Bjarmi - 01.12.1987, Síða 28
PRÁ STARFinU
SÍK-menn
á faraldsfæti
Vestra
Þeir Skúli Svavarsson og
Benedikt Arnkelsson, starfs-
menn Kristniboðssambands-
ins, ferðuðust til ísafjarðar
18. október og dvöldustþar til
26. október. Þeir kynntu
kristniboðsstarfið í Eþíópíu
og Kenýu meðal grunnskóla-
nemenda í bænum. Jafnframt
fóru þeir í sömu erindagerð-
um í skólana í Hnífsdal, Bol-
ungarvík og Súðavík og á
Suðureyri. Ætlunin var að
fara líka til Flateyrar en veður
hamlaði.
Á ísafirði heimsóttu þeir
fjölmennan kirkjuskóla safn-
aðarins. Þeir héldu almenna
samkomu í húsakynnum
Hlífar þar sem aldraðir dvelj-
ast í íbúðum, .vvo og á elli-
heimilinu, og litu inn á
sjúkrahúsið. Skúlipredikaði í
kapellunni í Hnífsdal og var
guðsþjónustan helguð kristni-
boðinu. Kvöldsamkoma var í
kirkjunni í Bolungarvík.
í Eyjum
Benedikt Arnkelsson var í
Vestmannaeyjum á kristni-
boðsdaginn, 8. nóvember,
sagði frá kristniboðinu í
sunnudagaskóla Landa-
kirkju og predikaði síðan í
guðsþjónustu eftir hádegið.
Um kvöldið var efnt til
almennrar samkomu í húsi
KFUM og KFUK og talaði
Benedikt þar og sýndi myndir
frá Afríku. Fleiri gestir tóku
og til máls. Ekki er neitt fast
starf á vegum KFUM og
KFUK í vetur.
Benedikt var um kyrrt
nokkra daga í Eyjum og kom
í kennslustundir í báðum
grunnskólunum og frœddi
nemendur um kristniboðið.
Hann hélt einnig samkomur
með myndasýningum á
sjúkrahúsinu og dvalar-
heimili aldraðra í Hraunbúð-
um.
„Jesús Kristur er í gær
og í dag...“
Akureyringar stóðu fyrir
samkomuviku í Sunnuhlíð,
félagsheimili KFUM og K á
Akureyri, dagana 1.-8.
nóvember. Þar voru aðal-
rœðumenn þeir Jónas Þóris-
son og Guðlaugur Gunnars-
son. Fluttu þeir bœði kristni-
boðsefni og hugvekjur. Einn-
ig töluðu Margrét Jónsdótt-
ir, sr. Svavar A. Jónsson og
Þorvaldur Halldórsson.
Samkomur voru á hverju
kvöldi að venju og auk þess
miðnœtursamkoma á laugar-
dagskvöld. Yfirskrift vikunn-
ar var tilvitnun úr Hebrea-
bréfinu: ,Jesús Kristur er í
gœr og í dag hinn sami og um
aldir." Samkomugestur áttu
góðar stundir um lifandi orð
Guðs. — Bjarni Guðleifsson
og Guðmundur Ó. Guð-
mundsson stjórnuðu sam-
komunum.
Seinni sunnudaginn,
kristniboðsdag, steig Jónas
Þórisson í stólinn í Akureyr-
arkirkju. Guðlaugur var þá
kominn til Reykjavíkur og
predikaði hann í útvarps-
messu í Neskirkju.
Eystra
Guðlaugur Gunnarsson og
Skúli Svavarsson fóru í
nóvember í kynningar- og
samkomuferð til Egilsstaða
og á firðina þar í grennd. Var
heimsóknin skipulögð í nánu
samstarfi við prestana þar og
nutu þeir fyrirgreiðslu þeirra
og gestrisni. Þeir predikuðu í
guðsþjónustum á Egilsstöð-
um, Reyðarfirði, Eskifirði og
Seyðisfirði. Haldnar voru
samkomur á sumum stöðun-
um og talað á minni samveru-
stundum.
