Heima er bezt - 01.05.1952, Page 20

Heima er bezt - 01.05.1952, Page 20
148 Heima er bezt Nr. 5 orðinn heill heilsu að öðru leyti en því, að hann var svolítið haltur. Ef slíkri sjúkrahjálp hefði ekki verið til að dreifa, hefði hundinum blætt út. Lyfjavagnar og umferða- lœknar. Auk fjölmargra fastra hjálp- arstöðva, sem dreifðar eru um allt Bretland, eru sextán lyfja- búðir og sjúkrastofur á hjólum. í hverjum vagni er fullkomin skurðarstofa, sem starfrækt er eftir áætlun. Vagnar þessir gista meira en hundrað smáborgir og þorp úti á landsbyggðinni, þar sem ekki hefur verið hægt að koma á fót fastastöðvum. Nægi- leg viðdvöl á hverjum stað er um ein klukkustund, en tvíveg- is verður að gista hvern stað vikulega til þess að fylgjast með bata sjúklinganna. Vagnarnir halda áætlun sína eins vel og járnbrautarlestirnar, og ávallt er fólk með dýr sín fyrir, er komið er í áfanga. í hverjum vagni eru margir skápar og hillur fyrir lyf og um- búðir, svæfingarklefar, þar sem einnig fer fram eyðing þeirra dýra, sem engin von er um. Auk þess eru vagnarnir útbúnir með heitu og köldu vatni og raflýst- ir. Verkfræðingar og smiðir hafa lagt sig alla fram um að gera vagna þessa svo úr garði, að þeir séu hlutfallslega léttir, en þó sterkir og komist leiðar sinnar, þótt færð sé ill. Starf L.L.S.D. læknis við lyfja- vagnadeildina er oft mjög erfitt. Á einum degi verður hann ef til vill að fara hundrað mílna leið um alls konar vegi, og jafnvel hálfgerðar vegleysur. Og oft ber- ast hundrað beiðnir daglega, og þar sem vagnarnir hafa áætlun- arferðir er ekki sjaldgæft, að þeir séu stöðvaðir á vegum úti, er dýraeigendur þarfnast ein- hverra leiðbeininga eða ef sjúklingur er í bráðri hættu, svo að hjálpin má ekki dragast. En umferðarfyrirkomulagið gerir stofnuninni kleift að ná til manna í dreifbýlinu, þar sem annars væri lítillar hjálpar að vænta, og auk þess getur starfs- liðið með þessu móti leitað uppi dýr fátæklinganna og þurfa þvl oft og tíðum ekki að bíða þess, að eigendurnir komi sjálfir á vettvang, heldur er farið heim til þeirra og þeim með því spör- uð fyrirhöfn og nokkur kostnað- ur, en nú eru miklir erfiðleikar á því, að almenningur í Bret- landi geti leyft sér nokkur ferðalög. Fyrir nokkrum árum voru snjóar miklir í Bretlandi, og þá vann L.L.S.D. furðulegt afrek, er stofnunin gekkst fyrir björgun sauðfjár og hrossa á Yorkshire- heiðum og í Devon. Beðið eftir hjálp. Heimili flœkingsrakka. í mörgum landshlutum hefur L.L.S.D. samvinnu við lögregluna um að koma vanskilaskepnum í hendur réttra eigenda. Að beiðni hennar hefur verið komið á fót heimili fyrir flækingshunda á bak við lögreglustöð eina í Mid- land. Nú eru slík heimili fimm að tölu. Hefur hver hundur sitt byrgi, en stofnanirnar hafa mið- stöðvarkerfi og matseld fer fram við rafmagn. Af 3000 hundum, sem hundaheimilin höfðu á vegum sínum árið 1950, var 2000 ýmist komið aftur til heimila sinna eða þeim fengin ný heim- ili. Það hefur háð okkur og svo lögreglunni mjög í starfi, hve hundaeigendur hirða lítt um að fylgja settum lagafyrirmælum um merkingu hunda. Þótt hundar séu mjög hafðir til skemmtunar í borgum, er því ekki að leyna, að þeir hafa margir innt af höndum mikils- vert starf, og eru til svo margar sögur um vitra hunda, að óþarft er að rekja þær hér, en þó skal ein sögð. Paddy var ekki eingöngu eini vinur einmana manns, heldur og hjálparhella og bjargvættur hans, því að eigandi hans var blindur og gamall og treysti al- gerlega á leiðsögn hundsins úti við. Sem dæmi þess, hve seppi var „vel mannaður“ má og geta þess, að hann vísaði húsbónda sínum jafnan á loftvarnarbyrg- ið, er loftárásirnar voru sem á- kafastar á London, og ávallt lagði hann af stað með hann heim aftur, er merki var gefið um, að hættan væri liðin hjá. Það þarf ekki mikið hugarflug til þess að geta gert sér í hugar- lund, hve einlæg vinátta þeirra félaga hefur verið. En svo vildi einu sinni óhapp til: Paddy lenti í umferðaslysi. í fyrstu leit út fyrir, að hann hefði fótbrotnað, en það gat aftur orðið til þess, að eigandi hans yrði að halda kyrru fyrir um alllangt skeið. Granni gamla mannsins gerði nú það góðverk að fara með seppa til næstu deildar L.L.S.D., og þaðan var hann síðan flutt- ur í sjúkravagni til heilsuhæl- isins, því að gegnlýsa þurfti fótinn. Sem betur fór sýndu myndirnar, að fóturinn var ekki brotinn og þar af leiðandi þurfti hann aðeins að dveljast í sjúkra- húsinu í nokkra daga sér til styrkingar og hvíldar. Og hann varð alveg jafngóður eftir. Sjúkravagninn, sem flutt hafði hann, fór nú með hann aftur, og þið getið rétt gert ykkur í hug- arlund gleði gamla mannsins, er Paddy gat aftur hafið sinn fyrri starfa að leiðbeina honum á vegum úti og firra hættum. Börnin og L.L.S.D. Eins og áður er frá greint, vinna börnin mikið starf í þágu L.L.S.D., enda telur sú hjálpar- deild nú 80.000 börn, og ber nafnið Býflugnadeildin. Allt er gert til þess að kenna börnun- um að meðhöndla dýrin á rétt- an hátt og hlúa vel að þeim; einnig læra þau að hjúkra dýr- um og veita bráðabirgðahjálp.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.