Heima er bezt - 01.05.1952, Qupperneq 18

Heima er bezt - 01.05.1952, Qupperneq 18
146 Heima er bezt Nr. 5 á týndum dýrum, því að merkið segir til um eigandann. Og lendi þessi dýr í umferðaslysum, er læknishjálpin tryggð, og kostn- að allan greiðir stofnunin. Auk þess starfrækir sambandið tryggingarstofnun, þar sem hlutaðeigendur geta tryggt sig fyrir meiðslum, sem dýr valda. Hér á eftir mun sagt nánar frá starfi ýmissa deilda L.L.S.D. Heilsuhœlið. Varla mun ofmælt, þótt sagt sé, að heilsuhælið sé sá möndull, sem allt annað starf L.L.S.D. snýst um. Auk þess sem það reynir að sjá sjúklingum í höfuð- borginni og í héruðum úti um land fyrir hælisvist, hefur það einnig innan vébanda sinna all- ar birgðir, sér um lyfjagerð og dreifingu á þeim til lyfjabúða dýranna út um allt Bretland, og birgir auk þess margar slíkar verzlanir erlendis upp af vörum. Og hér er líka skóli til að þjálfa væntanlegt starfslið stofnunar- innar. — Röntgendeild er hér einnig, og er þar ávallt nóg að starfa. Þeir sjúklingar, sem sérstakr- ar rannsóknar þurfa við og hæl- isvistar, eru sendir beint til heilsuhælisins í Essex, og koma margir þeirra langt að. Og sára- sjaldgæft er það, að hesthús eða hundabyrgi standi tómt, en venjulega er fjöldi sjúklinga, sem ekki þurfa bráðrar hjálpar við, á biðlista. Á hestdeildinni er meðal hælisvist tvær vikur. Sjúkdómar, sem voru þar til meðferðar nýlega, voru t.d. bólga í fótum, alvarlegir tann- og kjálkasjúkdómar, sár og önnur meiðsli af slysum, helti sökum járningar og fæðingarhjálp fyrir hryssur, sem ekki gátu fætt hjálparlaust. Smádýradeildin er jafnan svo fullskipuð, að ekki er ábætandi, og ber brýna nauðsyn til að staékka hana. Algengastir eru innvortiskvillar, sem þarfnast uppskurðar og auk þess hvers- konar beinbrot, mörg mjög erf- ið viðfangs. Þessir sjúklingar þurfa stöðugt eftirlit og hina ná- kvæmustu hjúkrun. Dýr, sem eru með aðskotahluti í hálsi eða annars staðar, eru og mjög tíðir Röntgenmyndir eru jafnan teknar, ef nokkur þörf er á. Og aldrei er uppskurður gerð- ur án þess að taka fyrst mýnd. — Hér er verið að taka mynd af hesti. Töflur og duft 6.987.297, klóró- form 5.136 merkur, sárabindi 57.- 912, baðmull 2.402 pund, smyrsl 1.868 pund, lyf 8.605 merkur, húðáburð 3.949 merkur, línskaf 1.679 pund, lyfjakúlur 30.420 tylftir. Af þessu yfirliti má nokkuð marka, hve víðtækt og margþætt starf L.L.S.D. er, og er þó langt því frá að hér sé um tæmandi skýrslu að ræða. Auk þess, sem áður er getið, sér L.L.S.D. einnig um fyrir- lestrahald hjá æskulýðsfélögum og skólum og öðrum stofnunum. Mjög mikilvægt er talið að vekja áhuga barnanna á meðferð á dýrum, og með þessu móti gefst uppvaxandi kynslóð tækifæri til að læra undirstöðuatriði í meðferð sjúkra dýra, en þar er ekki einvörðungu um að ræða þekkingu, sem kemur þeim sjúku sjálfum í hag, heldur og þjóð- arheildinni allri, svo mjög sem öll afkoma mannanna byggist á skepnunum. Og börnin hafa brugðizt vel við, þau hafa bundizt samtök- um og skipa sérstaka deild inn- an heildarsamtakanna og vinna mikið starf og merkilegt fyrir gott málefni. Sérstök deild innan L.L.S.D. sér um merkingu allra dýra fyrir litla þóknun á ári. En merkin eru málmplötur með ein- kennisstöfum, og er mun hæg- ara um vik en áður að hafa upp

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.