Bjarmi - 01.12.1987, Blaðsíða 24
BREF
Valdís og Kjartan
skrifa frá Kenýu:
Kórinn er gott starfstæki
Það má segja að haustað hafi
snemma í Chepareria því að rigningin
hætti mun fyrr en venja er og allur
gróður hefur þornað mjög mikið.
Sums staðar hefur maísinn skemmst
af þessum sökum en þó er ekki útlit
fyrir hungursneyð. Flestir munu fá
nógan mat en hins vegar er lítið eða
ekkert til að selja. Beit er orðin lítil og
rýr og því má búast við að bændurnir
verði að fara með kýrnar upp í fjöllin
fyrr en venja er.
Enn kemur æskan
Við höfum haft fastan predikara á
stöðinni síðan í febrúar, Samúel
Túkei. Það hefur gefið góða raun og
er nú góður vöxtur í öllum greinum
starfsins á stöðinni en þar er lang-
stærsti söfnuðurinn okkar. Samúel
hefur lagt áherslu á að vinna meðal
unglinganna og hefur samverur með
þeim þrisvar í viku. Tuttugu og sex
þeirra eru skráðir á skírnarnámskeið.
Kórstarf er í gangi á fimm stöðum.
Kór virðist vera það tæki sem best nær
til unglinganna.
Fyrir nokkru var haldið unglinga-
mót í Kapengúría, á biblíuskólanum
okkar, fyrir alla söfnuði og starfs-
stöðvar á okkar svæði. Um sextíu ung-
menni komu og dvöldu þarna í góðu
yfirlæti í fjóra daga.
Biblíulestar út frá Galatabréfinu
voru þungamiðja fræðslunnar. Það
var opinn og jákvæður hópur sem var
þarna saman kominn og margar
spurningar brunnu á þeim varðandi
líferni kristins unglings og afstöðu
hans til ýmissa heiðinna siða. Á
hverju kvöldi var samkoma þar sem
sýnd var kvikmynd um líf Jesú. Síðan
voru vitnisburðir og einn kór söng
nokkur lög. Dómnefnd hafði eyru og
augu opin til að meta sönginn því að
besti kórinn átti að fá verðlaun. Þrír
kórar tóku þátt í keppninni og fór sá
frá Própoí (kórinn á stöðinni í Chep-
arería) með sigur af hólmi eftir mjög
tvísýna keppni við félaga sína frá
Chemollo. Sigurvegararnir fengu
stóra trommu í verðlaun og þeir sem
voru í öðru sæti fengu aðra nokkuð
minni.
Á hverju kvöldi stóðu nokkrir ungl-
ingar upp og vitnuðu um frelsara sinn
fyrir vinum og félögum. Síðasta
kvöldið var sýnt heilmikið leikrit þar
sem deilt var á hálfvelgju og hræsni.
Boðskapur þess var að menn ættu
ekki bara að vera kristnir í orði og lifa
þvert gegn kenningu kristindómsins
heldur láta orð og athöfn fylgjast að.
Þetta var mjög gott mót. Biðjið fyr-
ir starfinu á meðal unglinganna, að
þeir mættu varðveitast og ná að þrosk-
ast í samfélaginu við frelsara sinn til
þjónustu í kirkjunni.
Birta yfir jarðarför
Tveir af unglingunum okkar dóu á
síðastliðnu sumri. Bæði voru þau
skírð, annað í nóvember á síðasta ári
er söfnuður var stofnaður í Muruny á
fjöllunum fyrir ofan stöðina.
Það var hrífandi að vera í jarðarför-
inni þar uppfrá. Foreldrarnir þurftu
ekki að grafa son sinn einsömul í kyrr-
þey því að kristnir nágrannar hópuð-
ust að og hjálpuðu til við að taka gröf-
ina og annað sem gera þurfti. Þrátt
fyrir sorgina var vonin um upprisuna
mjög áberandi og gleðin yfir því að
hafa lært að þekkja Guð sem elskar
sitt fólk.
Sendum ykkur kveðju með 1. Pét.
1,3-4. Þökkum umhyggjuogfyrirbæn-
ir.
Kjartan, Valdís, Heiðrún,
Ólöflnger og Jón Magnús
Biðjið fyrir starflnu á meðal unglinganna, að þeir mættu varðveitast
í trúnni og ná að þroskast í samfclaginu við frelsara sinn.
24