Heima er bezt - 01.05.1952, Síða 6

Heima er bezt - 01.05.1952, Síða 6
134 Heima er bezt Nr. 5 Þórarinn Helgason: Fyrsta hópferð íslenzkra bænda til Norðurlanda Það var hinn 19. júní 1948, kl. 6.30 að morgni, að hópur manna safnaðist í skrifstofu Loftleiða í Lækjargötu. Daginn þennan átti að hefja þá vel undirbúnu Noregsför sunnlenzkra bænda, sem þáverandi form. Búnaðar- sambands Suðurlands, Guð- mundur Þorbjamarson á Stóra- Hofi, ýtti úr vör. Til fararinnar réð sambandið tólf bændur og Árna G. Eylands stjórnarráðs- fulltrúa að fararstjóra. Auk þess tók þátt í förinni frú hans og Guðmundur Jónsson skólastjóri á Hvanneyri með nemendur úr framhaldsdeild bændaskólans, og var þetta þáttur í námsför piltanna til Norðurlanda, sem Guðmundur stjórnaði. Alls tóku þátt í förinni um Noreg 25 manns, þar til tvo síðustu dag- ana, er Guðmundur og piltar hans urðu að slíta félagsskap- inn vegna annarrar áætlunar. Ekki voru ráð á að ætla til dvalar í Noregi nema ellefu daga. Takmarkaðist tími þessi svo af tvennu: annríki bændanna ann- ars vegar og flugferð heim hins vegar. Til að tryggja, að þessi stutti viðstöðutími kæmi að sem beztum notum skrifaði Árni til „Selskabet for Noregs vel“ og mæltist til, að það tæki að sér að skipuleggja ferðalagið í Noregi með tilliti til óska hans um við- komu á nokkra tiltekna staði. Félagið varð vel við og sá um farartæki og gistingar með mestu pröði. Án milligöngu þess hefði öll ferðin orðið stirðari og örðugri, því að tími var orðinn í namara lagi, er förin var ráðin, til undirbúnings þar í landi. Nor- egur er mikið ferðamannaland og því ógernnigur að fá þar inni á gistihúsum nema ráðstafanir séu gerðar með löngum fyrirvara Engum mun koma á óvart, þó að Noregur yrði fyrir vali, er bændur á íslandi hófu utanför til kynningar í fyrsta sinni. Ber margt til þess. ísland byggðist að mestu af Norðmönn- um og eigum við því þangað að telja til nánustu frændsemi í önnur lönd. Höfðingjar hér fram eftir öldum áttu skammt til frændsemi við konunga, jarla og önnur stórmenni í Noregi. Var því fjárafla- og virðingarvæn- legt að sækja þá heim, enda herma svo sögur, að oft þágu íslendingar af þeim vingjafir ekki smáar. Fyrir kom, að þeim var gefinn hafknörrinn með rá og reiða, hlaðinn því, er mest skorti á íslandi: húsaviði og korni. Fyrstu aldirnar, eftir að ís- land byggðist var ekki gerður munur á þjóðerninu beggja vegna álsins. íslendingar hétu í Noregi Vestmenn og Norðmenn á íslandi Austmenn. Þó að þetta hafi breytzt,er vinátta og frænd- rækni órofin milli þjóðanna. Svo hlýtur það j afnan að verða. Bók- menntirnar" eiga sinn mikla þátt í því. íslendingasögurnar byrja á því að segja frá mönnum og atburðum í Noregi. Við lestur þeirra og Heimskringlu heillast hugur fslendingsins á unga aldri af landinu og þjóðinni. Og á þetta án efa sinn þátt í því, að útþráin stefnir þangað fyrst og fremst. Síðan sækir töfraljómi sagnanna á hugann alla tíð, og þegar svo tækifærið kemur, að íslenzkir bændur verði frum- ferlar til útlanda, er auðskilið, hvers vegna Noregur varð fyrir valinu. Hér er ekki rúm fyrir ferða- sögu, enda er Noregsförin skráð og gefin út í sérstakri bók. En um förina má segja í fáum orð- um það, að hún tókst með mikl- um ágætum. Studdi þar hvað annað góður félagsskapur allra þeirra, er þátt tóku í förinni, á- gætar móttökur og indælt veður. Flugferðin verður bændunum strax stór viðburður, því að flest- ir sigla þeir loftin blá í fyrsta sinni. Útsýnin yfir Jaðarinn er eins og opinberun. Þar gefur á að líta skipulega ræktun og samræmi í byggingum. Byggðin er þéttskipuð og afmarkast í reiti, þar sem skiptist á tún, akrar og skógarbelti. Saman- burðurinn og andstæðurnar koma í hugann. Að heiman lá leiðin yfir Reykjanesskagann. Ólíkara gat það naumast verið, sem við sáum við fyrstu sýn af Noregi. Eigi er undarlegt, þó að landnámsmanninum, er átti á bak að sjá þessum landshluta og tók landsýn af Ströndum, er snær var nýfallinn á fjall eitt, yrði söknuður í hug: Hefk lönd og fjöld frænda flýit, en hitt es nýjast: Kröpp eru kaup ef hreppik Kaldbak, en læt akra. Alls staðar bergmálar sagan gegnum aldimar, hvar sem far- ið er um Noreg. Flugvélin lenti á Sólaflugvelli, sú byggð er fræg að fornu og nýju. Jaðarinn er eitt mesta land- búnaðarhérað í Noregi. Þar er margt merkilegt að sjá. Þau ræktunarafrek, sem þar hafa verið unnin, munu torfundin í sama mæli annars staðar. Kom- ið var þar á marga staði, m. a. á tilraunabúið Forus, lýðháskól- ann á Öxnavaði. Skóli þessi var reistur 1940 og var ekki enn bú- ið að fullgera allar byggingar. Skólastjórinn sagði, að skólabúið hefði að verulegu leyti staðið undir þeim framkvæmdum, sem þarna mátti sjá. Og er skóla- stjórinn sýndi það, sem ekki var lokið við, gerði hann þessa at- hugasemd: „Skólinn hefur nóga peninga, það eru bara erfiðleik- arnir að fá efnið.“ Höfuðborgin á Rogalandi, Stafangur, gleymd- ist ekki heldur, borgin sveita- lega með sveitalega fólkið og fögru kirkjuna frá 12. öld. Þá fyrnist seint innsiglingin til Björgvinjar og borgin sjálf um- lukt fjöllunum sjö. Og fallega hefur tekizt að klæða fjallið þar, því að allur er þessi stórskógur þar gróðursettur, mest af unglingum. Bændaförin var á Snorrahátíðinni, er styttan var

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.