Heima er bezt - 01.05.1952, Side 19
Nr. 5
Heima er bezt
147
sjúklingar. Sumir þeirra hafa t.
d. gleypt peninga, skrúfur, nálar,
og einn sjúklingur okkar hafði
meira að segja gleypt teskeið,
er verið var að gefa honum
þorskalýsi.
Heilsuhæli þetta hefur til um-
ráða 30 ekrur lands og myndar
þrjár hliðar í ferhyrningi, en í
honum miðjum er skurðardeild,
mikið húsbákn og svo Röntgen-
deild. Bak við skurðardeildina
er járnsmiðja, þar sem sérfræð-
ingur í hestajárnun smíðar sér-
stakar skeifur, sem laga sig eft-
ir skemmdum og vansköpuðum
hófum. Hér er líka skurðarstofa
fyrir smádýr, geldingarstofa og
svæfingarstofa.
í norðurálmu þessarar bygg-
ingar er sjúkrastofa stórgripa,
og þar er rúm fyrir tuttugu veika
hesta.
Að slepptum sárum og meiðsl-
um, sem hestar hljóta við um-
ferðaslys, hnakka- og aktýgja-
meiðslum, innvortis kvillum og
öndunarkvillum, eru þessar
skepnur líka oft og tíðum fórn-
arlömb ókærinna og fáfróðra
húsbænda. Einu sinni kom t. d.
bóndi með smáhest (pony), sem
meiðzt hafði í kjálka fyrir hálfu
ári, og aldrei leitað læknisráða,
en er hér var komið, var skepn-
an orðin mjög hættulega veik.
Bak við sjúkrahús byggingar-
innar eru hesthús og víðáttu-
miklar haglendur fyrir hross. En
í suður frá byggingunum eru
vagnaskýlin, og smádýradeild,
sem aðeins getur tekið á móti
þrjátíu og sex sjúklingum, sem
þurfa brýnnar hjálpar.
Auk þessa eru þarna kennslu-
stofur, tilraunastofur og rann-
sóknarstofur. Og allar þessar
stofnanir eru búnar fullkomn-
ustu tækjum, sem völ er á.
Nemendur verða að hljóta mikla
starfsþjálfun, áður en þeir eru
brautskráðir, og gangast undir
mörg próf.
í rannsóknarstofunni fer fram
blóðprófun, smásjárrannsóknir
á sjúkum vefum og bakteríu-
rannsóknir, og allt verður þetta
til að auðvelda öðrum sérfræð-
ingum stofnunarinnar að kom-
ast fyrir rætur mjög marg-
þættra meina. Nú er hægt að
láta lyfjastofnuninni í té rann-
sóknarskýrslur og sundurliðað-
ar læknisfræðilegar upplýsingar,
hvenær sem hún æskir og oft
með mjög litlum fyrirvara, svo
að hægt er, að kalla þegar í stað,
að hefja réttar og áhrifamiklar
aðgerðir gegn sjúkdómunum. Á
einum þremur mánuðum sendi
þessi rannsóknarstofa frá sér
731 prófun og skýrslur, sem
lagðar voru undir úrskurð
lyfjadeildar og starfsíiðs sjúkra-
hússins. Fjölmörgum lífum er
bjargað með svo skjótri og á-
reiðanlegri sj úkdómsgreiningu.
Sjúkravagnar L.L.S.D. svara kalli á hvaða
tima sólarhrings sem er. Þeir eru búnir
öllum nauðsynlegum lyfjum, umbúðum
og tcekjum.
Sjúkrahús og sjúkravagnar.
Sjúkrahúsin, sem starfrækt
eru utan höfuðborgarinnar,
gegna sömu hlutverkum og
heilsuhælið og taka á móti vist-
arsjúklingum. Sum starfa í
tveimur deildum, en hafa auk
þess nýtízku skurðarstofu,
sj úkravagnaskýli og ágætar
geymslur fyrir hvers konar
sjúkragögn.
Sjúkravagnar L.L.S. D. svara
kalli á hvaða tíma sólarhrings
sem er, Sökum þess hve húsdýr-
um hefur fjölgað ört í Bretlandi,
hafa umferðaslys á dýrum færzt
mjög í vöxt og má búast við, að
þau færist enn í vöxt eftir því
sem farartækjum fjölgar. Þess
vegna hefur stofnunin orðið að
auka mjög sjúkravagnafjöld-
ann, og eru þeir nú 18 talsins.
Nýjum áfanga var náð árið
1948, er næturvarzla var hafin,
svo að sjúkravagnar voru alltaf
til taks.
Vagnar þessir eru að sjálf-
sögðu mest notaðir, er skyndi-
leg slys ber að höndum og enn-
fremur sem tengiliður milli
lyfjabúða og hjálparstöðva og
sjálfra sjúkrahúsanna. Hver
vagn hefur ekið að meðaltali
meir en 10.000 mílur á þessu ári
(1950). Oft eru verk starfsliðs-
ins hættuleg, því að í þeirra hlut
fellur að bjarga dýrum ofan úr
háum trjám, af húsþökum ' og
reykháfum, og er þar helzt um
ketti að ræða. Auk þess er oft
beðið um hjálp í þeim héruðum,
þar sem flóða- eða snjóahætta
er mikil.
Umferðaslysin mæða þó mest
á starfsliðinu, en brunasár, sem
orsakast af eldi eða sjóðandi
vatni, hafa færzt í vöxt, og þá
er að fá sjúkravagn.
Sj úkravagnarnir eru búnir
öllum nauðsynlegum lyfjum,
umbúðum og tækjum, meðal
annars til svæfingar, ef skurð-
aðgerð má ekkert dragast. Ef
dýr eru svo illa farin, að engin
von er um, að þau geti komizt
til heilsu, hljóta þau sársauka-
lausan dauðdaga.
Hér skal tekið dæmi um verk-
efni sjúkravagnsins:
Símað hafði verið frá einni
neðanjarðarstöðinni í London
og beðið um hjálp. Einn lækn-
anna fékk sér þegar sjúkravagn
og fór á vettvang. Sjúklingurinn
var hundur, sem fest hafði fæt-
urna í rafmagnsstiga. Og nú lá
hann í blóði sínu í herbergi
stöðvarstjórans: slagæð hafði
skaddazt. Hér mátti engan tíma
missa, ef seppi átti lífi að halda,
Blóðrásin var stöðvuð, og hund-
urinn fluttur í sjúkravagni til
aðalstöðva L.L.S.D. mílu vegar í
burtu til svæfingar og umbind-
ingar. Síðan lagði vagninn af
stað með seppa, og geystist nú
gegnum City og Austur-London
til Ilford, en þar átti að fara
fram aðgerð á sjúklingnum til
varnar losti (^nti-shock treat-
ment) og gegnlýsing, Eftir næfc-
urhvíld var tekinn hluti af
sködduðu tánum. Og er hund-
urinn hafði hvílzt og notið
hjúkrunar í tíu daga, var hann