Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1995, Side 8

Bjarmi - 01.03.1995, Side 8
AÐALGREIN Orð Jesú um dómsýkina hitta því beint í mark: „Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir. Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir." Við erum alltaf undir sama dómi og náungi okkar. Orð Guðs gildir eins fyrir alla. Við þurfum öll jafn- mikið á fyrirgefningu að halda. Guð fyrirgefur okkur af miskunn sinni. Þess vegna eigum við að vera miskunnsöm og fyrirgefa öðrum. Við eigum jafnframt að Ieiðbeina hvert öðru í kærleika og áminna hvert annað, ekki til að upphefja okkur sjálf heldur til þess að forða því að við villumst af veg- inum mjóa sem liggur til lífsins. Hvað þá með fjölmiðlana? Eiga þeir að sleppa því að fella dóma yfir fólki og boða fyrirgefningu í stað- inn? Vissulega væri það tilbreyting að sjá fjölmiðla hvetja til fyrirgefningar. En málið er ekki svo einfalt því hlutverk fjölmiðlanna er víðtækara. Þeir gegna m.a. því mikilvæga hlutverki að miðla upplýsingum og veita aðhald. Þess vegna hljóta þeir að draga ranglæti og spillingu fram í dagsljósið. Þeim ber að berjast fyrir réttlæti, upplýsa um misbeitingu valds og vafasama notkun fjármuna sem fólki er trúað fyrir o.s.frv. En fjölmiðlafólk má ekki gleyma að það er sett undir sama dóm og aðrir. Það ber ábyrgð á því sem tekið er til umfjöllunar og því ber að virða hvern einstakling og tilfinningar hans og sakleysi hans uns sekt sannast. Fjölmiðill getur misbeitt valdi sínu og áhrifamætti rétt eins og stjórn- málamaður. Sölumennska getur borið heiðarlega fréttamennsku ofurliði. Það er auðvelt að rjúka til með frétt um menn eða málefni og greina þannig frá málavöxtum að viðkomandi á sér ekki uppreisn æru þótt unnt sé að sýna fram á sakleysi hans. Vald fjölmiðlanna er því vandmeðfarið eins og annað vald sem mönnum er fengið. Ni&urlag Trúin á Jesú Krist setur okkur í nýtt samhengi. Allt líf okkar í eftirfylgdinni við hann ákvarðast af því að við tilheyrum honurn. I honum mætum við miskunn Guðs og eigum fyrirgefningu syndanna. Það á að móta afstöðu okkar til annarra. Skuldugi þjónninn í dæmisögu Jesú (Mt. 18:23-35) mætti miskunn konungsins sem gaf honum upp skuldina. Þegar hann vildi síðan ekki gera hið sama fyrir samþjón sinn kallaði hann yfir sig dóm konungsins. Síðan lýkur Jesús sögunni með orðunum: „Þannig mun og faðir minn himneskur gjöra við yður, nema hver og einn yðar fyrirgefi af hjarta bróður sínum“ (v. 35). Hér þurfum við að líta í eigin barm og minnast um leið orða Jesú sem hér hafa verið til umfjöllunar: „Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir." Bœkur og rit sem stuðst var við: Bcare, F. W. 1981. The Gospel according to Matthew. Blackwell, Oxford. Bonhoeffer, D. 1937. Nachfolge. Chr. Kaiser Verlag, Miinchen. France, R. T. 1985. Matthew. Inter-Varsity Press, Leicester. Gilhrant, Th. (red.). 1965. Illustrert Bibelleksikon. Oslo. Hill, D. 1972. The Gospel ofMatthew. Oliphants, London. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN DOMUS MEDICA & KRINGLUNNI Toppskóri 1 1 VIÐINGÓI nnn VIÐINGÓLFSTORG Verð kr. 5.395,- Stærð 34 - 40 Teg. 21901 5% staðgreiðsluafsláttur Póstsendum samdægus

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.