Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Page 17

Heima er bezt - 01.04.1953, Page 17
Nr. 4 Heima er bezt 113 T A Ð I R inu var skellt á árið 1662. Er það í raun og veru hreinasta furða, hve vel alþingi tókst að standazt gegn kröfunum, þegar á allt er litið. Togstreitan milli Bessastaðavalds- ins og alþingis er merkur þáttur í stjórn- málasögu landsins. Á 15. öldinni ríkir kirkjuvaldið hér á landi í algleymingi. Þesssi öld er rík af stórbrotnum höfðingjum; þá geysa plág- ur, svo sem Svarti dauði, þá eru vígaferli litlu ótíðari en á Sturlungaöld, en innan um eru friðsamir andans menn, eins og Loftur ríki. Atvinnulíf og verzlun var í mjög sæmilegu horfi. Viðskiptin voru aðal- lega við Englendinga og Þjóðverja, en sá vísir, sem þetta hefði getað orðið til hags- bóta og framfara, kafnaði í fæðingunni vegna ofstopa hinna innlendu höfðingja. Saga biskupsstólanna á þessari öld er ekki glæsileg. Þá sitja þar útlendir bisk- upar á borð við Jón Gerreksson, sem líkjast fremur ræningjum en kirkjunnar mönnum. Siðferðisástandið er ákaflega bágborið. Út- lendir ævintýramenn koma hingað. Einn þeirra er Diðrik Pining, sem Píningsdómur er kenndur við. Á þessum tíma fara inn- lendir menn með hirðstjórn, svo sem Björn Jórsalafari, Árni biskup Ólafsson, Vigfús ívarsson Hólm, Björn Þorleifsson ríki og fleiri. Annars er margt óljóst um sögu Bessastaða á þessu tímabili. Allskonar rán og gripdeildir voru tíðir viðburðir á þessari öld. Bessastaðir voru eyddir af enskum reyfurum og fólk drepið. Kom þetta fyrir oftar en einu sinni. En það var langt frá því, að útlendingar einir færu með ránum. Innlendir valds- menn voru ekki eftirbátar þeirra í slíku atferli. Aðferðir Lénharðs fógeta um aldamótin 1500 eru alkunnar. Urðu og stundum deil- ur milli Bessastaðamanna sjálfra. En allt fram yfir 1550 má þó segja, að íslendingar hafi átt í fullu tré við Bessastaða- valdið. Kirkjan var ákaflega öfl- ug stofnun, og stóð oftast nær á rétti landsmanna, þrátt fyrir það, þótt margir biskupanna væri fíknir í fé og jarðeignir og hugsuðu fyrst og fremst um hagsmuni kirkjunnar. Konungsvaldið stóð að siða- skiptunum, eins og kunnugt er. Furstar og smákonungar álfunn- ar sáu sér leik áborði.þegarMar- teinn Lúther hóf uppreisn sína Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson. gegn ofurvaldi kaþólskunnar. Er víst óhætt að fullyrða, að þeim hafi ekki gengið til áhugi á hreinni trúárlærdómum eða öðru slíku hugsjónalegs eðlis. Konungsvaldið sá, að þegar veldi páfans var brotið á bak aftur, gæti það orðið arftaki þess. Eng- in ástæða er til að ætla, að ann- að hafi vakað fyrir fyrirsvars- mönnum konungsvaldsins hér á landi en að auka völd sín á kostnað kirkjunnar. Sumir hinna innlendu fylgismanna siðskiptanna verða heldur ekki sýknaðir af að hafa komið fram sem grímulausir leppar erlenda valdsins fremur en einlægir um- bótamenn í trúarefnum. Það hefur lengi verið haft fyr- ir satt, að barátta Jóns biskups Arasonar gegn hinum nýja sið hafi ekki gengið til áhugi á landsréttinda. Hvort sem lands- réttindi hafa verið rík í huga biskupsins í þeim skilningi, sem nútímamenn leggja í það hug- tak, eða ekki, verður ekki um það deilt, að eftir siðaskiptin verður konungsvaldið einrátt um stjórn landsins. Lúthersku bisk- uparnir urðu flestir auðsveip verkfæri hins erlenda valds. Frá Bessastöðum komu þeir menn, sem mest koma við sögu siðskiptanna. Diðrik frá Mynd- en, sem drepinn var í Skálholti, Kláus von Merwitzen og Kristj- án skrifari, sem stóð fyrir morð- inu á Jóni biskupi og sonum

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.