Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1995, Síða 3

Bjarmi - 01.03.1995, Síða 3
a U~w BjARMI í VÖRN OC SÓKN Enn á ný kemur Bjarmi út og þar með hefst 89. árganur blaðsins. Sú tala sýnir að blaðið er rótgróið og á sér langa sögu. Það hefur einnig gegnt mikilvægu hlutverki í kristni- og kristniboðssögu 20. aldar á íslandi. Vonandi verður svo áfram þegar sú 21. rennur upp. Nokkrar blikur eru á lofti og hefur fjárhagur blaðsins farið versnandi nú allra síðustu árin. Ástæður eru einkurn þær að áskrifendum hefur fækkað, samkeppni um auglýsingar hefur farið harðnandi og einnig að hluti áskrifenda stendur ekki í skilum. Því er þörf á að snúa vörn í sókn og hvetja alla áskrifendur og velunnara blaðsins til að styðja og efla það eftir rnegni, bæði með góðri skilvísi áskriftargjalda og með því að afla því fleiri áskrifenda eða kaupa gjafaáskrift handa ættingjum og vinum. Árgjaldið fyrir árið 1995 er aðeins 2.500 krónur. Þær breytingar verða gerðar á útgáfu blaðsins nú í ár að Salt hf mun sjá urn nokkra verkþætti, m.a. útlitshönnun og samskipti við prentsmiðju. Þá hefur verið ákveðið að í stað þess að gefa út átta tölublöð á ári, 24 síður hvert, kemur blaðið nú út sex sinnum en verður 32 síður hvert tölublað. Það dregur aðeins úr kostnaði en hvert tölublað verður í staðinn fjöl- breyttara. Þá er um leið stefnt að fjölbreyttari efnistökum eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni. Lesendur fá því ekki minna fyrir sinn snúð og vonandi tekst að gera Bjarma að aðgengilegu kristilegu tímariti senr höfðar til breiðari hóps áskrifenda en nú er. Staldrað I við Ujarmi Kristilegt tímarit Útgefendur: Kristilega skólahreyfingin, Landssamband KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson. Ritnefnd: Anna Magnúsdóttir, Benedikt Arnkelsson og Gunnar H. Ingimundarson. Atgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28, pósthólf 4060,124 Reykjavík, sími 588 8899, bréfsími 588 8840. Árgjald: Kr. 2.500,- innanlands, kr. 3.000,- til útlanda. Gjalddagi 1. mars. Verð í lausasölu kr. 500,- Útlitshönnun og aðstoð við útgáfu: SALT hf - Tómas Torfason. Ljósmyndir: Magnús Fjalar Guðmundsson o.fl. Prentun: Borgarprent. Bjarmi hefur um áratuga skeið átt fjölda trúfastra áskrifenda, auglýsenda og velunnara sem hafa stutt blaðið með ráðum og dáð og haft útgáfu þess á bænalistanum sínum. Slíkt ber að þakka því um ómetanlegan stuðning hefur verið að ræða. Vonandi á blaðið áfram um ókomin ár góðan hóp stuðningsmanna sem ber hag þess fyrir brjósti og styður útgáfu þess með fyrirbæn og góðum ráðum. Bjarmi er tæplega nírætt blað sern flytur garnlan boðskap sem þó er alllaf nýr. Boðskapurinn þarf að berast hverri nýrri kynslóð því hann er um Jesú Krist, frelsara heiinsins. Nú á dögum eru þeir rnargir sem bjóða fólki ýiniss konar leiðir til hjálpræðis eða lausnar. Stundum virðist eins og rödd fagnaðarerindisins kafni í öllum kliðnum. En Jesús segir: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig“ (Jóh. 14:6). Og Pétur postuli sagði um hann: „Ekki er hjálpræði í neinum öðrurn. Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss“ (Post. 4:12). Margt fólk er leitandi og þráir frið við Guð, sjálfan sig og náunga sinn. Jesús einn gefur gefið þann frið. Því eru tækifærin til að koma fagnaðarerindinu um hann á framfæri óteljandi. Bjarmi vill taka þátt í því að orðið urn hann nái út til fólks. Þess vegna þarf blaðið að fara miklu víðar en nú. Tökum höndum saman um að svo geti orðið. Efni: Staldrað við: Bjarmi i vörn og sókn................ 3 GunnarJ. Gunnarsson: í leit að flísum...................... 4 Menning: Skuggalendur og C. S. Lewis.......... 9 Útvarpskristniboðið - Ijós í myrkri..12 F - síðan: í heimavistarskóla i framandi landi..14 Viðtal: „Eigum við ekki að segja að við séu nú að skila þeim til baka?“...........16 Kommúnistar leiddir fyrir rétt........18 Smyglarinn er enn að verki............20 Nóra hætti að spá.....................22 Margt sameiginlegt og margt ólíkt....24 Á döfinni.............................26 Kristín Sverrisdóttir: Ljós á veginn.........................29 Það kostar átök að vera kristinn......30 3

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.