Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1987, Síða 17

Bjarmi - 01.12.1987, Síða 17
verið á brennandi málum varðandi kristniboð. Lausanne-hreyfingin er eiginlega ekki „grasrótarhreyfing“, heldur eins konar keðja leiðtoga til að koma á sambandi og miðla upplýsing- um og hvatningu, sem þeir síðan miðla áfram hver á sínum vettvangi. Engin afstaða er tekin til „kirkjupóli- tískra deilumála“ og því getur hreyf- i.ngin orðið til sameiningar og hvatn- ingar án þess að nokkur sé þvingaður til að leggja af sérkenni sín eða taka þátt í einhverju sem stríðir gegn sann- færingu hans. — Hvaða gildi hefur Lausanne- hreyfingin haft? — Ótrúlega mikið, ekki hvað síst fyrir leiðtoga frá þriðja heiminum. Lausanne-hreyfingin hefur án efa átt sinn þátt í að „ungu kirkjurnar“ fóru sjálfar að stunda kristniboð. Á undan- förnum fimmtán árum hefur kristni- boðum frá þriðja heiminum fjölgað úr 3.000 í 30.000 og 200 ný kristniboðs- félög hafa verið stofnuð. Auk þess hefur áherslan á að ná til þeirra sem aldrei hafa heyrt aukist verulega. Það er ekki nóg að hugsa bara í þjóðum og þjóðlöndum, heldur verðum við að hugsa um einstaka þjóðflokka. Þró- unin innan Alkirkjuráðsins og meðal rótgrónu kirkjudeildanna er einnig jákvæð. Lausanne-hreyfingin og leiðtogar hennar hafa stuðlað að því að trúboð er nú efst á blaði í mörgum kirkjum sem mótuðust mest af frjáls- lyndri guðfræði og litlum áhuga á beinu kristniboði. f>á hafa guðfræði- leg áhrif verið mikil þannig að tekist hefur að beina sjónum að Jesú Kristi sem einu leiðinni til frelsunar, í guð- fræðideildum og háskólum sem áður einkenndust af óljósri trúarbragða- blöndu. Enda þótt samkirkjulegt starf sé í sjálfu sér ekki takmark Lausanne- hreyfingarinnar, finnst okkur að kristnir menn frá ólíkum kirkjudeild- um og söfnuðum nái saman á sérstak- an hátt í hreyfingunni, vegna þess að þeir keppa allir að sameiginlegu markmiði. Það er eins og einingin sé viðbótarblessun og sérstök gjöf Guðs. Fyrir mig hefur sambandið við Lau- sanne-hreyfinguna haft endurnýjun í för með sér í starfi mínu sem prestur og beint athyglinni að boðun orðsins og kristniboði bæði heima og erlendis. Hlutverk okkar er ekki að halda ein- hverju kirkjulegu starfi gangandi, heldur eigum við að prófa allt sem við gerum á því hvort nýir ávinnast til trúar og kirkjan vex. Þá hefur Lau- sanne-hreyfingunni tekist að mér finnst að brúa bilið milli nýrri hreyf- inga, s.s. náðargjafavakningarinnar, og eldri fastmótaðri hreyfinga og kirkna. — Hverjir geta verið með í Lau- sanne-hreyfingunni? — Hreyfingin er skipulögð með nokkuð ólíkum hætti í hinum ýmsu löndum. í Noregi höfum við boðið fólki að undirrita Lausanne-sáttmál- ann og vera þannig með í laustengdri hreyfingu sem felur það í sér að menn fá sent fréttablað tvisvar á ári. Þá geta menn verið með á Danvik-ráðstefn- um okkar sem við höldum annað hvert ár í Drammen fyrir 150-180 leið- toga. Þá er einnig hægt að skrifa beint til alþjóðaskrifstofunnar og biðja um að fá sent alþjóðafréttabréfið. Það kemur út sex sinnum á ári. Þátttaka í ráðstefnum gerist yfirleitt þannig