Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Side 14

Heima er bezt - 01.04.1953, Side 14
110 Heima er bezt Nr. 4 Þórarinn Víkingur: í RÖKKRINU Reimleikar á Núpi í Öxarfirði og hulduf ólkið í Stekkjarbjargi Gamlar og nýjar sagnir Framh. Næsti ábúandi á Núpi á eft- ir Þorvaldi Hákonarsyni var Friðrik Árnason hreppstjóri. Fluttist hann þangað vorið 1844 eða sama vorið og Þorvaldur fór þaðan. Árið 1850, er Jón Gríms- son talinn ábúandi á Núpi og Friðrik í húsmennsku hjá hon- um. Næsta vor, 1851, tekur Sig- urbjörn, sonur Friðriks, við jörðinni og býr þar sex næstu ár. Ekki mun þessum ábúend- um hafa þótt ráðlegt að styggja huldufólkið í Stekkjarbjargi með silungsveiði í Stekkjar- tjörn. En heyrt hef ég, að ein- hverntíma á þessum árum hafi vinnumaður þeirra feðga veitt nokkra silunga á laun í tjörn- inni. Skömmu síðar fannst reið- hestur hans dauður neðan við Stekkjarhamarinn. Hafði hann hrapað þar fram af brúninni. Þótti öllum þetta með ólíkind- um og var huldufólkinu um kennt. En aldrei bar á reimleik- um heima í bænum þessi ár. Enn verða ábúandaskipti á Núpi vorið 1857. Þá flytur þang- að ungur bóndi, Vigfús Nikulás- son, 29 ára gamall. Kona hans hét Hólmfríður. Eignuðust þau hjónin 5 börn, þrjá drengi og tvær stúlkur. Vigfús lét aldrei veiða í Stekkjartjörn og bann- aði sonum sínum harðlega að glettast við huldufólkið eftir að þeir komust á legg. Þótti þeim ekki gott að þurfa að hlýða þessu banni föður síns og voru vantrúaðir á að saka myndi, þótt lagður væri netstúfur í tjörnina. Oft sáu þeir silung vaka þar í vatnsskorpunni, þeg- ar þeir voru að smala fé þar í kring. Loks varð freistingin sterkari en aðvörun föður þeirra og náðu þeir bræður í nokkrar bröndur í tjörninni. En svo brá við skömmu seinna, að nýbæra í fjósinu drapst úr illkynjuðu júgurmeini. Þótti sennilegt, að huldufólkið hefði verið þarna að verki. Fengu drengirnir alvar- legar ávítur fyrir tiltækið, og eftir þetta trúðu þeir því, að var- legra væri að ganga ekki á hlut huldufólksins í Stekkjarbjargi. Elzti sonur Vigfúsar, Nikulás, tók við búi af föður sínum og bjó þar góðu búi nær hálfa öld. Var orð á því gert, hvað skepnu- höld hjá honum voru góð, því að varla kom það fyrir, að lamb dræpist, þótt kalt voraði stund- um. Og oftast kallheimti Niku- lás fé sitt af afrétt á haustin. Keypti hann ábúðarjörð sína, en áður hafði hún verið eign rík- isins. Nikulás var mjög traustur og ábyggilegur maður og loforð hans stóðu ávallt sem stafur á bók. En sumum þótti hann nokk- uð forn í skapi og fastheldinn á gamlar venjur. Var honum skapfelldara að ganga sínar eig- in götur en feta slóðir annarra — var bágrækur og óteymandi, eins og eitt sinn var sagt í eftir- mælum um annan merkan þing- eyskan bónda. Aldrei veiddi Nikulás silung í Stekkjartjörn og bannaði öllum öðrum veiði þar. Gætti hann þess vandlega, að því banni væri hlýtt. Nikulás hætti búskap á Núpi vorið 1938 og seldi þá Guðmundi Kristjánssyni frá Víkingavatni próventu sína. Varaði hann hinn nýja ábúanda alvarlega við því að veiða í Stekkj artj örninni eða skaprauna huldufólkinu á ann- an hátt, því að hann var sann- færður um, að huldufólk ætti heima í Stekkjarbjarginu og af því gæti illt hlotizt, ef gert væri á hluta þess. Guðmundur mun hinsvegar hafa efast um þetta. Veiddi hann strax fyrsta vorið 9 silunga í tjörninni. En ein- kennilega þótti honum við bregða, er jafn mörg lömb, er hann átti, drápust næstu daga þar á eftir, því að slíkur lamba- dauði var fátíður á Núpi. Þótti gamla manninum, Nikulási, nú sannast sitt mál, enda var veiði hætt í það sinn. Næsta vor vildi þó Guðmundur reyna til þraut- ar, hvort mark væri takandi á hinum gömlu sögnum. Lagði hann þá net í tjörnina og veiddi 39 silunga, og bar ekki neitt á neinu og skepnuhöld í bezta lagi þetta vor. En næsta vor þótti það ekki einleikið, að þá voru 39 ær, er Guðmundur átti, lamblausar. Fór hann þá að gruna, að ekki væri allt með felldu, og hefur hann aldrei veitt í tjörninni síðan, enda hef- ur honum búnazt vel og ekki orðið fyrir neinum óskunda, er huldufólkinu yrði um kennt, síð- an þetta gerðist. Sumarið 1943 fór ég, sem þetta skrifa, norður í Öxarfjörð og gisti þá hjá frændfólki mínu á Núpi. Erum við Guðmundur bóndi þar systkinasynir. Niku- lás gamli, sem áður er getið, var þá enn vel ern og léttur í máli. Hafði ég mikla ánægju af því að tala við hann, því að langt var síðan leiðir okkar skildu, og ég hafði ekki séð hann í mörg ár. Barst talið brátt að huldufólkinu í Stekkjarbjargi og reimleikun- um á Núpi og ýmsum glettum, er ég hafði heyrt getið um og taldar voru af þess völdum. Spurði ég Nikulás, hvort hann hefði nokkurn tíma komizt í kast við huldufólkið á hinum mörgu búskaparárum hans þarna á staðnum. „Ekki hef ég mikið orð á því gert,“ svaraði gamli maðurinn, „vildi ég kom- ast hjá því að þurfa að pexa við heimspekinga, sem allt þykjast vita og engu trúa nema því, sem séð verður með eigin augum og þreifað á. En sjálfur er ég löngu sannfærður um, að til eru huld- ar verur, sem geta gert okkur mönnunum bæði gott og illt. Þykist ég hafa fengið margar sannanir fyrir þessu , bæði í svefni og vöku.“ Nú fór ég að verða meira en lítið forvitinn. „Blessaður segðu mér nánar af þessu, sem fyrir þig hefur bor- ið.“ „Það get ég gert, ef þér er það áhugamál, og því mátt þú treysta, að ekki segi ég annað en það, sem satt er.“

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.