Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.04.1953, Qupperneq 12
108 Heíma er bezt Nr. 4 Þrjár getraunir 1. Úr hvaða bók er eftirfarandi kafli og um hverja er rætt: „Nú var hans stutta æviskeið á enda runnið. Fyrir fjörið gat hann ekki meiru fórnað en lífinu. Þeir, sem línur þessar lesa, geta, hver eftir hug sínum, staldrað við hjá lága kumblinu, þar sem ungi maðurinn stóð yfir gröf ástvinar síns, hnípinn og syrgjandi. Þarna var stokkinn sterkasti þátturinn í leikkerfi hans. Von- leysis- og dauðarökkur færðist yfir leikvöllinn og sól- arlönd gleðinnar horfin á bak við Klakkinn." 2. Hver orti eftirfarandi erindi, úr hvaða kvæði er það tekið og í hvaðá bók birtist það: „Festi ég ást við fagra byggð fjarða og dala þinna, brást mér aldrei barnatryggð bernskustöðva minna.“ 3. Frá hvaða stað er meðfylgjandi mynd: Sendið svörin við ofannefndum spurningum í lokuðu umslagi til „Heima er bezt“ fyrir 1. júní n. k. Sá, sem svarar öllum spurningunum rétt, fær bækur frá Bókaútgáfunni Norðra eftir eigin vali fyrir 100 krónur. Berist fleiri en eitt svar rétt, verður dregið um verðlaunin. Það hafði verið leikið á þau bæði. í sveitinni, sem lá milli Brekku og Staðar, átti Ella systir Siggu nú heima. Hjá tengdaforeldrum hennar gistu þau Árni vinnu- maður frá Brekku og Sigga. Systrunum þótti gott að hittast. Ella vissi allt og hét að reyn- ast henni svo vel, sem hún gæti. Sjálf lét hún vel yfir sínum hag og hlakkaði til að komast að Bakka að liðnum vetri. Þá mundu þær sjást aftur, ef guð lofaði. Nú þótti þeim Brekkuhjónum ekki nógu vel um þetta búið og tóku fyrir að senda Grím til Suðurnesja með vertíð, og var hcúium að skilnaði sagt, að hann mætti koma sér þar fyrir, því að hans væri ekki þörf á Brekku lengur. Um það hafði Grímur engin orð, en skildi vel, hvert kapp var á lagt að fjarlægja þau Siggu til frambúðar og sárnaði tilefnislaus lítilsvirðing, sem í þessu ráðabruggi fólst. Með vertíð fer hann svo, út- gerðarlaus og óráðinn til Suð- urnesja. Þegar þangað kemur, þekkir hann engan mann, hefur aldrei á sjó komið og leitast þó eftir því að fá skiprúm. Hann naut þess, að hann var vel vax- inn og kraftalegur og þótti fljótt sjómannsefni, þá er hann var búinn að koma nokkrum sinn- um á sjó. Og útgerðarmaður á Miðnesi býðst til að láta hann fá skiprúm hjá sér. Ræðst hann þá upp á fullt kaup til gamalla hjóna, og hjá þeim dvelst hann næstu tvö ár. Hann þykir fljótt ágætur sjómaður og gömlu hjón- in höfðu mestu mætur á honum. Þau eiga eina dóttur barna, þyk- ir mikið til Gríms koma og vilja fá hann til þess að taka við bú- inu ásamt dótturinni. Grímur veit, að hún muni ekki hafa neitt á móti því og finnur, að hún er honum samboðin og í engu síðri. En Sigga situr í fyr- irrúmi í huga hans, svo að þar kemst ekki önnur að. Og hann er nú 20 ára. Ræðst hann nú í vist hjá út- gerðarmanni, á stórt heimili, og tekur að sér formennsku. Hann þykir vitmaður á sjó, heppinn aflamaður og er dáður af háset- um, þegar á fyrstu vertíð. Á öðru ári þar, lendir hann í sjóhrakningi, í mannskaðaveðri, er skellur á síðari hluta dags, kemst í hann krappann um nótt- ina, á miðjum Faxaflóa, verst þó skipbroti og nær landi um há- degi næsta dag í Njarðvíkum, þá talinn af, ásamt tveimur skip- um öðrum, en þau komu aldrei fram. í Njarðvíkum hittir hann, eins og af tilviljun, bróður Ein- ars á Bakka og varð þar fagn- aðarfundur hjá báðum, þótt hvorugur hefði áður sézt, því að Jón Einarsson í Njarðvík hafði frétt, í hvert óefni var komið fyr- ir gömlum sveitunga sínum, þótt Grímur væri reyndar barn að aldri, er Jón fluttist suður, og Grími var fagnaðarefni að hitta þar mann, er til þekkti heima. Og á það jók annað, þá er þeir voru komnir heim til Jóns og Grímur farinn að jafna sig eft- ir sjóvolkið. Jón hafði nýverið fengið bréf frá Einari bróður sínum. Efni þess var það, að biðja hann að reyna að ná tali

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.