Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 6

Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 6
AÐALGREIN Undir sama dómi Orð Jesú fela þó ekki í sér að við megum ekki gera athugasemdir við neitt í fari og framgöngu annarra. Spurningin er hvernig við dæmum og út frá hvaða forsendum. Jesús leggur áherslu á að um leið og við fellum dóma yfir öðrum erum við sjálf undir sama dómi. Guð mun dæma okkur með þeim dómi sem við dæmum aðra. „Með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða“ (Mt. 7:2). Á dögum Jesú var það venja þegar kom var lánað að taka það fram í skjölum um lánið að kornið, sem greitt yrði til baka, væri mælt með sama mæli og kornið sem var lánað. Jesús hefur haft þetta í huga hér í Fjall- ræðunni. Þeir mælikvarðar, sem við beitum á aðra, hljóta einnig að gilda um okkur. I þessu sambandi er afstaða Jesú lærdómsrík fyrir okkur. Við eigum að mæta öðrum á sama hátt og Pað wri mskilinn kærleikur sem léti sér í léttu rúmi liggja hvað er rétt og rangt, gott og vont. Jesús mætti þeim sem hann umgekkst. Vissulega felldi hann harða dóma yfir faríseum og fræði- mönnum en það var vegna þess að þeir voru uppteknir af ýmsum ytri smáatriðum í breytni fólks en hirtu ekki um kjarnaatriði lögmálsins (Mt. 23). Þeir felldu dóma yfir öðrum án þess að vera tilbúnir til að setja sjálfa sig undir sama dóm. Þess vegna kallar Jesús þá hræsnara. En bersyndugum og toll- heimtumönnum, sem farísearnir og fræðimennirnir dæmdu hart og útskúfuðu, mætti hann með fyrir- gefandi kærleika. Frásagan í Jóhannesarguðspjalli 8:1-11 er athyglis- verð í þessu samhengi. Farísear og fræðimenn komu með konu til Jesú sem hafði verið staðin að því að drýgja hór. Þeir vitnuðu í lögmálið um að grýta skyldi slíkar konur og spurðu Jesú síðan hvað hann hefði um málið að segja. Úrskurður Jesú er athyglisverður: „Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana.“ Þar með voru allir settir undir sama dóm. Eftir það treysti enginn sér til að sakfella hana. Jesús sakfelldi hana ekki heldur en hvatti hana til að syndga ekki framar. Það er auðvelt að grípa steininn og ætla að kasta en í rauninni hefur enginn efni á því. Þar sem við getum aldrei losnað við eigin ávirðingar höfum við ekki efni á að dæma ávirðingar annarra. Dómsýki felur í sér fyrirlitningu á öðru fólki og er oftast sprottin af eigingirni og þeirri löngun að halda sjálfum sér fram á kostnað annarra. Dæmisaga Jesú um mennina tvo, sem fóru í helgi- dóminn til að biðjast fyrir, sýnir það glöggt (Lk. 18:9-14). Faríseinn hrósaði sjálfum sér og bar sig saman við ræningja, rangláta, hórkarla og toll- heimtumanninn sem hafði læðst inn í helgidóminn. Tollheimtumaðurinn barði sér á brjóst og bað: „Guð, vertu mér syndugum líknsamur!" Niðurlags- orð Jesú eru síðan: „Þessi maður fór réttlættur heim til sín, en hinn ekki, því að hver sem upp hefur sjálf- an sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða.“ Réttlæti okkar byggist alfarið á miskunn og fyrir- gefningu Guðs. Þess vegna höfum við aldrei efni á að bera okkur saman við aðra. Þess vegna getum við ekki gengið að öðrum og mælt þá með okkar mælikvörðum. Hið eina sem gildir er afstaða Jesú til þeirra, miskunn hans, kærleikur hans, dómur hans. Sá sem tilheyrir Jesú Kristi hlýtur að umgangast aðra í kærleika hans. Þá gefa þeir ekki lengur tilefni til að fella dóma heldur verða þeir köllun til að þjóna þeim í kærleika. Hér mætti spyrja hvort þetta feli í sér að við látum okkur standa á sama hvernig þeir sem við um- göngumst hegða sér. Svo er ekki. Kærleikurinn kastar ekki dómgreind og sannleiksást fyrir róða. Það væri misskiiinn kærleikur sem léti sér í léttu rúmi liggja hvað er rétt og rangt, gott og vont. Kærleikur Jesú til syndugra manna felur ekki í sér kærleika til syndarinnar heldur þvert á móti. Kærleikur Jesú til syndarans felur í sér fordæniingu á syndinni vegna þess að sá kærleikur snýst allur um það að leiða syndarann iðrunar og frelsa hann undan valdi syndarinnar. 15. kaflinn í Lúkasar- guðspjalli dregur þetta skýrt fram. í upphafi kaflans er Jesús ásakaður fyrir að taka að sér syndara og samneyta þeim. Viðbrögð hans voru þau að segja dæmisögurnar þrjár um týnda sauðinn, týndu drökmuna og týnda soninn. Gleðin, sem talað er um í sögunum, er ekki yfir því að hinir týndu skuli vera týndir heldur yfir því að hið týnda er fundið. Eða eins og Jesús orðar það: „Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en yfir níutíu og níu réttlátum, er 6

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.