Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1987, Side 8

Bjarmi - 01.12.1987, Side 8
Smásaqa eftir Petru Flagestad Larssen Hvað nema Jesú blessað blóð?" liún var á leið heim íjólaleyfíð. Hún hafði eignast lifandi trú á Jesúm lírist þá um haustið. En mundi hún þora að segja frá þvíheima? Hraðlestin stritaði upp í móti frá láglendinu. Hún stefndi upp í fjall- heima. Þeir höfðu rétt skipt um eim- reið. Nýja vélin blés eins og hvalur í brekkunum en dró taktfast og örugg- lega langa vagnaröðina á eftir sér. Já, jólin eru að koma. Allir vagnar eru yfirfullir. Fólk stendur og hangir í loftinu ígöngunum. Þegir. Þaðlíðurá daginn. Helga situr í klemmu í króknum við dyrnar með kápuna fyrir andlitinu. Hún er ein með hugsanir sínar. Hvernig á hún að fá sagt það? Það er breytnin sem á að sýna það, dettur henni í hug, hegðunin á að leiða í ljós að hún sé orðin ný manneskja. En þegar hún megnar hvorki að sýna það í breytni né í orðum? Mamma og pabbi munu skilja hana og fagna — en bræðurnir? Gunnar er góður stóribróðir og það miklu eldri en hún að hann hefur aldrei haft gam- an af að stríða henni. Það er verra með Leif. Við Leifur höfum alltaf ver- ið að kankast á svo lengi sem ég man eftir mér og hann hefur oftast haft betur. Hann er svo miklu sterkari en ég. Ekki aðeins í höndunum. Ég óttast mest orð hans þegar hann er að stríða, því að þau eru þung og hvöss... þau stingast inn í hjarta mér eins og ör, sitja þar föst og særa... En enginn get- ur verið eins góður og hann þegar hann vill það við hafa. Æ, það var orðið óþolandi heitt! Hún losaði sig við kápuna og starði á litla lampann sem gaf frá sér daufa birtu... Það var Leifur sem hafði kennt henni að dansa. Hann gat verið góður. Og það var hann sem hjálpaði henni út þegar foreldrar hennar vildu ekki leyfa henni sem var ekki nema 16 ára að fara á skemmtun í æskulýðs- húsinu. Nú skammaðist hún sín fyrir þetta en þá var hún innilega þakklát. Stundum var hann harður. Hún mundi ekki betur en hún hefði alla tíð verið hrædd um að hún gerði eitthvað sem honum mislíkaði. Hún mundi öll skiptin sem hún hafði grátið sig í svefn þegar þau komu heim seint um nótt, en það vissi Leifur ekki. Það voru ekki heldur alltaf orð hans sem fengu hana til að fella tár. Líklega var það oftast vegna þess að hún var sárþreytt — og af því að hún óttaðist dauðann og að mamma og pabbi dæju meðan hún væri að dansa ... hún sem hafði lofað því hátíðlega að aldrei skyldi hún yfirgefa Jesúm — hennar vegna máttu foreldrar hennar aldrei liggja vakandi á bæn á nóttunni. Þessu hafði hún lofað Guði þegar hún heyrði í hvílu sinni hversu þau báðu fyrir bræðrunum — báðu þess að þeir sneru frá viilu síns vegar og tækju að spyrja um veginn sem lægi til lífsins. Orðin höfðu grópast í sál hennar. Þau rifjuðust upp í hvert sinn sem hún kom seint heim því að hún vissi: Nú eru mamma og pabbi að biðja fyrir henni... Stundum hafði hún spennt greipar og grátbeðið Guð um að foreldar hennar fengju að lifa þangað til hún yrði kristin. Hún skyldi ekki dansa framar, ekki daðra oftar við piltana... Hún sat þarna og minntist þess einu sinni þegar enn var komið laugardags- kvöld. Þá var Leifur þar — og létti undir með henni í fjósinu svo að hún lyki sér fyrr af. Hvers vegna sótti hann svo fast að hún færi með honum? Hún fór með, alltaf. Og svo dansaði hún aftur. Rausaði við hin á leiðinni. Einu sinni hafði hún verið djörf og sagt skrítlu um predikarann gamla sem hafði gist heima hjá þeim. Þau laun- uðu henni með hrossahlátri. Leifur var sá eini sem hló ekki. Þegar þau voru orðin ein sagði hann , reiður: — Þú gerir þig að fífli! Allir vita að þú ert að þykjast... Hann hefði getað slegið hana, það hefði ekki ver- ið nærri því eins sársaukafullt. Þó hafði hún sagt þetta hans vegna, til þess að verða meiri í hans augum, til að sýna að hún væri hugrökk ogfrjáls. En allt var öðruvísi en það átti að vera. Aldrei var hann ánægður með hana. Ekki hún sjálf. Og ekki Guð. Þetta síðasta hafði hvílt á henni eins og dómur allt sumarið. Þau sendu hana í kristilega æskulýðsskólann í haust. Hún hafði grátið af þrá fyrstu vikurnar, grátið og fundið hversu víðsfjarri hún var öllu þessu sem sumir nemendurnir höfðu sungið um og vitnað um. Ó, hvað þeir voru barnalegir. Samt óskaði hún þess stundum að hún væri eins og þeir. Ein þeirra sem kom inn í herbergið (. til hennar eitt kvöldið þegar halda átti samkomu: — Vertu með okkur á sam- komunni, Helga! Þú mátt ekki loka Jesúm lengur úti. Ég reyndi að hlæj a en tókst ekki. Ég dleði eg jó ! 8

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.