Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1995, Side 24

Bjarmi - 01.03.1995, Side 24
AF VETTVANGI Cób heimsókn frá Englandi Margt sameiginlegt og margt ólíkt / Ilok janúar kom hingað til lands í heimsókn Keith Wells, sem verið hefur framkvæmda- stjóri KFUM í Sheffield í Englandi undan- farin 15 ár. Dvaldi hann hér á landi í 5 daga, talaði á samkomum og kynnti starf KFUM í Englandi á samverum sem hann tók þátt í. Keith var spurður nokkurra spurninga og sú fyrsta var: Hvað er sameiginlegt og hvaða mun sérðu á starfi KFUM og KFUK í Reykjavík og svo í Sheffield? - Því er ekki að neita að margt er sameiginlegt og eins er margt ólíkt. A báðum stöðum er um að ræða kristileg félög. Við í Sheffield leggjum áherslu á að Jesús Kristur er miðpunktur starfsins, það er sá þáttur sem allt starfið snýst um. Hins vegar viljum við vera opið félag sem býður alla velkomna til þátttöku í starfi félagsins, í þeirri von að þeir kynn- ist trúnni og kjósi að fylgja Jesú Kristi.Við vinnum Tensing-staifið okkar er nú rúmlega 10 ára gamalt og líklegast sá liður starfsins sem hefur skilað mestum árangrifyrir okkur sem kristilegt ceskulýðsfélag. að því með sérstakri boðunardagskrá og eins með því að bjóða fólki á óformlegri samverur þar sem við tölum saman og kynnumst og byggjum þannig upp vináttu sem oft leiðir til þess að fólk kemst til trúar. Mér sýnist við leggja meiri áherslu á félags- lega hjálp í okkar starfi en þið gerið hér en þið leggið mikla áherslu á boðun fagnaðarerindisins sem er ykkar styrkur. T.d. erum við með sérstaka áætlun sem við störfum eftir á meðal atvinnulausra. Hér á Islandi eru aðstæður svipaðar og í Noregi þar sem ég þekki vel til. Þið starfið á kenningar- grundvelli og innan þjóðkirkjunnar. í Sheffield er KFUM samkirkjulegt félag og bæði eru launaðir starfsmenn og félagar úr ýmsum kirkjudeildum. Þegar svo er þurfum við að sjálfsögðu að gæta þess að halda okkur við það sem við eigum sameiginlegt. Getur þú lýst í stuttu máli hvernig starfið er upp- byggt? - Eins og flest félög erum við með stjórn sem markar stefnuna bæði hvað varðar áherslu í starfi, notkun fjármuna o. fl. Eg hef verið framkvæmda- stjóri félagsins s.l. 15 ár og með mér 75 manns í launaðri vinnu. Segja má að áherslan í þessu starfi sé tvíþætt. Annars vegar er um að ræða starf sem við rekum sem fjáröflun þó svo það geti einnig gefið okkur tækifæri til að hjálpa fólki og boða því fagnaðarerindið. Hins vegar er um að ræða venju- legt KFUM-starf þar sem við vinnum að því að sinna einstaklingunum og þroska þeirra til líkama sálar og anda, sem þrjár hliðar þríhyrningsmerkisins okkar standa fyrir. Sem dæmi um helstu þættina í starfinu er fyrst að nefna n.k. gistihús þar sem fólk býr eitt ár í senn. Þar er rými fyrir 104 og um 40% þeirra sem þar búa eru erlendir stúdentar, önnur 40% er ungt, atvinnu- laust fólk. Við rekum einnig íþróttamiðstöð þar sem er að finna líkams- og sálarræktarstöð sem er mjög vinsæl og með fjölbreytta dagskrá. Við rekum einnig leikskóla og svokallaða „mjúka miðstöð" sem er eiginlega opinn forskóli þar sem allt umhverfið er mjög mjúkt og erfitt að meiða sig en gaman að leika sér. Æskulýðsmiðstöðin okkar er mjög vinsæl og okkur vantar tilfinnanlega fleiri sjálfboðaliða til 24

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.