Heima er bezt - 01.05.1952, Síða 15

Heima er bezt - 01.05.1952, Síða 15
Nr. 5 Heima er bezt 143 * * „— Utilegumenn í Odáðahraun eru kannske að smala fé á laun“ Kofarústirnar i Hvannalindum. Ríkur þáttur í hugmyndaheimi íslenzku þjóðarinnar um aldir hefur útilegumannatrúin verið. Menn áttu erfitt með að hugsa sér hin geysistóru flæmi inni í landinu óbyggð með öllu. Að vísu bjuggu álfar og huldufólk í hverjum hól, og tröll í fjöllunum, en það er engu líkara, en að fólki hafi ekki fundizt nógu mikið raunveruleikabragð að slíkum sögum. Sögur um útilegumenn komu snemma fram. Að lokum urðu öræfin „þéttbyggð“, ef svo mætti að orði komast. Það er eins og öll velsældin í dölum útilegumannanna sé einskonar upp- bætur fyrir alla þá eymd, sem fólkið í hinum strjálu byggðum varð að þola öldum saman. Útilegumannasögurnar urðu rómantík — uppfylling draums, sem aldrei gat rætzt á venjulegan hátt hjá hrjáðri og fátækri þjóð. Og þó liggur hræðilegur veruleiki að baki margra þessara sagna, sem urðu svo vinsælar meðal almennings. Hin fyrstu lög íslenzku þjóðarinnar urðu til þess að skapa útilegu- mennina — hina raunverulegu útilegumenn. Skóggangssök þýddi oft það sama fyrir þann, sem fyrir henni varð, og að verða að freista tilverunnar aleinn á fjöllum uppi. Þau urðu örlög Grettis, Gísla Súrssonar og Harðar Grímkelssonar, svo að nokkur kunnustu nöfn- in úr sögunum séu nefnd. Söguna um Hellismenn er fyrst að finna í Landnámu. Það má því segja, að útiiegumennirnir séu jafngamlir íslands byggð. Frá síðari öldum eru til allmargar sagnir um útilegu- menn, en hinn frægasti þeirra er Fjalla-Eyvindur. Hafðist hann við á fjöllum uppi í mörg ár, og hafði stundum konu sína með sér, eins og kunnugt er. Þó mun mörgum þessara vesalings manna hafa verið liðsinnt af fólki í byggð, þegar þeim voru allar bjargir bannaðar. Talið er, að Eyvindur hafi hafzt við í Hvannalindum um skeið, og rústir þær, sem myndin er af, séu frá hans dögum. — Trúin á að úti- legumenn hefðust við í óbyggðum, hefur haldizt furðu lengi. Björn Gunnlaugsson gerði sér far um að rannsaka stöðvar útilegumanna á ferðum sínum, til þess að geta sannað, að útilegumannatrúin hefði ekki við rök að styðjast. Lenti hann í ritdeilu út af því. Má nánar lesa um það í ritinu „Hrakningar og heiðavegir“. — Sögurnar um útilegumenn hafa og sett önnur spor í bókmenntasöguna, en frá- sagnirnar í hinum ýmsu þjóð- sagnasöfnum. íslenzk leikrita- skáld hafa notað útilegumanna- sagnir sem uppistöðu í mörg vinsælustu leikrit, sem hér hafa verið sýnd á sviði. Matthías Jochumsson reið á vaðið með „Útilegumennina“, þá komu „Nýársnótt" og „Hellismenn" Indriða Einarssonar, en frægast allra þeirra er þó „Fjalla-Ey- vindur“ eftir Jóhann Sigur- jónsson. Gæti það verið efni í hugleiðingu út af fyrir sig, vegna hvers leikritaskáldin hafi valið þetta efni öðru fremur, svo fjarlægt nútímanum sem það annars virðist vera. — íslenzk ættarnöfn Frh. af siðu 142. beygingu og hvers kyns sem orð- in eru. Þau eru engin íslenzka nema þau geti hneigst öldungis eins og hver önnur orð í mál- inu.“ Fyrirmyndir íslenzkra ætt- arnafna, verði þau á annað borð leyfð, ættu að verða viðurnefn- in fornu, svo sem Þóra borgar- hjörtur, Oddný eykyndill, Gunn- laugur ormstunga, Ásmundur hærulangur. Því eiga menn, ef þeir endilega vilja bera ættar- nöfn, að nefnast til að mynda Árni Hólmur, ekki Árni Hólm, Guðni Galtalækur, ekki Galta- læk, Sigurður Borgarfjörður, ekki Borgfjörð. Færir síra Jó- hannes síðan að þessu ýms rök, sem hér vinnst ekki tími til að rekja. Skömmu eftir þessar umræð- ur var ættarnafnamálið flutt inn á Alþingi. Hófust þá nýjar og harðvítugar deilur um rétt- mæti ættarnafna, og fóru þær fram bæði innan þings og utan. Mun ég segja nokkuð frá þeim orðaskiptum í annari grein. — Heima ER BEZT er bezti heimHisvinurinn —i— -!______________

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.