Bjarmi - 01.10.1971, Page 13
„Og sjá, stjarnan, sem þeir höfðu séð
auslur frá, fór fyrir þeim, þar til hún
staðnæmdist þar yfir, sem barnið var.“
K veðjusamkoma
og
liðsauki
Sunnudaginn 19. september s.l. áttu kristniboðsvinir í Reykja-
vik óvenjulega hátíðar- og gleðistund. Auglýst hafði verið kveðju-
samkoma fyrir Benedikt Arnkelsson, guðfræðing, þar eð tilkynn-
ing hafið borizt um landvistarleyfi fyrir hann í Eþíópíu. Gat
hann því þegar haldið af stað til starfs þess, sem honum er ætlað
við Biblíuskólann í Gidoie.
Ilcncdikf Arnkclsson
lagði af stað frá Reykjavík
20. sept. s.l. Fór hann fyrst
til Oslóar, en þar beið land-
vistarleyfið hans. Hann kom
til Addis Abeba 23. sept. og
hélt áleiðis til Konsó 25. sept.
Dvaldist hann þar fáeina
daga, en Bibliuskólinn í Gi-
dole, sem hann kennir við,
hófst i byrjun október.
'lúhanncs Alnfsson.
Kveðjusamkoman var haldin í húsi K.F.U.M. og K.F.U.K.
við Amtmannsstíg og var svo vel sótt, að þótt opnað væri inn í
svonefndan endasal og aukastólum bætt í salinn, urðu nokkrir
að vera frammi í ganginum.
Formaður Kristniboðssambandsins talaði fyrir hönd stjórnar
Sambandsins og hafði sem grundvöll hugleiðingar sinnar og
kveðjuorða heimsókn Jesú til systranna Mörtu og Maríu í Betaníu.
Benedikt Arnkelsson talaði því næst og lagði í ræðu sinni
ríka áherzlu á forréttindi og skyldu þess að starfa fyrir Drottin
og málefni hans. Þá ræddi hann og um köllunina, styrk þess fyrir
starfsmanninn að vita sig ekki hafa fundið upp á starfssviði sínu
sjálfur, heldur hafa fengið köllun frá Drottni og ytri köllun frá
réttum aðilum. Bað hann kristniboðsvini að minnast sín trúfast-
lega í bænum sínum eins og annarra, sem stöi’fuðu á kristniboðs-
stöðvunum.
Að loknu máli Benedikts og söng á eftir, gerðist sá gleðilegi
atburður, að kynnt voru fyrir samkomunni ung hjón, sem boðið
hafa sig fram til kristniboðsstarfs. Er nánar frá því sagt á öðr-
um stað í blaðinu.
Frk. Helga Magnúsdóttir, kennari, söng einsöng á samkom-
unni og átti það þátt í að setja hátíðarblæ á stundina.
1 sambandi við samkomuna gáfust kristniboðinu rúmlega kr.
84.000,00.
lœknir, og kona hans, koma
heim í hvíldarleyfi næsta vor.
Munu þau sennilega koma
um miðjan maí. Vegna sér-
stakra aðstæðna verður
heimsókn þeirra styttri en
vant er, eða aðeins þrír mán-
uðir í stað rúmlega árs.
^ ^ ^
I*akkarcfni.
Það er mikið þakkarefni,
að gott eitt er að frétta frá
fjölskyldu þeirra Katrinar og
Gisla í Konsó. Aðeins tvö
yngstu börnin eru heima.
Hin eru í skóla í Addis Abeba.
Nánari fréttir af starfinu í
Konsó eru í bréfum þeim frá
Katrínu og lngunni, sem birt-
ast annars staðar í þessu
tölublaði.
BJAUMI ia