að menn fá boð frá höfuðstöðvunum um þátttöku, oftast eftir ábendingu frá nefndum einstakra þjóðlanda eða tengi- liðum ef ekki eru til formlegar nefndir. Sr. Jónas Gíslason er tengi- liður á íslandi og e.t.v. getið þið kom- ið á fót Lausanne-nefnd á íslandi áður en langt um líður, ef það hentar. — Hefur það verið mikilvægt fyrir Noreg að vera með? — Ég hef verið á kafi í þessu starfi í 11 ár og er e.t.v. ekki rétti maðurinn til að svara þessu. Þetta hefur haft verulegt gildi fyrir mig persónulega og „Síðan hefur orðið til alheimskeðja leið- to<ja í kirkju- og kristniboðsstarfi sem hef- ur þann tilgang að miðla upplýsingum, stuðia að fyrirbæn, hvetja til þess að ávinna nýja menn til kristinnar trúar og vekja kirkj- ur til meðvitundar um nauðsyn og mikilvægi kristniboðs." líklega horfi ég á Lausanne-hreyfing- una og starfið hér í Noregi nokkuð hlutdrægum augum. En ég vil nefna nokkur atriði sem ég tel að hafi verið mikilvæg. í fyrsta lagi hefur starf Lausanne- nefndarinnar leitt til betra sambands, upplýsingamiðlunar og vináttu milli leiðtoga í ólíkum kirkjudeildum og hreyfingum, verið til hvatningar og skapað bænasamfélag. í öðru lagi hefur starfið opnað augu fyrir því sem er að gerast í veröldinni. Við höfum fengið heimsóknir alþjóðaleiðtoga hreyfingarinnar sem hefur verið hvetjandi í starfi, bæði á heimavelli og erlendis. í þriðja lagi hefur hreyfingin vakið upp mikilvægar spurningar, s.s. um starf í stórborgum, samskipti ólíkra menningarsvæða, kirkjuvöxt, Evr- ópu-kristniboð, samband milli félags- legs starfs og boðunar, þjóðir sem fagnaðarerindið hefur ekki náð til, Kína o.fl. í fjórða lagi hafa menn kynnt sér Lausanne-sáttmálann og lagt hann til grundvallar í samkirkjulegu starfi af ýmsu tagi. Þá hefur hann haft áhrif á kristniboðsguðfræði guðfræðideilda og prestaskóla í landinu. Hápunktur var alþjóðlegi fundurinn um „Verk heilags anda og boðun fagnaðarerind- isins“ í Osló árið 1985 með 70 leiðtog- um frá ýmsum löndum. — Hvernig er starfi Lausanne- hreyfingarinnar háttað í Noregi? — Núna höfum við 64 manna nefnd sem hittist í hálfan dag tvisvar á ári. Minni starfshópur sér um mál sem upp koma á milli og undirbýr fundi aðal- nefndarinnar og Danvik-ráðstefnurn- ar. Skipt er um fimmta hluta nefnd- armanna á fimm ára fresti, en þó geta menn verið tilnefndir í nefndina á ný. Nefndin endurnýjar sig sjálf, en mark- miðið er að hún sé skipuð fuiltrúum sem flestra aðila um leið og reynt er að ná inn ungum leiðtogum sem eru fullir áhuga við hlið þeirra sem eldri eru og aðalleiðtogar sinna hreyfinga. Hér er því um skipuleg tengsl og samstarf leiðtoga að ræða og opinberir fundir hreyfingarinnar eru eingöngu í tengsl- um við ráðstefnur eða erlendar heim- sóknir og þá í þeim tilgangi að upplýsa og hvetja kristna menn. Einstaka les- hópar hafa verið stofnaðir til að fjalla um afmörkuð efni svo að við í Noregi og Skandinavíu getum komið okkar sjónarmiðum á framfæri í hinu alþjóð- lega samstarfi. Kostnaði við starfið er mætt með árgjaldi þeirra sem fá frétta- 17 \I7

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.