Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Page 3

Heima er bezt - 01.04.1953, Page 3
Nr. 4 Heima er bezt 99 Guðmundur Davíðsson: Verferð suður á land 1894 Ég man ekki eftir að ég hafi hlakkað rheira til nokkurs hlut- ar, á yngri árum mínum, en að fá að fara til sjóróðra suður á land og verða tekinn í ver- mannatölu. Þegar ferðin var á- kveðin nokkru eftir nýárið, gat ég ekki um annað hugsað en ferðalagið. Annan dyntinn datt mér þó í hug, að vel gæti farið svo, að ég kæmi ekki lifandi heim aftur, og að það yrði í sið- asta sinn, er ég kveddi foreldra- hús. En þessi hugsun vóg ekki á móti tilhlökkuninni að komast suður, hvað sem tæki þar við. Að heiman var ég búinn út eftir föngum, með nesti og nýja skó, ennfremur nauðsynlegan fatnað. Sokkar og nærfatnaður var merktur með fangamarki mínu, svo að ekki færi það í rugling á bæjum, þar sem ég gisti á leiðinni, eða yrði til húsa á vertíðinni. Þegar allt var til reiðu og búið að koma fyrir því, sem ég þurfti að hafa meðferð- is í verpokann, var hann vigt- aður og reyndist rúmlega 35 pund. Þótti það of þungur baggi fyrir mig að bera suður á land um hávetur. En ég var ófáan- legur til að létta á pokanum og skilja eitthvað eftir af því, sem í hann var búið að láta, og við það sat. Verpokinn var þannig gerður, að saumað var fyrir op- ið á strigapoka; varð hann þá heill í báða enda. En á miðjuna var sett op svo vítt, að koma mátti höfðinu vel í gegnum það. Sat þá pokinn jafnt á báðum öxlum. Farangrinum var troðið í báða enda og borið í bak og fyrir. Pokaendinn, sem lá á brjóstinu, var hafður léttari en sá, sem sat á herðunum, en lítt sáu menn niður fyrir fætur sér. Þessi útbúnaður var hentugur í langferðum. En þó var sá ókost- ur, að maður vildi svitna undan pokanum eins og klár undan reiðingi, en fyrirhöfn að kasta honum af sér, ef staldrað var við stutta stund. Við vorum fjórir vermenn samferða úr Vatnsdal í þetta sinn. Hinir voru Díómedes bróð- ir minn frá Marðarnúpi, Sig- urður Hjartarson frá Gríms- tungu og Þorsteinn Konráðsson frá Haukagili, síðar bóndi á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, en nú búsettur í Reykjavík. Báðir hin- ir fyrrnefndu eru nú dánir. Ég hafði aldrei komið á Suð- urland og kunni lítið annað til sjómennsku en áralagið. En hin- ir voru þaulæfðir sjómenn, bún- ir að róa margar vertíðir syðra og kunnugir öllum leiðum til Suðurlands. Við fengum gott veður og góða færð undir Holtavörðuheiði. Fyrstu nóttina gistum við að Galtarnesi í Víðidal, og héldum svo þaðan sem leið lá vestur Miðfjarðar- og Hrútafjarðarháls. Þegar komið var ofan að Hrúta- firði, var hann allur ísi lagður fyrir innan Borðeyri. Tókum við það ráð að ganga ísinn og stefna á Mela, en þar ætluðum við að gista. ísinn var háll, en hvasst á móti, svo að ferðin sóttist seint. Við vorum því orðnir upp- gefnir, eða að minnsta kosti ég, þegar við komum að Melum um kvöldið. Annars lét ég lítið á því bera við félaga mína, að ég væri mjög þreyttur eftir hverja dagleið, svo að þeir gæfu mér ekki lélegan vitnisburð fyrir ódugnað og vanorku á leiðinni. Ég var yngstur í hópnum og ekki laust við, áður en við fórum af stað að heiman, að þeir byggj- ust við að hafa tafir af mér á leiðinni suður. Þegar við komum að Melum voru þar fyrir 7 menn nýkomnir til gistingar norðan úr Skaga- firði. Allir gistum við þarna um nóttina, þó að þröngt væri. Dag- inn eftir var kalsa veður og dá- lítið fjúk. Lögðum við samt upp á heiðina, allir í einum hóp. Snjór var ekki mikill norðan til á heiðinni og góð færð, en þæf- ingur, er lengra dró suður á bóg- inn, og alltaf var dimmviðri og hríðarveður. Versnaði nú bæði færð og veður, er sunnar dró. Sást fyrir veginum á stöku stað. Pósturinn hafði farið suður heiðina, fyrir nokkrum dögum. Þræddum við harðsporann eftir hestana, þar sem sást fyrir hon- um, og fórum því aldrei út af réttri leið- Ekki var tekin hvíld fyrr en hjá Hæðarsteini, sem er nokkru sunnar en á miðri heiði. Stóðum við þarna stutt við, því að ekki vildi veðrið batna. En sú var bót í máli', að nú fór að halla undan fæti. Og þegar kom ofan í heiðarsporðinn, birti upp og gerði bezta veður. Það, sem mest angraði okkur yfir heiðina, var þorstinn, en úr því varð ekki bætt. Að éta snjó gerði ekki nema illt verra. Það gerði mann máttlausan og svo varð maður, eftir stutta stund, jafn þyrstur og áður. Þegar nálgaðist Forna- hvamm, varð unglingspiltur meðal Skagfirðinganna svo yf- irkominn af þreytu, að félagar hans urðu að leiða hann síðasta spölinn. Ég var líka dauðuppgef- inn og gat varla fylgzt með hin- um, en harkaði af mér og lét sem minnst á því bera. Við urð- um allir fegnir að koma að Fornahvammi. Þar þáðum við góðan beina og gistingu. Sváf- um við tveir og þrír saman í rúmi. Við urðum ekki varir við þrengslin. Hvíldin og svefninn báru þau ofurliði. Morguninn eftir voru allir orðnir aflúnir og hugðu gott til daggöngunnar. Veður var rysjótt um daginn, ýmist snjókoma eða slydda. Við þræddum alls staðar þjóðveginn. Þegar við fórum gegnum Norð- tunguskóg varð mér starsýnt á birkitrén, því að aldrei hafði ég fyrr séð skóg á ævinni. Varð ég að hafa mig allan við að drag- ast ekki aftur úr félögum mín- um vegna forvitninnar. Og sízt datt mér þá í hug, að ég ætti eftir að eiga mikið saman við birkiskógana að sælda, eins og síðar kom á daginn. Félagar mínir völdu sér gisti- stað í Deildartungu og höfðu orð

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.