Bjarmi - 01.11.1974, Blaðsíða 1
Jólahugleiðing eftir séra Jónas Gíslason, lektor
Hvar er
Guð?
JÓH. 1, 11-14
I.
Hvar er Guð?
Þannig spyrja menn oft, eink-
um þegar eitthvað bjátar á. Ef
við einblínum á hið illa í þess-
um heimi, syndina, bölið og þján-
inguna, reynist svo oft erfitt að
koma auga á Guð. Hans virðist
gæta lítið. Og þegar jólahátíðin
gengur í garð, finnst mörgum
erfitt að gleðjast. Englarnir á
Betlehemsvöllum boðuðu frið á
jörðu, en mörgum finnst friðar-
söngur þeirra hljóma sem napr-
asta háð í heimi okkar í dag.
Þess vegna er alls ekki óeðli-
legt, að margir spyrji: Hvar er
Guð?
II.
Jólin flytja okkur svarið. Guð
kom inn í heim okkar manna í
Jesú Kristi. Litla barnið í jötunni
er Guð. Hann lætur okkur ekki
afskiptalaus. Hann er ekki fjar-
lægur eða hulinn Guð. Hann er
hinn kærleiksríki Guð, sem kom-
inn er til þess að frelsa okkur.
Jólin eru okkur sönnun fyrir kær-
leika Guðs. Enginn þarf því leng-
ur að spyrja um Guð. Guð er í
Jesú Kristi.
Þetta vissu englarnir. Þess
vegna var gleði þeirra mikil. Lof-
söngurinn hljómaði og fyrsti jóla-
sálmurinn var sunginn í mann-
heimi: Dýrð sé Guði í upp-
hæðum. Yður er í dag frelsari
fæddur.
Á hinum fyrstu jólum urðu
þáttaskil í sögu mannanna. Ljós
heimsins var komið. Vald syndar
og dauða í mannlegu lífi var
brotið á bak aftur. Nú eiga allir
menn aðgang að himni Guðs
fyrir trúna á Jesúm Krist.
Hvers vegna spyrja menn enn:
Hvar er Guð? Hvers vegna sér
kærleika Guðs svo lítinn stað í
heimi okkar manna? Svarið er
að finna í Jóh. 1,11: ,,Hans eig-
in menn tóku ekki við honurn."
Þeir eru alltof fáir, sem sjá
Guð í Jesú Kristi og heyra fagn-
aðarsöng englanna á jólum. Of
mörgum verða jólin aðeins fall-
egt ævintýri án raunverulegs inni-
halds. Of fáir veita viðtöku hinni
mestu gjöf Guðs, jólabarninu
sjálfu. Of fáir ganga að jötu
þess og lúta því í lotningu.
Þegar menn spyrja um Guð,
er ástæðan venjulega sú, að þeir
hafa annaðhvort gleymt Guði,
gleymt að ganga að jötunni og
lúta jólabarninu, eða þeir hafa
hafnað þeim Guði, sem kom í
Jesú Kristi.
IV.
Kristinn maður spyr aldrei:
Hvar er Guð? Hann veit, að Guð
er kominn. Hann hefur sjálfur
mætt honum sem mesta raun-
veruleika lífs síns. Þess vegna
gleðjumst við og fögnum á jól-
um. Við tökum undir lofsöng
englanna. Við lofum og vegsöm-
um Guð fyrir náð hans og misk-
unn.
Og jafnframt leggjum við líf
okkar fram sem gjöf við jötu
jólabarnsins, svo að hann megi
nota okkur til þess að vinna verk
sitt hér á jörðu.
Guð gefi okkur gleðileg jól.
Reykjavík, nóv.—des. 1974.
11.-12. tbl. 68. árg.
1