerufaraldur. Fyrsta tilfellið kom 5. ágúst, en alls höfum við haft 34 sjúklinga fram að þessu. Tveir hafa dáið, en það er staðreynd, að ef þeir fá vökva i æð nógu fljótt, geta þeir jafnvel farið heim til sín næsta dag. Þessi faraldur byrjaði, þegar lagt var af stað á mótið í Gidole. Ég ætlaði að ,,drífa“ mig með og var farin að hlakka öll ósköp til, en að sjálfsögðu sat ég heima. Það kom sér vel, því við feng- um tvær fæðingarkonur mitt í kólerunni. Nóg um það. Ég er frísk og allt er í lagi. Bólusetning og boðun. Við fórum niður til Saba Meda í gær. Við fréttum, að 13 manns hefðu dáið úr kóleru. Við bólusettum 450 manns. Gísli og Katrín unnu eins og herforingjar. Þú hefðir átt að sjá þau. Það var reglulega hressandi fyrir mig að fá þessa ferð, þótt það hljómi ef til vill undarlega í eyrum margra. Gísli prédikaði á flestum stöðunum, og ég var auðvitað mjög ánægð yfir því. Ef ég fer svona út í hérað, er ég aldrei ánægð nema það sé prédikað. Og Gísli prédikaði eins og hann væri ,,nýfrelsaður“, eins og ég sagði við hann. Það var komið með eina konu, sem var mjög aðframkomin. Við gáfum henni í æð, og gekk nú heldur seint að komast í æð- ina, en að lokum tókst það.Við hengdum plastpokana upp í tré, og þannig fékk hún vökvann. Hún lifnaði alveg furðu fljótt við — og var hún tekin með í bílnum heim. Það var komið með einn kólerusjúkling í dag hingað á stöðina, þann 34. öllum hér liður vel. Við erum þakklát fyrir ykkur, sem biðj- ið fyrir okkur. Kveðja. Sálm. 121. lngunn. 12 BJARMI

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.