Heima er bezt - 01.04.1953, Blaðsíða 16
112
Heima er bezt
Nr. 4
Hvert mannsbarn á íslandi
kannast við Bessastaði á Álfta-
nesi. Þeir eru einn af þeim stöð-
um á landinu, sem eru bundnir
sögu þjóðarinnar órjúfanlegust-
um böndum. Gegnum allar hinar
myrku aldir íslandssögu voru
það valdsmennirnir á Bessastöð-
um, sem gerðu út um örlög þjóð-
arinnar. Þar sat æðsta valdið í
margar aldir — það vald, sem
átti einna ríkastan þátt í niður-
lægingu þjóðarinnar. Mörgum
verður á að minnast þessa dökka
tímabils sögunnar í sambandi
við Kóngsgarðinn á Bessastöð-
um og gleyma hinu, að á Bessa-
stöðum hófst einnig endurreisn
íslenzkra bókmennta og tungu,
en hún á einna drýgstan þáttinn
í því, að þjóðin náði sjálfsfor-
ræði sínu og gat tekið lokaskref-
ið með lýðveldisstofnuninni 1941
— lokaskrefið, svo framarlega
sem þjóðin ber gæfu til að varð-
veita hið fengna frelsi — en
einnig getur hin merka saga
Bessastaða verið okkur í senn
fordæmi og víti til varnaðar.
Bessastaðir geta ekki talizt
meðal elztu sögustaða íslend-
inga. Staðurinn fer ekki að koma
við sögu fyrr en á Sturlungaöld,
og er þá í eigu Snorra Sturluson-
ar. Var hann, eins og kunnugt er,
einn af ríkustu höfðingjum
sinnar tíðar, og þótt snillingur
hafi verið á öðrum sviðum, var
hann enganveginn til fyrir-
myndar í fjármálunum. En ann-
ars fara litlar sögur af Bessa-
stöðum á þessari róstusömu öld.
Þegar kemur fram á 14. öldina
verða Bessastaðir að nokkru leyti
höfuðstaður landsins, því að þá
verður þar aðsetursstaður hinna
útlendu landstjórnara.
Eftir það sátu umboðsmenn
útlenda valdsins óslitið á Bessa-
stöðum þangað til Reykjavík tók
við sem höfuðstaður, og æðsta
valdið komst smátt og smátt í
hendur landsmanna sjálfra.
En enda þótt Bessastaðir væru
höfuðstaður hins erlenda valds,
var Alþingi á Þingvöllum hinn
B E SSAS
innlendi höfuðstaður þjóðarinn-
ar, það er að segja veraldlega
valdsins, því að biskupsstólarn-
ir á Hólum og í Skálholti höfðu
óskoruð yfirráð yfir málefnum
kirkjunnar og öðrum andlegum
málum. Oft voru erjur milli fyr-
irsvarsmanna hins erlenda og |
innlenda valds, og fór þá oftast,
eins og að líkum lætur, að er-
lenda valdið bar sigur úr býtum.
En erlenda valdinu mun þó
stundum hafa staðið beygur af
hinu fornfræga alþingi. Lýsir
það sér í því, að Bessastaða-
valdsmenn reyndu að færa þing-
ið undir verndarvæng sinn með
því að flytja það, og þá helzt í
Kópavog, í næsta nágrenni
kóngsgarðsins. Tókst þeim og
eitt sinn að halda þingið í Kópa-
vogi, en það var þegar einveld-
Bessastaðir 1944.