Bjarmi - 01.12.1987, Page 27
fjölskyldu hans? Hvílík blessun að
Jesús sagði að þann sem til hans kæmi
mundi hann ekki burtu reka.
Tegenje litli er nú dáinn. Honum
var ekki langra lífdaga auðið. Hann lá
þarna hjálparlaus og grátandi fyrir
utan sjúkrahúsið. En hann fannst og
var lagður í faðm Jesú í skírninni. Líf
hans hefur ekki orðið árangurslaust.
Það er stórkostlegt að sjá hvernig Guð
tengir allt saman svo að úr verður ein
heild. Við framgöngum í verkum sem
hann hefur áður fyrirbúið. Tegenje
litli varð óbein orsök þess að Sewaneh
kom aftur til Jesú. Það var í sambandi
við skírn Tegenjes að Jesús fékk talað
til hans. Heiðurinn og þakkargjörðin
tilheyrir Drottni og honum einum.
hann. En nú var hjarta hans kalt og
hart. Hann fann enga þrá í brjósti að
hlusta á orð Guðs. Það er alvarlegt
þegar svo er komið.
Kæri vinur, þú sem lest þetta. Ef til
vill varst þú einu sinni glaður, kristinn
maður eins og Ketane en svo fórstu
smám saman að fjarlægjast Jesúm.
Hugurinn fór að snúast um þennan
heim svo að þú hafðir ekki tíma til að
nærast á lifandi orði Guðs sem á að
styrkja okkur og varðveita hjá Jesú.
Komdu aftur til Jesú áður en allt er um
seinan! Maðurinn lifir ekki á einu
saman brauði heldur sérhverju því
orði sem fram gengur af Guðs munni,
sagði Jesús.
Ketane dó eina nóttina.
Enn fáum við að kunngjöra, öllum
sem vilja hlusta, þennan óumræðilega
boðskap frá Guði til mannkynsins að
hann sætti okkur við sig í Kristi og gaf
okkur þjónustu sáttargjörðarinnar.
En öllum þeim sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans.
Ég þakka ykkur fyrirbæn ykkar.
Guð blessi ykkur ríkulega í þjónust-
unni. Kærar kveðjur.
Elsa Jacobsen
Starflð á sjúkrahúsum er mikilvægt. Þar fær fólk bæði andlega og líkam-
lega iijalp.
Illgresið kæfir
Ketane var annar sjúklingur. í æsku
játaði hann trúna á Jesúm og var glað-
ur í trúnni. Hann gekk í hjónaband og
átti gott heimili.
En svo fór veraldarhyggjan að ná
tökum a honum. Hann hafði ekki
tíma til að koma í hóp trúaðra manna
til að styrkjast í trúnni á Jesúm. Það
varð æ sjaldnar sem hann lét sjá sig í
kirkjunni.
Að lokum hætti hann alveg að
koma. Nokkru seinna tók hann sér
aðra konu. Hamingjusamt heimili var
lagt í rúst.
Hann hafði verið lasinn um tíma en
fór þó ekki til sjúkrahússins að leita
hjálpar. Einn daginn varð hann mjög
veikur og þurfti að bera hann hingað.
Hann var strax skorinn upp en hann
hafði komið of seint. Ekkert var unnt
að gera.
Ketane lá hér nokkra mánuði.
Predikarinn sem kunni mál hans tal-
aði oft við hann og las orð Guðs fyrir