Bjarmi - 01.11.1974, Blaðsíða 4
UPPHAFIÐ
Haustið 1898 bar óvænt saman
fundum tveggja trúaðra sölumanna
á hótelherbergi í borginni Bosco-
bel í Wisconsinfylki í Bandaríkj-
um Norður-Ameríku. Nöfn þeirra
voru John H. Nicholson og Samuel
B. Hill. Þeir ræddu meðal annars
um það, hvernig þeir gætu auð-
veldað þeim kynni og samstarf,
sem sama sinnis væru. Þeir urðu
því sammála um að boða til fund-
ar, sem hefði það markmið að sam-
eina trúaða sölumenn til starfa í
þeim megintilgangi, að leitast við
að ávinna stéttabræður sína og
aðra fyrir Drottin Jesúm Krist.
Fundur sá var haldinn 1. júlí 1899.
Þar mættu þessir tveir menn og
maður að nafni William J. Knight.
Stofnendur urðu því aðeins þrir.
27 árum áður hafði John H. Nich-
olson gefið deyjandi móður sinni
það loforð, að hann skyldi lesa dag-
lega í Biblíunni. Þetta loforð hélt
hann. Hann var þá 13 ára að aldri.
Upphaf Gídeonhreyfingarinnar má
því að verulegu leyti rekja til þess,
að Guðsorð náði að festa rætur og
bera ávöxt í lífi þessa unga manns.
Þegar velja skyldi félaginu nafn,
sagði William J. Knight, eftir að
þeir höfðu átt saman bænastund,
að þeir skyldu kallast Gídeonítar
(The Gideons). Vafalaust hefur
þar um ráðið frásagan um Gídeon
í Dómarabókinni, 6., 7. og 8. kafla,
sem þeir lásu saman. Munu þeir
hafa fundið smæð sína, en jafn-
framt séð að verkefnin, sem þeim
voru ætluð, voru stór og marg-
vísleg. Frásagan í Dómarabókinni
greinir einmitt frá því, hvernig
Gídeon fékk í hendur erfið verk
að vinna og frá mannlegu sjónar-
miði vonlaus, en um leið hvernig
Drottinn gat notað hinn veika og
lítilmótlega til að vinna stóra sigra,
eingöngu fyrir það, að hann reynd-
4
Merki Gídeonsíélagsins sýnir krús með blysi í,
sbr. frósöguna um Gídeon og menn hans
í 7. kapítula Dómarabókarinnar.
3G REGN OG SNJÓR
ist hlýðinn kalli Drottins, að gera
það sem hann bauð.
Árið 1908 hófst sá þáttur starfs-
ins, sem síðan hefur verið megin-
verkefni félagsins. Þá voru Biblíur
fyrst lagðar inn í hótelherbergi.
Því hefur verið haldið áfram og
starfssviðið stækkað, með því að
láta þær í flugvélar, farþegaskip,
fangelsi og ýmsar aðrar stofnanir.
Nýjatestamenti hafa verið sett í
náttborð sjúklinga á sjúkrahúsum
og afhent að gjöf til hjúkrunar-
fólks. Stærsta átakið í þessum efn-
ur er þó það, að koma Nýjatesta-
Gídeonhreyfingin er samtök
kristinna verzlunarmanna, sem
vinna að útbreiðslu Ritningar-
innar víða um heim. Formað-
ur Landssambands Gídeon-
félaga á fslandi segir hér frá
tildrögum að stofnun fyrsta
Gídeonfélagsins fyrir 75 ár-
um og einnig frá alþjóðamóti
Gídeonmanna, sem hann tók
þátt í.
mentum í hendur skólanemenda og
hermanna. Á síðastliðnu ári var út-
hlutað 14.250.000 Biblium og Nýja-
testamentum á vegum Gídeon-
starfsins, og frá upphafi er sá ein-
takafjöldi orðinn 135.986.752. —
Gideonfélögin eru nú starfandi í
102 löndum og meðlimafjöldinn
orðinn 43.500. í hinum svokölluðu
þróunarlöndum hafa opnazt miklir
möguleikar á að breiða út Guðs-
orð. Það er ljóst, að vegna þjóð-
félagshátta og stjórnmálaafskipta
getur víða verið um tímabundna
möguleika að ræða, sem ríður á
að nota vel. Biblían hefur stund-
um verið nefnd „mesti kristniboði
allra tíma“. Þar sem trúboð reyn-
ist erfitt og kristniboðar eru á
brott reknir, getur Biblían haldið
áfram að vinna sitt verk á meðal
þeirra, sem fengið hafa hana í
hendur.
ALÞJÓÐAMÓT
GfDEONSAMTAKANNA
Það er fastur liður í Gídeonsam-
tökunum að halda alþjóðamót ár
hvert. Síðastliðið sumar, dagana
22.-28. júlí, var mótið haldið í
Sheraton-Park-hóteli í Washington.
Stendur það á hæð nokkurri til-
tölulega miðsvæðis, með útsýn yfir
hina fögru borg. Sjálft er hótelið
í tölu þeirra stærri þar, hvað gisti-
rými snertir. Samt tókst engan
veginn að hýsa þar þá rúmlega
3200 gesti, sem þá tóku þátt í mót-
inu. Salarkynni eru þar af ýmsum
stærðum og hentuðu því vel hinni
margvíslegu starfsemi, sem fram
fór á mótinu. Auk samverustunda
hinna fullorðu var einnig séð fyrir
efni, sem hæfði yngri kynslóðinni.
103 þátttakendur frá 43 löndum
utan Bandaríkjanna og Kanada
mættu til mótsins. Af íslands hálfu
vorum við Þorkell Sigurbjörnsson.
Fyrsta dagínn var farið í skoð-
unarferð um borgina, og tóku þátt
í henni nærri 2000 manns.
VORN DROTTIN VÉR LOFUM
Einkunarorð mótsins voru: „To
God be the Glory“.Hófst mótið með
samnefndum söng, sem til er í ís-
lenzkri þýðingu fyrrv. Gídeon-
félaga, Benedikts Jasonarsonar
kristniboða, og nefnist: „Vorn
Drottin vér lofum“. Einkunnar-
orðin voru tekin úr Júdasarbréf-
inu, seinasta versinu: „Einum Guði
frelsara vorum sé fyrir Jesúm
Krist, Drottin vorn, dýrð, hátign,