Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1971, Síða 18

Bjarmi - 01.10.1971, Síða 18
Þegar ég hafði lokið máli mínu og annar hafði tekið við, kom ég auga á stúlkuna, sem ég hafði verið að tala við. Hún sat mjög aftarlega í salnum. Ég gladdist. Hún hafði þá komið. Andi Guðs var vafalaust að starfa í hjarta hennar. Hann hafði leitt mig til þess að tala við hana. Ég tók að biðja. Samkomunni var lokið og einn mannanna bauð þeim, sem þyrftu, að koma fram að bæna- bekknum. Ég sá stúlkuna spretta skyndiiega upp úr sæti sínu og hálfhlaupa inn eftir salnum. Hún tók að segja eitt- hvað, þagnaði svo, en hóf aftur máls. Henni var bersýnilega ekki Ijóst, að söfnuðurinn var orðinn forvitinn. „Ég hef heyrt tilboðið um að koma til Jesú, og ég vil koma. Haldið þið, að hann geti frels- að annan eins syndara og mig?“ spurði hún grátandi. „Ég ætlaði að varpa mér í fljótið í kvöld af því að ég gat ekki lengur haldið áfram að lifa því lífi, sem ég hefi lifað nú í fimm ár. Ég var í þann veginn að fleygja mér út í fljótið, þegar maðurinn þarna talaði við mig og bað mig að koma hingað. Ég vísaði honum algerlega á bug, og þá gaf hann mér þessa hvítu rós hérna. 1 fyrstu vildi ég ekki taka við henni — því hún var mér tákn nokkurs, sem ég hafði misst. En svo varð ég að taka við henni. Hún var alveg ná- kvæmlega eins og rósin, sem mamma gaf mér, þegar ég fór heiman að fyrir fimm árum. Þetta var uppáhaldsblómið hennar mömmu. Þegar ég tók við rósinni í kvöld, heyrði ég rödd hennar, er hún kvaddi mig: „Ellen, bam- ið mitt, nú ferðu frá henni móð- ur þinni, þvert gegn vilja henn- ar, og ætlar að halda út í heim, sem er syndugur — og ég er svo hrædd um, að þú ætlir þér að taka þátt í syndugu líferni. Þeg- ar þú ert komin langt í burtu héðan og sérð hvíta rós, minnstu þá kveðjugjafar móður þinnar. Ég mun ekki láta af dag Hendurnar hans pabba . . . Frh. af bls. 5: „Það er ekkert að fyrirgefa, drengurinn minn,“ sagði hann. „Guð blessi þig og geri þig heil- brigðan aftur.“ Hann rétti úr sér, en hann komst ekki frá rúminu. Bertil greip um vafðar hendur hans, bar þær að vörum sér og kyssti sárabindin. „Pabbi,“ sagði hann ákveð- inni röddu. „Pabbi, reyndu að spenna greipar og biddu fyrir mér. Ég þarf á því að halda, því ég vil alltaf kreppa hnefana og beita eigin kröftum. Pabbi, hendur þínar eru þær sterkustu, sem ég veit um.“ „En hendur Guðs eru þær máttugustu,“ sagði Óskar Karls- son hóglega. „Það eru þær, sem leiða okkur rétta leið í öllum aðstæðum lífsins." Þegar gömlu hjónin gengu heimleiðis, þögul vegna sælu þeirrar, sem ínni fyrir bjó, lá Bertil í stofu nr. 3 í sjúkrahús- inu með spenntar greipar ofan á sænginni og þakkaði Guði fyr- ir björgunina, sem hann hafði hlotið vegna handa föður síns og fyrir náð Guðs. Holger Ábyson. og nótt, eftir því sem ég get, að biðja þess, að Guð láti þig snúa aftur heim sem barnið hans.“ „Þessi hreina, hvíta rós lét mig átta mig í kvöld. Mér varð það ljóst, að ég varð að finna veginn, svo framarlega sem hann er mér opinn. Maðurinn þarna sagði, að það væri einn, sem vildi hjálpa mér. Haldið þið, að hann kæri sig um syndara af þeirri gerð, sem ég er?“ Það var ekki erfitt fyrir okk- úr að svara henni: „Komið nú og eigumst lög við, segir Drott- inn. Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó að þær réu rauð- ar sem purpuri, skulu þær verða sem ull.“ — „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son Lúthersk kirkja í Englandi ... Frh. af bls. 15: brezka þegna, búsetta og suma fædda í Englandi. Annars eru söfnuðirnir sérstæðir að gerð, svo fámennir sem þeir eru. 1 þessum hópi eru m. a. Indverj- ar, Austurlandabúar, Afríku- menn, Ástralíumenn, menn frá N.- og S.-Ameríku, auk Eng- lands, Skotlands, Irlands og Wales. Söfnuðum þessum þjóna þrír enskir og tveir amerískir prestar. Þótt meðlimir séu ekki marg- ir, hefur við rannsókn komið í ljós, að lútherski söfnuðurinn er efstur á lista hlutfallslega, þeg- ar um er að ræða kirkjusókn og fjárframlög, bæði til styrkt- ar eigin starfsemi og einnig al- þjóðasamtökum lúthersku kirkj- unnar o. fl. f ' Samband íslonzkra kristnlbodsfélaga Skrifstofa: Amtmannsstíg 2B - Reykjavík Símar 17536 og 13437 Pósthólf 651 Bréf og gjafir til starfs sambandsins sendist til skrifstofunnar ________________________________J sinn eingetinn til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Hún hlustaði með athygli, er við gáfum henni þessi og önnur orð frá Drottni, en svo fór hún allt í einu að hágráta og féll á kné. Hún reis á fætur sem ný sköpun í Kristi Jesú. Fyrsta ósk hennar var að fá að fara heim til móður sinnar. Árin liðu, en þessi stúlka, sem hrifin hafði verið úr gini sjálfs- morðsins, lifir í samfélaginu við Guð og vitnar um hjálpræðis- mátt Krists. Hún þakkar Guði ávallt fyrir hvíta rós, sem ókunnur maður gaf henni. (Úr „Gospel Herald“). 18 BJARMI

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.