Grunnskólana á ofan-
greindum stöðum heimsóttu
þeir, svo og skólana á Hall-
ormsstað og Fellabœ við
Egilsstaði og í Neskaupstað
og tóku nemendur þeim vel.
Alls voru þeir tíu daga í ferð-
inni, komu aftur 24. nóvem-
ber.
KFIIM og KFUK á Akranesi
hafa verið sameinuð í eitt
félag.
Unglingamót
Helgina 31. október til 1.
nóvember var haldið ungl-
ingamót í sumarbúðunum í
Vatnaskógi. Mótið var
fjölsótt, eða af rúmlega 140
unglingum úr unglingadeild-
um KFUM og KFUK í
Reykjavík, Hafnarfirði, Kefl-
avík og Akranesi. Tókst mót-
ið vel og áttu þátttakendur
góða helgi saman. Sr. Ólafur
Jóhannsson sá um biblíu-
lestra, en auk þeirra voru
kvöldvökur sem unglingarnir
sáu að mestu um sjálfir og
starfsmenn í unglingadeild-
um höfðu hugleiðingar.
Unglingastarf KFUM og
KFUK er mikilvœgt og eru
lesendur blaðsins minntir á að
biðjafyrir því.
KFUM ogKFUKá
Akranesi sameinuð
í eitt félag
Um nokkurt skeið hefur
verið rœtt um það innan
KFUM og KFUKá Akranesi,
hvort hœgt vœri að sameina
félögin í eitt. Kemur þar
margt til. Má þar til dcemis
nefna að allar eignir félag-
anna eru sameiginlegar,
deildarstarf er að meslu sam-
eiginlegt og síðast en ekki síst
yrði öll ákvörðunartaka
miklu einfaldari eftir en áður.
A aðalfundum þessa árs var
málið kynnt, lögð fram drög
að lögum og nœr einróma
samþykkt að ganga til þessa
verks. Hinn 17. nóvember sl.
voru liðin 25 ár síðan aðal-
deildir félaganna voru stofn-
aðar. Akveðið var að í tengsl-
um við þau tímamótyrði boð-
að til framhaldsaðalfunda og
gengið frá sameiningunni.
Laugardaginn 21.
nóvember komu svo 23 með-
limir saman, gengu frá sam-
einingunni og kusu sér nýja
stjórn. Hina nýju stjórn skipa
5 menn. Formaður er kosinn
sér og var Jón Jóhannsson
kjörinn til þess starfs. Sam-
kvœmt lögum skulu aðrir
stjórnarmenn vera 4 þ.e.
tveir af hvoru kyni. í hina
fyrstu sameiginlegu stjórn
voru kosin Guðjón Guð-
mundsson, Sigurbjörg Jóns-
dóttir, Þuríður Þórðardóttir
og Hafsteinn Kjartansson. A
fundinum gengu 6 nýir félag-
ar inn í félagið, 3 stúlkur og 3
piltar. Var það sannarlega til
mikillar uppörvunar.
Sunnudaginn 23. nóvem-
ber var 25 ára afmælisins svo
minnst með samkomu þar
sem fortnaður Landssam-
bands KFUM og KFUK, sr.
Jónas Gíslason, prédikaði. í
tilefni þessa afmœlis ákváðu
fráfarandi stjórnir að gefa út
3000 kr. gjafabréf til fjár-
öflunar vegna kaupa á nýjum
stólum í félagsheimilið á
Akranesi, en bekkir þeir sem
notaðir hafa verið um árabil
eru nú mjög úr sér gengnir.
Hefðu einhverjir lesendur
Bjarma hug á að kaupa slík
bréferu þau að sjálfsögðu föl
og einfaldast að hafa sam-
band við einhvern stjórnar-
manna. Það er von þeirra sem
að þessari breytingu stóðu að
hún megi verða til blessunar
og starfinu til eflingar. j /
28