Heima er bezt - 01.05.1952, Page 28

Heima er bezt - 01.05.1952, Page 28
156 Heima er bezt Nr. 5 Bergmálið í Brattahlíð Ævintýri eftir Eli Erichsen Einu sinni bjó lítill drengur með móður sinni í litlum bæ, sem stóð undir háu fjalli. Það hét Brattahlíð. Þau voru svo fá- tæk, að þau gátu aðeins varizt sárasta skorti. Drengurinn var orðinn það stór, að hann vissi og skildi, að væri hann svangur, yrði hann að afla sér matar sjálfur. Hann kom ekki fljúgandi rakleitt upp í hann án allrar fyrirhafnar. Hann varð líka að safna eldiviði á sumrin og geyma til vetrar, svo að kuldinn ynni þeim ekki mein. Hann hafði nóg að gera og meira en það, en engan tíma til þess að láta sér leiðast. Hann vann alla daga og var alltaf í góðu skapi. Hann átti líka dálítið, sem hann var mjög hreykinn af. Enginn gat tekið það frá honum. Það var nafnið hans. Hann hét Ari. Eng- inn átti slíkt nafn sem hann. Guðmóðir hans hafði gefið hon- um það, þegar hún hélt honum undir skírn. „Ég hef enga gjöf að gefa þér“, sagði hún, „en fallegt nafn skaltu hljóta. Það mun afla þér bæði fjár og frama. Ari skaltu heita.“ Árin liðu, hvert af öðru, og Ari var orðinn fullvaxinn piltur. Hann vann jafnan baki brotnu, en hann var kátur og glaður, þrátt fyrir fátækt sína. „Nafn mitt skal auð og frægð mér færa, en fyrst þarf ég ótal- margt að læra,“ söng hann. Einn dag var hann uppi í fjalli að leita að kind, sem týnzt hafði frá honum. Hann var að skyggn- ast eftir henni í lágvöxnu skóg- arkjarri þegar hann þóttist heyra kveinstafi skammt frá sér. Hann gekk á hljóðið. Undir stórum steini í grjóturð sat gömul kerling og barmaði sér sáran. „Ó, hvað ég er svöng. Guð gæfi, að einhver kæmi, sem gæti gefið mér svolítinn matarbita.“ „Það skal ég gera, gamla mín,“ sagði pilturinn og stakk vænni brauðsneið í krumlurnar á henni. „En hver ertu, og hvers vegna liggurðu hérna í grjóturð- inni en ekki heima í rúminu þínu,“ spurði hann. „Þið kallið mig Bergmálið í Brattahlíð“, tautaði kerling. „í mörg hundr- uð ár hef ég setið á hæsta tindi fjallsins, og þegar fólk kallaði eitthvað upp, hafði ég það alltaf eftir. Þú hefur víst einhvem- tíma heyrt til mín, er ekki svo?“ Jú, það hafði hann reyndar heyrt, en hvernig lá í þessu öllu saman, og hvers vegna var hún ekki ennþá uppi á fjallstindin- um. Var starfi hennar þar lokið eða hvað? „Nú er ég orðin gömul og óstöðug á fótunum," sagði kerling hálfkjökrandi, „og í gær, þegar ég átti að svara risanum í Brattahlíð, snarsundlaði mig, og áður en mig varði, hrapaði ég niður hlíðina og lenti hérna í urðinni. Og nú kemst ég aldrei upp á tindinn framar.‘“ Nú var kerling farin að gráta. „Mig tekur það svo sárt vegna risans“, sagði hún, „kerlingin hans er svo dæmalaust grett og geðvond, og ævinlega vill hún hafa síðasta orðið. En þegar hún var sem allra verst, var karlinn vanur að leita til mín. Þá æpti ég það, sem hann vildi segja, eins hátt og ég gat í eyra henni. Svo þagði hún dálitla stund á eftir. Sjálf hefur hún svo ónýta rödd, að það er ómögulegt að hafa það eftir, sem hún segir.“ Pilturinn kenndi í brjósti um aumingja risann, sem álltaf varð að láta í minni pokann fyrir geðvondu kerlingunni sinni. Hann sagðist gjarnan vilja hjálpa honum, ef hann aðeins gæti það. „Það var nú einmitt það, sem mér datt í hug,“ sagði kerling. „Nú skaltu fara upp á fjallið, þangað, sem ég á heima, berðu ættingjum mínum kveðju mina, og segðu, að það muni dragast, að ég komist upp aft- ur. Skilaðu, að einhver þeirra verði að taka við starfinu á fjallstindinum þangað til. En komdu við hjá risanum í leið- inni, og segðu eitt orð honum til hughreystingar.“ Pilturinn hafði ekkert á mótl því að gera þetta. En hvernig- átti hann að rata? Kerling kunni ráð, hún tók fram lítið hjól, sagði honum að skyrpa í lófana, setja hjólið af stað og setjast síðan sjálfur á það. Þannig myndi hann finna rétta leið. Pilturinn fór nú að eins og kerling sagði fyrir. Hjólið fór af stað og fór svo hratt, að hann varð að halda sér í það af öllum kröftum, svo að hann dytti ekki af því. Áfram þaut það upp fjall- ið, yfir stokka og steina, og beina leið inn í hellinn til ris- ans, sem sat.úti í horni. Hann var ósköp stúrinn, en kerling hans lét dæluna ganga. Piltur- inn gekk með hálfum hpga inn eftir hellisgólfinu og skilaðl kveðju kerlingar. Varð þá risinn mjög glaður og tók svo fast f hönd drengnum, að hún dofn- aði. „Já, ef þú getur fengið fjallstindinn til að svara aftur, skaltu ekki til einskis vinna“, sagði hann. „Fullan poka af skíru gulli skaltu fá að launum.“ Pilturinn setti hjólið af stað, og eftir litla stund var hann kominn upp á fjallstindinn. Þar hitti hann fyrir gamla konu, systur þeirrar, sem sendi hann. Hann kastaði á hana kveðju og skilaði frá systur hennar, hvort hún gæti tekið við starfi henn- ar. Jú, ekkert var því til fyrir- stöðu. Pilturinn sneri þá hjólinu við og þaut nú sömu leið og hann kom og niður í hellinn til risans, sem sat nú úti fyrir dyrum og bar sig aumlega, en kerling hans geisaði inn. Hún var ógnar reið, af því að karl hafði lofað að láta gull af hendi. Þessi stráksnáði væri aumingi, sagði hún. Hann gæti víst áreiðanlega ekki fengið Brattahlíðartind til að svara á ný. Nú kom pilturinn einmitt að X þessu og heyrði til kerlingar. Varð hann þá reiður og hrópaði, svo að undir tók: Hver gefur fjallinu málið, svo að það svari? A-r-i heyrðist ofan úr fjallinu. „Þarna heyrirðu það sjálf“, sagði hann. „En gullið er mtn eign“, sagði kerling, „og enginn getur farið

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.