Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 16
VIÐTAL
Gísli Arnkelsson og Katrín Þ. Guðlaugsdóttir.
„Það er auðvitað viss söknuður. Börnin okkar eru
orðin fullorðin en það sem kannski er erfiðast fyrir
okkur gamla fólkið er að geta ekki fylgst með
barnabörnunum, uppvexti þeirra og þroska. En þó
að söknuðurinn geri vart við sig er gleðin og þakk-
lætið líka mikið. Við erum þakklát fyrir að þau eru
þarna úti við kristniboðsstörfin. Þau eru í þeim
störfum og á þeim stað sem Guð hefur kallað þau
til. Það er það sem er mikilvægast fyrir hvern krist-
inn mann.“
En núna um jólin, hefðuð þið ekki frekar viljað
hafa þau öll hérna hjá ykkur og vera eins og
„ venjuleg “fjölskylda ?
„Nei. Auðvitað finnum við ekki hvað síst fyrir
söknuði á stórhátíðum og þegar stórviðburðir eiga
sér stað innan fjölskyldunnar. En kristniboðið er
okkur mikið hjartans mál og það gerir aðskilnaðinn
léttari"
En eruð þið ekkert hrœdd um þau þarna úti?
„Nei, það getum við ekki sagt. Þó að kvíði læðist
að manni þá getum við treyst fyrirheitum Guðs.
Hann er með þeim og við leggjum þau í hans
hendur.“
að er þrettándi dagur jóla og tíðindamaður
Bjarma er staddur í hlýlegri íbúð að
Meistaravöllum 15 í Reykjavík. Stór
vöndur af fallegum eldrauðum rósum er til
vitnis um nýafstaðið 40 ára brúðkaups-
afmæli íbúanna hér, þeirra Gísla Arnkelssonar og
Katrínar Þ. Guðlaugsdóttur. A þessum 40 árum
hafa þau hjónin eignast sex börn og ellefu barna-
börn. Einhver kynni að ætla að þau hefðu notið
jólahátíðarinnar í faðmi allra þessara afkomenda
sinna eins og „venjulegir" afar og ömmur gera. En
Eþíópíuferö
Síðastliðið sumar fóru Gísli og Katrín til Eþíópíu og
heimsóttu alla fjölskylduna. Þau voru í viku hjá
hverju barnanna fyrir sig og eina viku var allur
hópurinn saman kominn í Avasa þar sem sumar-
leyfisstaður kristniboðanna er.
„Það var stórkostlegt að hitta þau öll og gaman að
fá að ærslast svolítið og leika við börnin.
Til Bale komum við nú í fyrsta sinn og það fannst
okkur mjög sérstakt. Það er nokkuð langt frá hinum
íslensku og norsku kristniboðsstöðvunum. Þar er
„Eigum vib ekki ab segja ab vib
séum nú ab skila þeim til baka?"
svo var ekki.
Gísli og Katrín störfuðu á árum áður sem kristni-
boðar í Konsó í Eþíópíu og nú eru fjögur elstu
börnin þeirra og öll barnabörnin ellefu í Eþíópíu, úti
á kristniboðsakrinum eins og við segjum.
Söknuöur og gleöi
Hvernig tilfinning skyldi þetta vera að hafa svo
stóran hluta fjölskyldunnar svo óralangt í burtu?
harður akur fyrir kristniboðið því múslimar eru
sterkir í héraðinu. Annars var óviðjafnanlegt að
koma á fornar slóðir og hitta vinina frá starfsárum
okkar í Eþíópíu.
Yngsta barnabarnið okkar, Markús Bjarnason,
kom í heiminn þegar við vorum úti og við vorurn
viðstödd skírn hans.
Þau barnanna, sem eru á skólaaldri, eru í heima-
vistarskóla í Addis Abeba og við vorum einmitt
16