Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1995, Síða 22

Bjarmi - 01.03.1995, Síða 22
AÐ UTAN Drottni einum sknliun við treysta Nóra hætti áb spá eir sem lesa Biblíuna vita aö spásagna- menn alls konar voru að verki meðal heiðnu þjóðanna sem fyrir voru í land- inu er Guð gaf ísraelsmönnum forð- um. Lesendur Biblíunnar vita jafn- framt að ísraelsmönnum var með öllu bannað að iðka spásagnir enda væri slíkt athæfi andstætt vilja Guðs. Spámenn Drottins voru ekki í flokki spásagna- manna. Þeir sögðu stöku sinnum fyrir um óorðna hluti sem Drottinn birti þeim. En þeir fluttu fyrst og fremst boðskap frá honum til fólksins, orð um iðrun, trú og breytni. Kristnir menn hafa ætíð viljað gjalda varhug við þeim sem segjast spá um framtíðina. Vitað er að sígaunar eru kunnir fyrir að iðka spámennsku. En til eru vitnisburðir um að þeir vísi öllu slíku á bug þegar þeir opna hjarta sitt fyrir Jesú Kristi. Spásagnir koma úr annarlegum uppsprettum, segja þeir. Nóra Jones var spá- kona og græddi á tá og fingri. Lögmenn, lækn- ar og bændur stóðu í biðröðum við hús- vagninn hennar þegar hún ferðaðist á milli stórmarkaða um allt England. Þeir leituðu svara við ýmsum mikilvægum spurn- ingum. Nú segir Nóra að hjarta sitt hafi verið eins og opnar dyr fyrir hinum vonda en Jesús Kristur hafi laugað hana hreina. Nóra og Davíð maður hennar eru meðal þeirra sem hafa orðið vitni að hinni kristilegu vakningu meðal sígauna í Englandi. Nóra tilheyrir þessu farandfólki. Hún segir að sér hafi verið kennt að spá til þess að sjá sér farborða. Nú er hún sannfærð um að ill öfl hafi verið að verki í henni í tengslum við spástarfið. — Þetta var ekki frá Jesú, segir hún og kveðst hafa fengið hina furðulegustu vitneskju um ýmsa hluti. Hún telur að þetta sé í tengslum við sálaróvininn. — Ég leit á þetta eins og hvert annað starf. En þegar ég blandaði geði við fólk og alls konar vitneskju skaut upp í hug mér hlaut ég að spyrja hvaðan hún væri runnin. Ég hafði ekkert En þegar ég blandaði geði við fólk og alls konar vitneskju skaut upp í hug mér hlaut ég að spyrja hvaðan hún væri runnin. kynnst fólkinu áður og því átti að vera óhugsandi að ég vissi neitt um það. Hún er sannfærð um að Guð hafi ekki komið þarna nærri og telur að óvinurinn hafi verið að verki. — Þá komu nokkrir franskir, kristnir sígaunar og einnig enskir. Yfir lífi þeirra hvíldi friður og gleði. Ég gerði mér ljóst að ég þekkti þetta ekki. Nóra kveðst hafa heyrt fagnaðarerindið um Jesú Krist á samkomu sem haldin var á heimili hennar. Hún hafði ætíð haft trú á Biblíunni, einnig að Guð væri til og að hægt væri að biðja hann. En hún hélt að hann væri óralangt í burtu. Hún þekkti ekki Guð. Nú áttaði hún sig á því að hún þarfnaðist Jesú Krists. 22

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.