Bjarmi - 01.11.1974, Qupperneq 11
JÓHANNEB DLAFBBDN - ELBA JACDBBEN - VALDÍS MAGNÚBDÚTTIR
** Jf******************************************************
Kirkjan rís
margir vilja lœra
Skúli Svavarsson skrifar 23.
september:
„Byggingu kirkjunnar miðar vel
áfram. Búið er að mestu að ganga
frá biblíuskólaálmunni, lokið við
að pússa kirkjuskipið að innan og
verið að pússa aftari salinn. Þak
er komið á allt húsið, nema hvað
kjöljárnin vantar á kirkjuskipið,
ég hafði ekki nógu mörg og varð
að panta frá Addis. Reikna ég
með að fá þau í næstu viku, og er
þá allt undirbúið til að negla plöt-
urnar neðan í þakið. Eftir sex vik-
ur ætti kirkjan að vera langt kom-
in. Það kemur til með að standa
á bekkjunum og stóru hurðunum.
Þeir lofuðu að smiða þetta fyrir
mig í Arba Minch, en eru víst ekki
byrjaðir á neinu.
Ríkið annast nú hjálparstarf hér
í Konsó. (Þeir vildu halda áfram
komdreifingu, sennilega vegna þess
hve mikið gjafakorn er fyrir hendi
í landinu). Við áttum í svolitlum
erjum við yfirmennina hér til að
byrja með. Þeir ætluðust til að við
héldum áfram, en okkur fannst
ekki þörf á því. Þá vildu þeir fá
að nota geymslurnar okkar og lóð-
ina fyrir korngeymslur, en það tók
ég ekki í mál, því að við þurfum
að nota þær til annars. Það var
handleiðsla Guðs, að við skildum
byggja þessar geymslur fyrir
kristniboðspeninga. Nú gengur allt
vel, þeir vinna að sínu og við að
okkar starfi, og allir virðast ánægð-
ir. Það er friður og ró, — hugsaðu
þér, ekkert þras og engar ákær-
ur! Allir okkar starfsmenn fá að
vinna í friði. Þetta eru undarlegir
tímar hér í Eþíópíu. Öll byltingin
virðist ætla að ganga friðsamlega
fyrir sig. Að vísu eru allir mjög
spenntir að sjá, hvernig tekst til.
Flestir, sem ég hef samband við,
eru mjög bjartsýnir og sjá sýnir.
Sýnódufundurinn er nýafstaðinn
og var hann að þessu sinni hald-
inn í Gidole. Ato Leggese Wolde
var endurkjörinn forseti og Negash
Lemma varaforseti.
í dag höfðum við fund í stöðvar-
stjórn. 10 nemendur, sem lokið
hafa 3—6 bekkjum í barnaskóla,
vei’ða fyrstu nemendumir á biblíu-
skólanum í Konsó. Hér verður
mjög þröngt á þingi. Allar kenn-
araíbúðirnar eru fullsetnar. Biblíu-
skólinn hefur eina íbúð fyrir
kennslustofu til að byrja með.
Skrifstofa skólans verður flutt það-
an í skólahúsið, — ég er búinn að
hólfa hana af. Skilrúmið er þó
ekki enn komið milli kennslustof-
anna í námskeiðshúsinu. Við verð-
um að hafa opið, þangað til kirkj-
an er fullgerð. Tvær bekkjadeildir
verða þó að vera þar til húsa, eða
þá önnur undir berum himni.
Byrjendabekkurinn verður í gamla
sjúkraskýlinu. Vandræði verða
vegna plássleysis fyrir heimavist-
irnar. Enn er vika þangað til skól-
inn byrjar, og 105 drengir hafa
þegar sótt um pláss og 21 stúlka.
Fyrir drengina höfum við 5 her-
bergi, — hið sjötta fær biblíuskól-
inn. Stúlkurnar hafa aðeins eitt,
því Adjúnna er í hinum enda húss-
ins. Ég veit ekki, hvað við eigum
að gera, það er erfitt að gera upp
á milli umsækjendanna. Við sjá-
um nú til, — kannski verður ekki
heldur pláss fyrir alla í skólan-
um.
Nú stendur yfir námskeið fyrir
------------------------
FltÍMERKI
Aðalskrifstofan veitir móttöku
notuðum, inlenzhum
trimerhjum
og selur þau til ágóða fyrir
kristniboðið. — Frimerkin séu
ógölluð og ekki losuð af um-
slögunum, heldur klippt af
með nokkurri spássiu í kring.
Sendið þau þannig til Sam-
bands íslenzkra kristniboðs-
félaga, Amtmannsstíg 2B, Rvík.
-------------------------
öldunga, djákna og starfsmenn.
Síðastliðna viku voru 48 öldungar,
36 djáknar og 67 prédikarar á nám-
skeiðinu. Það er góður andi og vel
hlustað í tímunum. Margir koma
með góðar spumingar og gefa góð
svör. Þó eru því miður allmargir
á meðal prédikaranna, sem ekki
hafa mikinn andlegan skilning og
hafa lítið fram að bera. Þessir
þarfnast mikillar fyrirbænar.
Jónas og fjölskylda hafa verið í
fríi. Ég býst við þeim aftur um
miðja vikuna, og þá fer Elsa í
frí. Það hefur verið gríðar mikið
að gera hjá henni. Yfirleitt fullt í
öllum rúmum og alltaf einhverjir
sjúklingar, sem liggja á gólfinu.
Nú er Gallabo, fyrrum kennari,
kominn aftur. Hann byrjar að
vinna fljótlega sem hjúkrunar-
maður og ætti það að verða til
hjálpar.
Ég held ég slái botninn í þetta
spjall. Við biðjum að heilsa öllum
vinum og kunningjum.“
Friður
á yfirborðinu
Jóhannes Ólafsson skrifar frá
Arba Minch 29. september:
„í stórum dráttum er þróunin
hér í landi sú sama og þegar þú
varst hér úti. Þeir ganga bara
skref fyrir skref lengra í átt að
einhverju nýju stjórnarfari, sem
enginn veit ennþá hvert verður.
Herstjórnin segist taka málin í
sínar hendur um tíma, einungis til
þess að steypa frá völdum þeim
spilltu mönnum, sem réðu land-
inu. Keisarinn er sá svarti sauð-
ur, sem allir skella skuldinni á,
meira að segja meðlimir gömlu
stjórnarinnar. Rannsóknarnefnd er
að yfirheyra þá, einkum um Wollo-
hneykslið (hungursneyðin). Fyrr-
verandi forsætisráðherra sagði þar,
að hann hefði bara verið ráðherra
11