Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 12
ÚTVARP
Hans Kristoffer Goa
Utvarpskristnibobið
- Ijós í myrkri
Meira en helmingur þeirra sem orðið hafa
kristnir í Kína síðustu árin heyrðu
fagnaðarerindið fyrst í útvarpi. Nú eru
íbúar þessa stóra lands orðnir 1,2
milljarðar og enginn veit fyrir víst
hversu margir eru kristnir. í síðasta tölublaði Bjarma
var talað um nýjar rannsóknir á fjölda evangelískra
kristinna manna og sagt að þeir væru um 30
milljónir alls. Þær tölur sem stuðst er við í
eftirfarandi grein úr NOREA blaðinu nr. 6 1994
gera ráð fyrir allt að 100 milljónum kristinna.
Byggist það m.a. á því að opinberlega er viðurkennt
að í landinu séu 63 milljónir kristinna manna.
Gabriel Edland, þáttagerðarmaður hjá NOREA og
áður kristniboði í Hong Kong og Taiwan, heimsótti
Kína í haust ásamt hópi fyrrverandi kristniboða-
barna sem langaði til að sjá æskustöðvarnar.
útsendingarnar núna. Maður slekkur ekki
undir pottinum þegar suðan á hrísgrjónunum
er að koma upp! var svarið sem hannfékk.
- Það olli miklum óróleika meðal kínverskra
starfsmanna útvarpskristniboðsins þegar kristniboðs-
leiðtogi einn á Vesturlöndum gaf í skyn að rétt væri
að hætta útsendingum til Kína. „Sjáum við nokkurn
árangur af því?“ spurði hann. Hinir kínversku
starfsbræður voru sem þrumu lostnir:
- Þið megið alls ekki leggja niður útsendingarnar
núna. Maður slekkur ekki undir pottinum þegar
suðan á hrísgrjónunum er að koma upp! var svarið
sem hann fékk.
Sumar heimildir gera ráð fyrir því að allt að 90 %
kristinna Kínverja hlusti á hinar kristilegu útvarps-
sendingar. Þær séu lífsnauðsynlegar til fræðslu og
uppörvunar og líkja megi útvarpskristniboðinu við
vitaljós sem lýst hefur öll þessi löngu, dimmu ár
meðan bannað var að vinna að útbreiðslu kristin-
dómsins í þessu mikilfenglega landi.
Áttu vib Jesú-þætti?
Á meðan á heimsókninni til Kína stóð hitti Gabriel
Edland marga kristna menn, suma þeirra fyrir
tilviljun. - Á götu í borginni Nanyang hitti ég mann
sem sat í hjólakerrunni sinni og beið eftir
viðskiptavinum. Eg fór að spjalla við hann og
spurði hvort hann hlustaði á útvarp. Já, það gerði
hann oft. Þá spurði ég hann hvort hann hlustaði
nokkurn tíma á erlendar útvarpsstöðvar. Því svaraði
hann einnig játandi. En hlustar þú nokkurn tíma á
trúarlega þætti? spurði ég. Hann þagnaði og ég
spurði hann hvort hann skildi ekki hvað ég ætti við
með því. Allt í einu lifnaði hann við og sagði:
„Jesús! - Áttu við Jesú-þætti? Jú, þá hlusta ég oft á.
Þeir eru mér og fjölskyldu minni til mikillar hjálpar.“
I höfuðborginni, Beijing, hitti ég einnig tæplega
þrítuga konu. Hún var gift og rak fyrirtæki ásamt
eiginmanni sínum. Nú var hún að fara í viðskipta-
ferð til Evrópu og í fyrsta sinn til útlanda. Hún var
ákaflega spennt og við spjölluðum saman. Ég spurði
hana m.a. hvort hún vissi um einhverja kirkju.
„Hvað er kirkja?" spurði hún á móti. Ég reyndi að
útskýra hvað ég ætti við og sagði að í kirkjum væri
sagt frá Jesú. Þá brosti hún og sagðist vita hver
Jesús væri. „Ég heyri oft um hann í útvarps-
12