Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 31

Bjarmi - 01.03.1995, Qupperneq 31
AÐ UTAN Tilkynnt var að mennirnir yrðu liýddir öðru sinni stuttu síðar. En þá barst hinunt ungu hetjum liðsinni úr óvæntri átt. Tveir menn frá skrifstofu suðvestur- umdæmisins, annar var Guðlaugur, komu til fundar við heimamenn til að ræða málin. Virtust hinir heiðnu öldungar fólksins óhagganlegir í andstöðu sinni við kristindóminn. En konungur Voitómanna, sem er heiðingi, kom á fundinn - og hann bauð að enginn skyldi barinn því að menn ættu að geta lifað í sátt og samlyndi þó að þeir aðhylltust ekki sama átrúnað. Guðlaugur skrifaði Skúla Svavarssyni formanni Kristniboðssambandsins bréf þegar til stóð að mis- þyrma piltunum öðru sinni og var þeim tilmælum komið til kristniboðsflokkanna hér um að menn En konungur Voitómanna, sem er heiðingi, kom áfundinn - og hann bauð að enginn skyldi barinn því að menn œttu að geta lifað í sátt og samlyndi \)ó að þeir aðhylltust ekki sama átrúnað. ákölluðu Guð vegna þessara mála. Þegar fréttir bárust um málalyktir urðu kristniboðsvinir glaðir. Þeir þakka einnig Guði fyrir að Barrisja Húnde er frjáls. Margir höfðu beðið fyrir honum. Styöjum fjarlæga vlni „Gegnum hættur, gegnum neyð, göngum, Kristsmenn, vora leið.“ Þannig hefst kunnur sálmur. Það er mála sannast að allir kristnir menn verða að berjast til að halda velli, ýmist við sinn innri mann, við freistingar, við kjarkleysi, við deyfð og doða nreðal fólksins eða vegna ódulins fjandskapar af hálfu andstæðinga Krists. Frelsarinn sagði þetta fyrir. Þess vegna reynir á þolgæði lærisveinanna, að þeir gefist ekki upp heldur viðurkenni óhikað hverjum þeir þjóna og styðji hver annan. íslenskir kristniboðsvinir veita eþíópskunt bræðr- um og systrum hjálp með því að halda áfram að efla kristniboðið og láta ekki af að biðja fyrir starfinu og söfnuðunum úti á akrinuin. Barrisja Húnde. Kvebja frá Barrisja Meðan Bjarrni var í vinnslu barst kveðja til íslands frá Barrisja. Þar þakkar hann kristniboðsvinum fyrirbænir fyrir hinni ungu sýnódu lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu og þann vinarhug sem honum var sýndur meðan hann var í fangelsinu. Hann vekur athygli á því að ekki einungis hann hafi verið sýknaður heldur var jafnframt lýst yfir því að sýnódan tengdist vígaferlum ekki að neinu leyti eins og suntir höfðu haldið fram. Þessa farsællu lausn mála þakkar ltann rneðal annars bænum kristniboðsvina. Barrisja ætlaði í sex vikna leyfi til þess að dveljast hjá fjölskyldu sinni og jafna sig eftir vistina í fangelsinu. 31

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.